Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 68
66 ÁrbókVFÍ/TFÍ 1998/99
Vísinda og starfsmenntunarsjóður KTFÍ
Á árinu 1998 tók aðsókn í sjóðinn töluverðan kipp. Fjöldi styrkja nær tvöfaldaðist og
sömuleiðist tvöfaldaðist heildarupphæð styrkja frá árinu 1997, en styrkveitingar fóru úr 4,4
milljónum í tæplega 8,7 milljónir króna.
Vegna nýju samninganna hefur orðið mikil tekjuaukning, þær hafa vaxið úr um fimm
milljónum króna í átta milljónir, en tekjur sjóðsins er framlag vinnuveitenda sem nemur
1,72% af föstum mánaðarlaunum félagsmanna. Uthlutað var 84 styrkjum að heildarupphæð
8.686.260 kr. eða 103.400 kr. að meðaltali. 36 styrkjum var úthlutað til kaupa á tölvubúnaði,
samtals 3.378.341 kr. eða 93.843 kr. að meðaltali. 48 styrkjum var úthlutað vegna nám-
skeiða, náms- og ráðstefnuferða, samtals 5.307.919 kr. eða 110.582 kr. að meðaltali.
Á árinu var reglum breytt og styrkmöguleikar rýmkaðir og hefur það haft veruleg áhrif
á útstreymi úr sjóðnum. Hámarksstyrkur er nú kr. 300.000 kr. íyrir hver þrjú ár sem greitt
hefur verið í sjóðinn. Styrkir til tölvukaupa geta mest orðið kr. 150.000 kr. eða 75% af reikn-
ingsupphæð tölvubúnaðar.
Nýr vinnuveitandi gerðist aðili að sjóðnum á árinu og tryggði þar með starfsmanni sínum
sem áður hafði starfað hjá ríkinu áframhaldandi réttindi í sjóðnum.
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður KTFÍ
Haraldur Sigursteinsson formaður
Stjórnendur og sjálfstætt starfandi - STFÍ
Aðalfundur STFÍ (Félag stjórnenda og sjálfstætt starfandi tæknifræðinga í TFÍ) var
haldinn 23. febrúar síðastliðinn 1998 í Verkfræðingahúsi. Úr stjórn gengu Eiríkur Rósberg
formaður og Eiríkur Bogason meðstjórnandi. í stað þeirra voru kosnir Kristinn Arnar
Jóhannesson formaður og Nicolai Jónasson meðstjórnandi, en Nicolai var áður skoðunar-
maður reikninga STFÍ. Eiríkur Bogason var kosinn skoðunarmaður reikninga. Stjórn STFÍ
er því skipuð eftirtöldum: Kristinn Arnar Jóhannesson formaður, Magnús Þór Karlsson og
Nicolai Jónasson meðstjórnendur. Gunnar Sæmundsson og Eiríkur Bogason eru skoðunar-
menn reikninga.
Skýrsla fráfarandi formanns yfir starfsárið 1998-1999
Stjórnin hefur haldið stjórnarfundi í Verkfræðingahúsi og einnig símafundi á starfsárinu
1998-1999. Ekki hefur verið talin ástæða til að rita sérstakar fundargerðir um stjórnarfundi
STFI. Formaður hefur einnig setið stjórnarfundi TFÍ.
STFI hefur haldið eftirfarandi fundi á starfsárinu:
22. október 1998: Hádegisfundur í húsnæði TFÍ að Engjateigi 9 þar sem fyrirlesari var
Haukur Björnsson hjá Útflutningsráði. Fyrirlesturinn ijallaði um vörusýningar, hvemig á að
standa að kynningum á sýningum jafnt erlendis sem innanlands og einnig eftirlýlgni að
lokinni sýningu.
21. janúar 1999: Hádegisfundur í húsnæði TFI að Engjateigi 9 þar sem fyrirlesari var
Olafur Eggertsson hjá Samtökum iðnaðarins. Fyrirlesturinn, sem átti að fjalla um gæðaátak
í byggingariðnaðinum, var blásinn af á staðnum þar sem einungis mættu Olafur Eggertsson
fyrirlesari og tveir stjórnarmenn STFÍ.