Árbók VFÍ - 01.06.1992, Side 87
Félög tengd VFÍ 85
Aðalfundur getur hins vegar valið um hvort hann vill samþykkja þá tillögu eða leggja allan af-
ganginn í varasjóð.
í þessu sambandi má hafa í huga, þau skuldabréf, sem sjóðurinn á nú, þ.e.a.s. önnur en
skuldabréfa sjóðfélaga, bera nánast öll hærri vexti en 3,5%, sem eru reiknivextir sjóðsins. í
þessu er falinn ákveðinn varasjóður.
3.10 Ráöstefna
Þann 30. mars 1991 stóð stjórnin fyrir ráðstefnuhaldi um lífeyrismál á Hótel Sögu. Frummæl-
endur voru, auk Jónasar Bjamasonar og Eysteins Haraldssonar, þeir Pétur H. Blöndal trygg-
ingastærðfræðingur, Þorgeir Eyjólfsson formaður Landssambands lífeyrissjóða og forstjóri
Lífeyrissjóðs verslunarmanna og dr. Þorkell Helgason prófessor í stærðfræði, aðstoðannaður
heilbrigðisráðherra. Stjórnandi ráðstefnunnar var Þórólfur Arnason.
Ráðstefnan var haldin að frumkvæði Verkfræðingafélagsins í tilefni af 80 ára afmæli þess
félags. Ráðstefnan var vel sótt og þótti takast vel.
3.11 Tölvukaup
A næstunni verður tölvubúnaður og að töluverðu leyti hugbúnaður lífeyrissjóðsins endurnýjað,
en hvort tveggja er að stofni til frá árinu 1985.
3.12 Innheimtumál
Undanfarið hefur verið unnið að því að gera innheimtu iðgjalda sjóðsins skilvirkari. Verið er
að taka í notkun kerfi, þar sem vinnuveitanda og síðan launþega verða sendar upplýsingar um
stöðu mála, ef eitthvað ber út af við innheimtu iðgjalda. Gert er ráð fyrir lögfræðiinnheimtu
iðgjalda innan 6 mánaða.
Til skamms tíma ábyrgðist ríkissjóður iðgjöld til lífeyrissjóða við gjaldþrot fyrirtækja, ef ið-
gjaldsskuldin var yngri en 18 mánaða. Ábyrgðin gilti þó ekki um tiltekna stjórnendur fyrir-
tækja. Með margumtöluðum bandormi var ábyrgð þessi nýlega felld niður. 1 tengslum við
nýafstaðna kjarasamninga gaf forsætisráðherra það loforð, að slík ábyrgð yrði áfram við lýði.
Á þessari stundu er ekki ljóst hvaða skilmálum slík ábyrgð verður háð, en gera má ráð fyrir, að
ábyrgðin gildi einungis í þeim tilfellum að lífeyrissjóðurinn hafi gefið sjóðfélaganum upp-
lýsingar um stöðu mála.
Eins og kunnugt er lánar lífeyrissjóðurinn sjóðfélögunum nteð fasteignatryggðum skulda-
bréfum. Skv. reglugerð er heimilt að taka veð sem svarar til 75% af brunabótamati fasteignar.
Stjórnin hefur litið á þetta sem heimildarákvæði og leggur til grundvallar mat á söluverði fast-
eigna, auk brunabótamats.
Síðastliðinn vetur eignaðist lífeyrissjóðurinn sína fyrstu íbúð eftir nauðungaruppboð, en
fbúðin hafði verið í eigu dánarbús sjóðfélaga. Reynslan hefur því sýnt, að það er áhættulítið að
lána sjóðfélögum.
3.13 Annað
Ætlunin er að senda sjóðfélögum á næstunni reglugerð LVFI sem verið er að prenta.
Áhugavert væri að útbúa bækling til að kynna fyrir sjóðfélögum og öðrum áhugasömum
aðilum uppbyggingu sjóðsins og réttindin sem hann veitir.