Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 79
Félög tengd VFÍ 77
bæklings og undirbúningur vinnustaðahópa, Ráðningarsamningur SV, Tryggingarmál, Endur-
bætur á félagaskrá, Yfirferð á fundabókum, Vinnuhópur vegna úrsagna og útstrikana,
Atvinnumálaráðstefna, Námskeið SV og Töluleg greining kjarakönnunar. Flestir vinnu-
hóparnir hafa skilað af sér, en ekki allir eins og gengur og sumir þurfa að starfa lengur en eitt
starfsár.
2.12 Hækkun ráöherraleyfis mótmælt
Undir lok síðasta árs kom fram frumvarp til laga um aukatekjur ríkissjóðs og samkvæmt því
átti leyfi til að nota starfsheitið verkfræðingur að kosta 25.000,-, en hafði kostað 1.500,-. VFÍ
sendi mótmælabréf til ráðherra vegna þessa og SV einnig nokkru síðar.
Lögin tóku gildi 19. desember 1991 og gilda einnig um arkitekta, tæknifræðinga, lyfjafræð-
inga, viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Að fumkvæði formanna VFÍ og SV var haldinn sam-
eiginlegur fundur forsvarsmanna þeirra félaga, sem hækkunin gilti fyrir, í Verkfræðinga-
húsinu. Þar var samið mótmælabréf, sem samtals 13 forsvarsmenn skrifuðu undir. SV ákvað
síðan í kjölfar hækkunarinnar að hætta að gera kröfu um ráðhenaleyfið við inngöngu í félagið
og fá í staðinn mat á umsækjendum. Mótmælunum voru síðan gerð skil í fréttabréfi SV, sem
kom út í lok janúar og fréttamaður Tímans fékk eintak af því og ræddi einnig við formann SV í
síma. Nokkrum dögum seinna kom frétt á forsíðu Tímans, þar sem fjallað var um málið og í
kjölfar þess var fjallað um það í útvarpi og stutt viðtal var í Sjónvarpinu við formann SV.
13 Lokaorö
Að lokum vil ég þakka öllum, sem hafa starfað að málefnum SV og sérstaklega vil ég þakka
stjórnarmönnum og samninganefndum SV.
Porsteinn Sigurjónsson formaður 1991192.
Mynd 2 Pallborð á ráSstefnu SV 22.febrúar 1992 um atvinnumál verkfrœðinga. Frá vinstri: Gunnar
Snorri Gunnarsson sendiherra, Ólafur Erlingsson formaður Félags ráðgjafarverkfrœðinga, Þorsteinn
Helgason forseti Verkfrœðideildar Hl, Guðmundur G. Þórarinsson umrœðustjóri, Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra, Þorsteinn Sigurjónsson formaður SV og Halldór Þór Halldórsson formaður VFI.