Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 76
74 Árbók VFÍ/TFÍ 1998/99
í endur- og símenntunarnefndum, sem félagið tekur þátt í. Hann spurði einnig hver þátttaka
félaga væri í námskeiðum. Stefán Þór Ragnarsson, fulltrúi TFÍ í endurmenntunarnefnd, telur
að þátttakendur á síðasta ári hafi verið um 750. Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands
getur síðan gefið allar nánari upplýsingar um þátttakendur og námskeið. Fundarmenn telja
að vegna mikils þátttökukostnaðar félagsins í Endurmenntunarstofnun þurfi að íylgja því
betur eftir að tæknifræðingar nýti námskeiðin. Gerðar voru athugasemdir um frágang á
dagsetningum og höfúndarnöfnum á skýrslum fastanefnda.
Skýrslur voru samþykktar samhljóða, svo og reikningar félagsins.
Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
Jóhannes formaður fór yfír fjárhagsáætlun fyrir árið 1999. Félagsgjöld eru áætluð 11,6
milljónir. Kostnaður við rekstur skrifstofu er áætlaður 7,2 milljónir eða um 60% af félags-
gjöldum. Kostnaður við ýmiskonar útgáfústarfsemi og ráðstefnur er áætlaður 4,6 milljónir.
Því er gert ráð fyrir að loka rekstrarári með 100 þúsund króna rekstrarafgangi.
Fram kemur að samningar um rekstur skrifstofu munu hafa í for með sér aukna kostn-
aðarhlutdeild vegna fjölgunar félagsmanna. Þar sem TFÍ er að stækka verður hlutdeild í
rekstri skrifstofu með VFI, 43% á næsta ári. Því er gerð tillaga um hækkun félagsgjalda í
18.000 kr., (hafa ber í huga að til viðbótar er innheimt félagagjald í dótturfélögum KTFI og
STFÍ og verður því innheimt kr. 21.000 hjá félagsmönnum m.v. tillögu).
I umræðum um rekstraráætlun kom efitirfarandi fram:
Bergþór Þormóðsson lagði til hækkun á kostnaði við erlent samstarf. Isleifur Jakobsson
spurði um skiptingu og ráðstöfun á félagsgjöldum í TFÍ, KTFI og STFI. Mikael Jóhann
Traustason fékk skýringar á auknum kostnaði við Verktækni, sem kom til vegna aukins
kostnaðar við útlitshönnun og póstburðargjöld. Gústaf A. Hjaltason studdi aukinn kostnað
við erlent samstarf. Jóhannes Benediktsson lagði til að áætlaður 100 þús. kr. rekstrarafgangur
verði notaður til erlends samstarfs og fjárhagsáætlun verði þá lokað á núlli.
Stjórnin bar fram tillögu um breytingu á ijárhagsáætlun um að nota hluta af tekjuafgangi
ársins 98, til að halda veglega afmælishátíð félagins. Samþykkti fundurinn að verja 500
þúsund krónum í afmælishátíð.
Rekstraráætlun með breytingum var samþykkt samhljóða. Félagsgjald í TFÍ var því
samþykkt kr. 18.000 á ári. A fyrsta almanaksári nýrra félaga er ekki innheimt félagsgjald.
Lagabreytingar
Tekin var fyrir dagskrárbreytingartillaga um breytingu á lögum félagsins. Oli Jón Hertervig
skýrði tillögu varðandi að í dag vanti varamann til að tryggja að stjórnin sé ávallt starfshæf,
því er lögð til breyting á 18. gr. félagslaga. Við 1. mgr. bætist: „Einn varamaður skal kosinn
til eins árs í senn. Tekur hann sæti í forföllum kjörins stjórnarmanns."
Að auki er lögð til breyting á 2. mgr. 20. gr.: „Forfallist kjörinn meðstjómandi eða segi
af sér skal varamaður taka sæti hans fram að næsta aðalfundi í félaginu.“
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Kjör stjórnar
Jóhannes Benediktsson, fráfarandi formaður, gaf kost á sér til endurkjörs og var kjörinn ein-
róma. I kjöri til meðstjórnenda buðu sig fram: Anna Guðrún Gylfadóttir, Bergþór