Verktækni - 15.08.1991, Side 15
^ Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi hefur verið framleitt vetni í 40 ár með rafgreiningu. (Mynd: Kristján Einarsson.)
hefðbundnir eldsneytisgeymar. En
fyrst hægt er að nota þá til að geyma
Vetni í bílum þá ætti ekki að vera
vandamál að nota þá í skipum."
— Hvers vegna er það ekki gert/
»Vegna þess að vetni er ennþá 2.5
Slrmum dýrara en olían á heimsmark-
aðsverði. Þá er gert ráð fyrir því að
raforka til að framleiða vetnið kosti 18
rnills/KWh Það vita hins vegar allir að
°lían á eftir að hækka. Reiknað er
rneð að tunnan muni kosta 30 dollara
urn aldamótin. Það þýðir að hún verð-
ur tvöfalt dýrari en núna. Ofan á þetta
Verð bætist líklega mengunarskattur
sern gæti numið 10 dollurum á tunnu.
Það er því aðeins orðin spurning um
tnria hvenær vetnisiðnaður í stórum
stíl fer af stað.“
Að sögn Braga hefur Raunvísinda-
stofnun Háskóla íslands verið að
skoða möguleika á því að nýta jarðhita
1 vetnisframleiðslu. Fyrirtækin Lurgi,
Dornier og Robert Bosch hafa verið að
Prófa nýja gerð rafgreina sem vinna
V'ðhátthitastig, 800-1000°C, oghafa
^engið nafnið „Hot Elly“. Þessir raf-
§reinar taka inn á sig 200°C heita gufu
f stað vatns, en slíka gufu mætti fá úr
háhitasvæðum landsins. 1 Hot Elly
rafgreinum verður orkunýtnin mun
betri en í hefðbundnum rafgreinum
auk þess sem hluti orkunnar getur
verið jarðhiti. Hefðhundnir rafgreinar
þurfa 4,6 kílówattstundir af raforku til
að framleiða hvern rúmmetra af vetni.
„Hot Elly“ rafgreinar þurfa hins vegar
3,2 kílówattstundir af raforku og að
auki 0,6 kílówattstundir af varmaorku
til að framleiða hvern rúmmetra af
vetni. Eina vandamálið er að „Hot
Elly“ rafgreinar eru ennþá ekki fram-
leiddir nógu stórir, þ.e. í megawatt-
astærðum. „Ef að því kemur,“ segir
Bragi, „er vel hugsanlegt að með notk-
un jarðhita gætum við lækkað fram-
leiðslukostnað vetnis um 25—30% frá
því sem nú er.“
Hann segir að forathuganir Raun-
vísindastofnunar hafi leitt í ljós að ls-
lendingar gætu í framtíðinni boðið
Þjóðverjum vetni á 15% lægra verði
en Kanadamenn. Er þá gert ráð fyrir
að hefðbundin rafgreining sé notuð
við framleiðsluna á báðum stöðum.
Lækkun verðsins yrði vegna minni
flutningS' og geymslukostnaðar.
— En er næg raforka til í landinu
svo hægt sé að hefja vetnisframleiðslu
í stórum stíl?
„Nei, ekki virkjuð raforka. En það
er talið að hægt sé að virkja 3500 MW
og þá er allur jarðhitinn eftir. Við
höfum nú þegar aðeins virkjað um 12-
15% af vatnsaflinu og um 6% af jarð-
hitanum. Þetta eru grófar tölur.“
— Þýðir þetta að við gætum franv
leitt vetni í stórum stíl til útflutnings?
„Möguleikarnir eru mjög miklir ef
miðað er við innlendan mælikvarða.
En útflutningur Islendinga á vetni
yrði aldrei meiri en dropi í hafið miðað
við orkuþörf Evrópu. Það stefnir hins
vegar allt í þá átt að vetni verði mikil-
vægur þáttur í orkunotkun heimsins á
áratugunum eftir aldamótin og ef við
ætlum okkur að eiga hlutdeild í vetn-
isiðnaðinum þá verðum við að byrja
að undirbúa okkur. Það tekur tíu ár að
virkja þúsund megawött. Þetta er ekki
jafn auðvelt og að byggja súrheys-
gryfju."
VERKTÆKNI 15