Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 191
Sorpa 189
starfsaðilana, og gerir samning fyrir þeirra hönd um aðkeypta þjónustu vegna
verkefnisins. Allir reikningar fyrir aðkeypta þjónustu skulu viðurkenndir af
formanni eða varaformanni. Reykjavíkurborg hefur með höndum kostnaðargát,
endurskoðun, færslur reikninga og sér um greiðslu þeirra.
3. gr.
Kostnaður vegna verkefnisins skiptist milli samstarfsaðila í hlutfalli við íbúa-
fjölda eins og hann var þann 1. desember 1983, þannig:
Hafnarfjarðarbær 12.700 íbúar 9,92%
Bessastaðahreppur 646 M 0,50%
Garðabær 5.753 M 4,49%
Kópavogsbær 14.406 »1 11,25%
Reykjavíkurborg 87.106 M 68,04%
Mosfellshreppur 3.452 M 2,70%
Seltjarnarnesbær 3.597 M 2.81%
Kjalarneshreppur 372 M 0,24%
Samtals 128.014 M 100,00%
Borgarsjóður mun innheimta áfallinn kostnað hjá samstarfsaðilum, eftir því sem
hann fellur til.
4. gr
Samstarfsaðilar eru því samþykkir að til verkefnisins megi verja allt að 2,5
milljónum króna á árinu 1984, en síðan þeim fjárhæðum sem samþykktar verða
við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni, sbr. 2. gr. 3. mgr. og eru innan fjárhags-
ramma verkefnisins í heild, sem nemur 5,0 milljónum króna á verðlagi í júní
Verkefnisstjóm stýri verkefninu innan þess ramma sem getur í 1. og 2. gr. Fund-
argerðir skulu færðar í fundargerðarbók og sendar til kynningar í sveitarstjóm-
unum og í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Meirihluti
greiddra atkvæða ræður ákvörðunum verkefnisstjómar, enda greiði helmingur
stjórnarmanna atkvæði, eða meira, ella hlýtur mál ekki stuðning.
6. gr.
Stefnt skal að því að verkefninu ljúki eigi síðar en 1. mars 1986.
A þessum fyrsta fundi voru rædd ýmiss vandamál er fylgja sorphreinsun, svo sem, böggun,
urðun og brennsla , ef til kæmi. Akveðið var að setja í gang kerfisbundna vigtun sorpsins til að
geta betur gert sér grein fyrir heildarsorpmagni.
2 Undirbúningur
I framhaldi af þessu var ákveðið að leita til sænsks verkfræðifyrirtækis, Vattenbyggnadsbyrán
(VBB) í Stokkhólmi og íslensks ráðgjafa, Verkfræðistofu Guðmundar & Kristjáns (VGK), til
þess að gera í sameiningu hagkvæmnisathugun á sorpbrennslu og nýtingu þeirrar orku sem