Árbók VFÍ - 01.06.1992, Qupperneq 60
58 Árbók VFÍ 1991/92
Árið 1991 voru 9 verkfræðingar í nefndinni, svo sem hér segir:
Bragi Þorsteinsson, Verkfræðistofu Braga Þorsteinssonar og Eyvindar Valdimarssonar hf.
EinarB. Pálsson, Verkfræðistofnun Háskóla Islands
Eymundur Runólfsson, Vegagerð ríkisins
Olafur Jensson, Landsvirkjun
Óttar P. Halldórsson, Háskóla íslands
Pétur Ingólfsson, Vegagerð ríkisins
Ragnar Sigbjömsson, Háskóla Islands
Sigmundur Freysteinsson, Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
Stefán Eggertsson, Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar hf.
Formaður nefndarinnar er Einar B. Pálsson. Nefndin nýtur aðstoðar málfræðings, sem
Islensk málnefnd leggur henni til. Það er dr. Halldór Halldórsson, prófessor. Hann situr alla
fundi nefndarinnar og undirbýr einnig mál milli funda ásamt formanni. Auk nefndarmanna
komu ýmsir aðrir sérfræðingar og gestir á fundi, svo sem síðar verður getið.
Eins og áður voru fundir haldnir í húsakynnum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68. Orða-
nefnd á Landsvirkjun þökk að gjalda fyrir gestrisni. Verkefni nefndarinnar er að búa til heil-
steypt íðorðakerfi fyrir hverja grein byggingarverkfræðinnar, svo að ræða megi og rita um hana
á fullgildri íslensku og af þeirri fræðilegu nákvæmni, sem við hæfi er. Einingar slíks kerfis eru
fremur hugtökin, sem fræðin byggjast á, en íðorðin, sem eru nöfn hinna fræðilegu hugtaka.
Hugtök í raunvísindum og tækni eru flest hin sömu um allan heim. í byggingarverkfræði bera
þau samt keim af náttúru hvers lands.
Iðorðasafn okkar er því safn íslenskra skilgreininga áhugtökum ásamt íðorðum um hugtökin
og samsvarandi íðorðum á nokkrum erlendum tungum. Er leitast við að leysa verkið af hendi í
samræmi við þá íðorðafræði, sem hefur verið að þróast víða um heim á undanförnum árum, og
í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðlegu staðlastofnunarinnar (ISO) um það efni.
Verður nú getið starfa hvers vinnuhóps um sig á árinu 1991.
Vinnuhópur A. I honum voru Bragi Þorsteinsson, Einar B. Pálsson, Eymundur Runólfs-
son, Ólafur Jensson, Pétur Ingólfsson og Sigmundur Freysteinsson. Enn fremur tók Halldór
Sveinsson verkfræðingur þátt í störfum vinnuhópsins á vegum Vegagerðar ríkisins.
Fundir voru haldnir reglulega einu sinni í viku, síðdegis á þriðjudögum, nema meðan
sumarleyfi stóðu yfir.
Vinnuhópurinn hélt 33 fundi á árinu 1991. Fyrri hluta ársins var einkum fjallað um hugtök
úr jarðfræði, er tengjast mannvirkjagerð (um 120 hugtök) en síðari hluta ársins einkum um
hugtök varðandi fráveitur (um 90 hugtök), og var þá tekinn upp þráður, sem fallið hafði niður
árið 1989. Sér nú hilla undir útgáfu á íðorðasafni um fráveitur.
Einar B. Pálsson hefur annast undirbúning að þessum íðorðasöfnum og notið ráða ýmissa
sérfræðinga. Skulu hér einkum nefndir jarðfræðingarnir dr. Hreinn Haraldsson, Vegagerð
ríkisins, og dr. Jón Eiríksson, Raunvísindastofnun Háskólans, og að því er fráveitur varðar,
verkfræðingarnir Hilmar Sigurðsson og Hafsteinn Helgason.
Vinnuhópur B. I honum voru Einar B. Pálsson, Ólafur Jensson, Óttar P. Halldórsson,
Ragnar Sigbjörnsson og Stefán Eggertsson. Þeir Einar og Ólafur eru því í báðum vinnuhópum,
A og B. Stefán Eggertsson gat ekki tekið þátt í störfum á árinu, en tveir aðrir störfuðu með
vinnuhópnum, þeir Hjörtur Þráinsson byggingarverkfræðingur í Verkfræðistofnun Háskóla