Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 70
68 Árbók VFÍ/TFÍ 1998/99
Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga - LAT
Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs arkitekta og
Lífeyrissjóðs Tæknifræðingafélags íslands þann 1. júlí 1998, eftir að sjóðfélagar í báðum
sjóðunum höfðu samþykkt samrunann.
Markmiðið LAT er að tryggja fjárhagslegt öryggi sjóðfélaga. Þannig er sjóðfélögum
boðið að leggja fyrir til eftirlaunaáranna í séreignardeild og tryggingadeild og verja sig og
sína nánustu fyrir tekjumissi vegna örorku eða fráfalls með því að greiða í tryggingadeild.
LAT er blandaður lífeyrissjóður með tveimur deildum, séreignar- og tryggingadeild. Þannig
sameinar sjóðurinn kosti séreignar- og samtryggingarsjóða. Séreignardeildin er byggð á
Lífeyrissjóði Tæknifræðingafélags Islands. Iðgjöld sjóðfélaga í séreignardeildina eru færð á
sérreikning þeirra auk vaxta og verðbóta á ári hverju. Inneignin er laus til útborgunar á
aldrinum 60 til 67 ára. Inneign erfist við fráfall.
Tryggingadeildin er byggð á Lífeyrissjóði arkitekta. Sjóðfélagar geta tryggt sér lág-
markstryggingavemd samkvæmt lögum um lífeyrissjóði nr. 129/1997 með greiðslum.
Heildareignir Lífeyrissjóðs arkitekta og tæknifræðinga voru 4.084 milljónir kr. í árslok 1998
og jukust þær um 283,4 milljónir eða um 7,5%. Hrein raunávöxtun sjóðsins á tímabilinu
1. júlí til 31. desember 1998 var 6,8%. Ef tekið er tillit til raunávöxtunar Lífeyrissjóða
arkitekta og Lífeyrissjóðs Tæknifræðingafélags Islands á fyrri hluta ársins var reiknuð
raunávöxtun Lífeyrissjóðs arkitekta og tæknifræðinga 9,8% allt árið 1998.
Greidd iðgjöld á tímabilinu 1. júlí til 31. desember 1998 námu 171 milljónum króna.
Lífeyrisgreiðslur voru 9 milljónir króna en alls fengu tuttugu og sjö sjóðfélagar greiddan
lífeyri. Fimmtán sjóðfélagar fengu greiddan lífeyri úr séreignardeild, átta fengu greiddan
ellilífeyri, einn fékk greiddan makalífeyri en þrír fengu greiddan örorkulífeyri. Sjóðfélagar
sem greitt hafa í Lífeyrissjóð arkitekta og tæknifræðinga síðustu sex mánuði og eiga lág-
marksinneign eða réttindi í sjóðnum eiga rétt á verðtryggðu láni til 25 ára með vöxtum
samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins, nú 5,5%. Ekkert þak er á lánsljárhæð en veðsetning
má ekki fara fram úr 50% af verðmæti eignar, brunabótamati eða fasteignamati eftir því
hvort lægra er.
A tímabilinu júlí til desember 1998 var veitt 21 lán til sjóðfélaga.
Nýr rekstrarsamningur við VIB: A árinu 1998 var undirritaður samningur milli
Lífeyrissjóðs arkitekta og tæknifræðinga og VIB um rekstur og ávöxtun Qármuna lífeyris-
sjóðsins. Samkvæmt samningnum mun VÍB sjá um rekstur lífeyrissjóðsins og þjónustu við
sjóðfélaga.
Stjórn Lífeyrissjóðs arkitckta og tæknifræðinga skipa eftirtaldir aðilar: Aðalstjórn og
varastjórn: Bergsteinn Gunnarsson formaður, Asgeir Asgeirsson varaformaður, Eiríkur
Þorbjörnsson, Jóhannes Þórðarson, Páll Á. Pálsson, Ólafur Axelsson, Bolli Magnússon og
Gunnlaugur Helgason.
Aðalfundur LAT var haldin í apríi 1999.
Lífeyrissjóður arkitekta og tæknifræðinga
Bergsteinn Gunnarsson formaður