Árbók VFÍ - 01.06.1992, Side 29
Skýrsla formanns 27
glæsilega Verkfræðingahús, er nú mjög vel nýtt og samkomur í þágu verkfræðinga eru haldnar
hér dag hvern.
Nú þegar hefur greiðslubyrðin minnkað úr rúmlega 50 m.kr. í um 15 m.kr. Leigutekjur af
húsnæðinu munu nú að miklu leyti greiða hússkuldir. Ljóst er þó að félagssjóður þarf að leggja
til fjármuni a.m.k. næstu tvö árin.
Sparnaður liðinna ára hefur verið ótrúlega mikill. Mikið hefur verið reynt á þolrifin í dug-
miklum sjálfboðaliðum stjórna og nefnda, sem hafa þurft að keyra störf sín áfram fyrir félagið
oft á tíðum með engum eða litlum fjárstuðningi félagsins.
Látum upphaf glæsilegs 80 ára afmæiisárs félagsins og vaxandi meðbyr verða verkfræð-
ingastétt hvatning til að standa vörð um Verkfræðingafélagið og framtíð þess.
Halldór Þór Halldórsson formaður VFI.
11 Fastanefndir
11.1 Menntamálanefnd VFÍ
A fundi framkvæmdastjórnar VFI, þann 2. apríl 1991, voru eftirtaldir félagar skipaðir til setu í
menntamálanefnd VFI til 1. maí 1992:
Guðleifur M. Kristmundsson, formaður Árni Ragnarsson
Guðjón S. Aðalsteinsson Hilmar Sigurðsson
Þorbjörn Karlsson
Skipan nefndarinnar hélst óbreytt.
Á starfsárinu voru haldnir 16 fundir, en reglulegur fundardagur nefndarinnar er fyrsti
fimmtudagur hvers mánaðar.
Menntamálanefnd VFÍ er m.a. ætlað að standa vörð urn verkfræðingsheitið og þær inntöku-
reglur sem félagið ákveður. Nefndin er umsagnaraðili fyrir framkvæmdastjórn félagsins varð-
andi þá sem æskja inngöngu í félagið, en einnig fyrir iðnaðarráðuneytið gagnvart þeim aðilum
sem óska eftir leyfi ráðherra til að nota starfsheitið verkfræðingur.
Framkvæmdastjórn VFI samþykkti þann 2. apríl 1991, að umsóknir frá þeim sem lokið hafa
verkfræðiprófi frá Háskóla íslands skuli framvegis fara fyrir menntamálanefnd eins og aðrar
umsóknir, en fram að þeim tíma höfðu þær verið afgreiddar beint af framkvæmdastjórn. Fjöldi
mála hjá nefndinni varð því nokkru meiri en áður, eða 91 í stað 47 árið á undan, en meðhöndlun
umsókna er tímafrek og fer drjúgur hluti af vinnutíma nefndarinnar í það starf.
Umsóknir um inngöngu í félagið voru 32. Af þeim hlutu 28 jákvæða umsögn en rnælt var
með því að fjórum yrði hafnað. Umsóknir um verkfræðingstitilinn voru 85. Nefndin mælti
með að 79 þeirra yrðu samþykktar en að sex yrði hafnað.
Um það bil helmingur umsækjenda, eða 45, komu frá Háskóla íslands. Af þeini sóttu ein-
ungis fimm um inngöngu í félagið en hinir 40 óskuðu aðeins eftir leyfi til að nota verk-
fræðingsheitið. Umsækjendur með próf frá dönskum skólum voru 26, níu komu frá
Bandaríkjunum, sjö frá Svíþjóð, þrír frá Englandi og einn frá Þýskalandi.
Af þeim sem lokið höl'ðu prófum frá erlendum skólum kornu langflestir, eða 18, frá Aalborg
Universitets Center í Danmörku, eða sami fjöldi og á fyrra ári. Flestir þessara umsækjenda
liafa lokið tæknifræði sem grunnnámi, a.m.k. að hluta, annað hvort frá Tækniskóla íslands eða
frá dönskum tækniskólum. Af öðrum erlendum skólum kom Danmarks Tekniske Höjskole
mest við sögu, en 7 umsækjendur voru með próf þaðan. Flestir þeirra hafa lokið grunnnámi í
verkfræði, oftast frá Háskóla íslands.