Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 177
Póstur og sími 175
2.7 Gagnanetið
Almenna gagnaflutningsnetið hefur verið í notkun á Islandi frá 1986. Notendum í Gagnanetinu
hefur fjölgað jafnt og þétt og í árslok 1991 voru þeir orðnir u.þ.b. 1800. Gagnanetið fylgir
alþjóðlegum staðli, X.25, en með tilkomu hans urðu tölvusamskipti milli ólíkra tölvutegunda
auðveldari en áður. íslenska gagnanetið tengist beint eða óbeint gagnanetum flestra annarra
símamálastjóma. Með notkun þess verða gagnasamskipti innanlands og til útlanda mun auð-
veldari og hagkvæmari en t.d. með tengingu um almenna símakerfið.
Á árinu hóf Póstur og sími rekstur nýrrar þjónustu sem nefnist Gagnahólf. Er ætlunin með
þessari þjónustu að gefa notendum möguleika á því að skiptast á gögnum sem unnin eru í
tölvum á einfaldan hátt. Skiptir þá ekki máli þótt tölvurnar séu ólíkrar gerðar. Þar að auki geta
notendur þessarar þjónustu nýtt sér telex og fax. Gögnin eru send beint úr tölvu sendandans í
gagnahólf móttakandans án þess að prenta þau á pappír áður. Móttakandi nær síðan í send-
inguna í gagnahólfið sitt og setur beint inn í sína tölvu og getur þar meðhöndlað gögnin að
vild. Viðtakandi þarf ekki að tengjast kerfinu um leið og sendandi, þar sem sending er geymd í
gagnahólfinu eftir þöifum. Með hverri sendingu fylgir hver er sendandi og móttakandi, sendi-
og móttökutími, hverjir eiga að fá afrit, efni sendingar, tilvísunarnúmer o.fl. Þar að auki er
boðið upp á ýmsa þjónustuþætti svo sem forgangshraða, tilkynningu um afltendingu, sending á
sama efni til margra móttakenda o.fl. Til að notfæra sér þessa þjónustu þarf einkatölvu, mótald
og samskiptaforrit. Væntanlegur notandi lætur skrá sig og getur þá byrjað að nota kerfið án
tafar. Til að athuga hvort einhver er skráður notandi, getur hann flett í notendaskrá þar sem all-
ir eru skráðir. Innihald sendingar getur t.d. verið texti, myndir eða skjal á stöðluðu forrni. Allir
þeir sem skiptast á viðskipta- og stjórnunargögnum (fylgireikningar, pantanir, toll- og farmskjöl
o.s.frv.) við fleiri en einn aðila geta því nýtt sér kerfið til að flýta fyrir og einfalda samskiptin.
2.8 Samband viö útlönd
Tekin var ákvörðun um að byggja varajarðstöð fyrir símaumferð til útlanda á Homafirði og
voru loftnet og tæki pöntuð í lok ársins að loknu útboði. Þvermál jarðstöðvarloftnetsins verður
16 m en til samanburðar er loftnet Skyggnis 32 m í þvermál.
Haldið var áfram að breyta utanlandssamböndum í stafrænt form og var sett upp nýtt 2Mb/s
samband við Bretland fyrir leigulínur.
I árslok voru samtals 334 talsímalínur til útlanda: 105 línur til Norðurlandanna, 87 línur til
Bandaríkjanna, 84 línur til Bretlands og 58 línur til Þýskalands, Spánar, Kanada og Hollands.
2.9 Húsnæöi
Á árinu var lokið smíði 220 nr þakhýsis á Landssímahúsinu. Þar eru nú skrifstofur Póst- og
símamálastjóra, fundarsalur og fleira. Lokið var við að smíða nýtt hús fyrir póst og síma-
afgreiðslu á Bakkafirði og er það 91m2 að stærð. Þá var byggt og tekið í notkun nýtt tækjahús á
Hvaleyrarholti í Hafnarfirði. Að Laugum í Reykjadal var 88 m2 afgreiðsluhúsnæði Pósts og
síma, sem er í þjónustumiðstöð þar, keypt af sveitarfélaginu. Á Húsavík var keypt 200 m2 hús-
næði fyrir útivinnuflokk, en það húsnæði hefur llokkurinn notað undanfarin ár. í Hafnarfirði
var hafin smíði viðbyggingar við póst- og símahúsið, 432 m2 að gólffleti. í Stykkishólmi hófst
smíði þjónustuhúss, sem verður 82,4 m2 að stærð.