Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1999, Page 286
284 Árbók VFÍ/TFÍ 1998/99
heilbrigðisstéttir rómað röntgentækin frá Siemens og nú njóta ýmis önnur lækningatæki frá
Siemens sömu hylli, s.s. eins og sneiðmyndatæki, ómskoðunartæki, segulómunartæki,
hljóðbylgjutæki, hjartarafritar, öndunarvélar og margt fleira. A þennan hátt hefur Siemens
lagt af mörkum mikilvægan skerf til læknavísindanna, auðveldað greiningu sjúkdóma, stytt
meðferðartíma og sparað útgjöld á þessu kostnaðarsama en jafnframt mikilvæga sviði.
íhlutasvið
Þetta fagsvið er að mörgu leyti undirstöðusvið annarra framleiðslusviða Siemens. Auðvelt
er að gera sér í hugarlund hvílíks gríðarmagns íhluta fyrirtækið þarfnast til framleiðslu sinnar
á öðrum sviðum. Hin síðari ár hefur megináhersla verið lögð á að fullnægja þörfum tölvu-,
síma- og símkerfaframleiðslunnar með framleiðslu samrása af ýmsum gerðum en einnig
verið lögð rík áhersla á margs konar rafvélræna íhluti sem víða er not fyrir, t.d. í iðnaði.
Lýsingarsvið
Eitt dótturfyrirtækja Siemens er Osram GmbH. Osram þarf vart að kynna því að íyrirtækið
hefur um langan aldur verið í fremstu röð fyrirtækja sem þróað hafa ljósgjafa og búnað til
raflýsingar. Dótturfyrirtæki Osram er síðan Radium Lampenwerk GmbH sem starfað hefúr
á sama sviði í um eina öld og haslað sér völl á íslenskum markaði nú hin síðari ár sem vandað
og traust vörumerki.
Fjármögnunarsvið
Siemens rekur eigið fjármögnunarfyrirtæki í náinni samvinnu við önnur fagsvið fyrirtæk-
isins. Auk hágæðabúnaðar getur Siemens því einnig á hverjum tíma boðið viðskiptavinum
sínum hagstæðustu fjármögnun sem völ er á við véla- og tækjakaup. Þessi þáttur er
viðskiptavinum ekki hvað síst mikilvægur þegar um stór innkaup er að ræða.
Heimilistækjasvið
Heimilistækin frá Siemens eru heimsþekkt gæðavara, kunn fyrir lága bilanatíðni, öryggi,
orkuspamað, fallegt útlit og hagstætt verð. Hér sem annars staðar hefur Siemens verið í
fararbroddi og þróað sífellt vandaðri og fullkomnari eldunartæki, kæliskápa, uppþvottavélar,
þvottavélar og annan slíkan búnað sem létt hefur heimilisstörfin til muna.
Rannsóknir og menntun
Á ári hverju er verulegum upphæðum varið til rannsókna sem skapa nýja þekkingu og fram-
leiðsluvörur. Á árinu 1998 var t.d. um 10 milljörðum þýskra marka varið til rannsókna og
nýsköpunar. Siemens er einnig virkur þátttakandi í grunnmenntun og símenntun á
tæknisviði. Nú eru um 5000 námsmenn í tímabundnum stöðum hjá fyrirtækinu og meira en