Verktækni - 15.08.1991, Síða 9
aðstæður til olíumyndunar. Við leit-
urn engu að síður og dæmi um það er
núverandi rannsókn á uppruna olíu-
gassins sem fundist hefur í Öxarfirði.
^ar er nú verið að bora í sandana og
t>®r boranir komu einfaldlega til
Vegna gass sem gæti gefið til kynna að
°'ía væri á svæðinu. Gasið er að vísu í
nrjög litlum mæli en samt nóg til þess
að ástæða sé til að kanna málið nán-
ar- “ Karl segir að á söndunum í Öxar-
firði sé háhitakerfi í jörðu og hugsan-
^ega sé að hitinn þar nægjanlegur til
að skapa skilyrði fyrir efnabreytingum
er leiða til olíumyndunar. Ekki vildi
Karl tj á sig um hve líklegt sé að olíu
gæti verið að finna í Öxarfirði en um
nriðjan október kom fram í einu dag-
t'laðanna að ætlunin sé að bora um
700 metra djúpa holu sem síðan á að
fóðra. Það kom einnig fram að óvíst sé
Urn framvindu þessa verkefnis þar sem
fjárveiting til þess sé nánast uppurin.
Sýni úr borkjarnanum hafa verið send
hl Danmerkur og er fyrstu niðurstaðna
að vænta í nóvember.
Eitt stærsta verkefni Karls og sam-
starfsmanna hans á sviði olíuleitar til
þessa hefur verið rannsókn á land-
gfunninu umhverfis Island. Hann seg-
lr að í ljós hafi komið að um meiri
setlög sé að ræða þar en á landi. „At-
hygli okkar hefur einkum beinst að
svæðinu fyrir norðan Eyjafjörð, þ.e.
Eyjafjarðarál og Grímseyjargrunni.
t’ar hafa fundist setlög sem eru allt að
fjögurra kílómetra þykk en það er
veruleg stærð á sviði olíuleitar. Við
höfum reynt að kortlegga þetta svæði.
Jafnframt hefur verið borað í Flatey á
Skjálfanda ofan í þessi setlög. Ekki
hefur verið borað ýkja djúpt en niður-
stöðurnar hafa hins vegar verið þann-
lg að við höfum ekki talið ástæðu til
að fara út í frekari stórframkvæmdir
við olíuleit á svæðinu. Það er ýmislegt
sem bendir til þess að þar séu ekki
°líuuppsprettur, það er að segja jarð-
Jðg sem geta myndað olíu. Það er mik-
11 jarðskjálftavirkni á þessu svæði,
tttikil brotavirkni, sem gæti hindrað
samsöfnun olíu. Jafnframt ber að geta
bess að jarðlögin á svæðinu eru mjög
Ung og að skammur tími hefur verið
fytir olíu að myndast þar. Flest bendir
Þ1 þess að það sé mjög ólíklegt að
þarna sé um eitthvert verulegt magn
af olíu að ræða. “
En hvert beina jarðeðlisfræðingar í
olíuleit nú athygli sinni? Karl segir að
svæðið við Eyjafjarðarál sé svokallað
nærsvæði en bætir við að athygli ís-
lenskra vísindamanna hafi ekki síður
verið á svæðum sem liggja fjær Iand-
inu, t.d. svæðinu á milli Islands og
Jan Mayen og einnig Hatton-Rockall
svæðinu. „Athuganir á þessum svæð-
um hafa verið langstærsta verkefni
okkar hingað til. Raunar voru rann-
sóknirnar á Hatton-Rockall svæðinu
mun stærra verkefni fyrir okkur en Jan
Mayen rannsóknirnar vegna þess að
við unnum meiri hluta úrvinnslu Hat-
ton-Rockall rannsóknanna sjálfir en í
samvinnu við Norðmenn að rann-
sóknunum við Jan Mayen.“
JHO JEÐ9000KG
91010021 ÓO
Það kemur fram í máli Karls að Hat-
ton-Rockall svæðið sé mjög sérstakt.
„Það er á milli íslands, Færeyja, ír-
lands og Bretlands og meirihluti
svæðisins er fyrir utan 200 mílna efna-
hagslögsögu fyrrgreindra ríkja. Það er
punktur þarna sem er jafnlangt frá öll-
um löndunum, sem við höfum nefnt,
og einnig mjög langt frá ströndum
þeirra allra. Þessi lönd gera kröfur um
fullan rétt til svæðisins. Þetta er, eins
og allir vita, óumsamið mál og reyndar
mjög viðkvæmt. Danir og íslendingar
hafa í sameiningu rannsakað Hatton-
Rockall svæðið. Það var árið 1987 og
þá voru framkvæmdar endurkasts-
mælingar til þess að finna setlög og
kortleggja þau. Þetta var kostnaðar-
samt verkefni og notuð var nýjasta og
fullkomnasta tækni sem völ var á.
Sjávardýpi er mikið á svæðinu milli Jan Mayen og íslands. Punktalínan sýnir
möguleg mörk meginlandsskorpunnar sem myndar þetta svæði.
VERKTÆK.N1 9