Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 14
Runólfur Þórðarson verkfræðingur hjá Áburðarverksmiðju ríkisins. (Mynd:
Hreinn Hreinsson.)
Runólfur hefur mikinn áhuga á því
að gera tilraunir með vetnisbíl. „Við
höfum gælt við þá hugmynd að kaupa
vetnisbíl sem gengi á milli Reykjavík-
ur og skrifstofunnar hér. Ég tek það
fram að þetta er aðeins hugmynd. Við
höfum athugað með kaup á svona bíl
en þeir eru ekki verslunarvara ennþá.
Við höfum rætt lítillega við umboðs-
mann Mercedes Benz hér á landi og
beðið hann að athuga hvort mögulegt
er að kaupa vetnisbíl frá Daimler-
Benz. Ég tel mjög mikilvægt fyrir okk-
ur að fá praktíska reynslu af þvf að reka
svona bifreið og eldsneytið framleið-
um við hér í Gufunesi," sagði Runólf-
ur.
VETNISVÆÐING
ÍSLENSKA
FISKISKIPAFLOTANS
Bragi Arnason, prófessor við Verk-
og raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands, hefur athugað ýmsa möguleika í
sambandi við vetnisframleiðslu á ís-
landi. Ein hugmynd Braga er að reisa
nokkrar tiltölulega litlar vetnis'
verksmiðjur víðsvegar á landinu.
Markmiðið er að vetnisvæða íslenska
fiskiskipaflotann. Olíunotkun fiski-
skipaflotans var 232.000 tonn árið
1990. Til að framleiða vetni sem
kæmi í stað þessarar olíu þyrfti að
byggja verksmiðju sem framleiddi um
62.000 tonn af vetni á ári. I það þyrfti
400 MW vetnisverksmiðju.
„Hagkvæmni stærðar er mjög lítil í
vetnisframleiðslu. Því er alveg eins
hægt að byggja nokkrar litlar vetnis-
verksmiðjur í staðinn fyrir eina stóra,
til dæmis tíu 40 MW verksmiðjur sem
keyrðu á fullum afköstum allan sólar-
hringinn. Einnig væri hægt að byggja
tíu 80 MW verksmiðjur sem væru ein-
ungis keyrðar á næturafmagni. Það
gæti skapað verulega atvinnu úti á
landsbyggðinni því hver vetnisverk-
smiðja þyrfti um 80 starfsmenn."
Bragi segir að ódýrast væri að nota
vetnisgas bundið í málmsvömpum um
borð í skipunum. „Vetnið er síðan los-
að úr málminum með afgashita frá vél-
inni. Þessi varmi fer allur til ónýtis
núna, en ef flotinn væri vetnisvæddur
þá væri hægt að nýta hann. Þegar
skipin kæmu í höfn og farið væri að
fylla þau með vetni myndi þessi sami
varmi losna. Og þá þyrfti að taka hann
í burtu. Mögulegt væri að taka þenn-
an varma í land sem 70 gráðu heitt
vatn. Þannig væri hægt að nýta helnv
inginn af þeim varma sem tapast úti á
sjó fyrir hitaveitur í landi. Ég hef
reiknað út hvað þetta væri mikil orka
og útkoman er sú að allur fiskiskipa-
flotinn geti skilað í land orku sem
nemur fjórðungi af orkunotkun Hita-
veitu Reykjavíkur þannig að þetta er
óskaplegt magn.“
— Hversu raunhæf er þessi hug-
mynd? Eru þegar til vélar sem eru
keyrðar með vetni?
„Daimler-Benz hefur í nokkur ár
keyrt stóran bílaflota á vetni, sem er
geyrnt í bílunum bundið í málm-
svömpum. Árið 1989 hafði þessi bíla-
floti keyrt alls 670.000 km á vetni.
Brennsla vetnis í þotuhreyflum hefur
einnig verið reynd. Vetni er eitt al-
besta eldsneyti sem til er fyrir þotu-
hreyfla. Sem stendur eru sérfræðingar
Airbus-verksmiðjanna að huga að því
að breyta venjulegri farþegaþotu
þannig að hún geti flogið fyrir vetni.
Ef ákvörðun verður tekin um að gera
þessar breytingar mun henni líklega
verða flogið árið 1996. Það sem ræður
úrslitum um það hvort vetnisþotur
munu fljúga í framtíðinni er eldsneyt-
isverðið. Verði vetni hagkvæmara en
annað eldsneyti þá verða smíðaðar
vetnisþotur. Hvað varðar skipsvélar
þá hefur brennsla vetnis ekki verið
prófuð fyrr en á þessu ári. Ég hygg að
ástæðan fyrir því sé sú að orkunotkun
skipa er aðeins lítill hluti af orkunotk-
un heimsins. Nú er fyrirtækið Blohm
+ Voss AG í Þýskalandi að gera til-
raun þar sem stór skipsvél er knúin
vetni og að því er ég best veit gengur
sú tilraun ágætlega. Þessar niðurstöð-
ur eru mjög áhugaverðar fyrir okkur
Islendinga því ef til þess kæmi að við
gætum vetnisvætt skipaflotann, þá
gætum við framleitt allt eldsneytið
sem til þarf með endurnýjanlegum
innlendum orkugjöfum.
VETNISFRAMLEIÐSLA í
STÓRUM STÍLINNAN
SEILINGAR
I skipum yrði vetnið líklega geymt
sem gas bundið í málmsvömpum frek-
ar en fljótandi vetni. Vetnisgas er
mun ódýrara en fljótandi vetni og auk
þess eru málmsvampar mjög öruggir
eldsneytisgeymar, miklu öruggari en
bensíngeymar til dæmis. Málm-
svampar eru hins vegar þyngri en
14 VERKTÆKNI