Verktækni - 15.08.1991, Page 19
ÍSICNSKA AVCirSINCASCOCAN Hf.
ur, sem höfðu reynslu á þessu sviði,
stofnuðu þá Virki hf. árið 1969. Sext-
án árum síðar, 1985, var stofnað fyrir-
tækið Orkustofnun erlendis hf., eða
Orkint, í þeim tilgangi að markaðs-
setja þekkingu og reynslu Orkustofn-
unar á erlendum vettvangi. Orkint
gerðist síðan hluthafi í Virki sem eftir
það hlaut nafnið Virkir-Orkint hf.“
mikil þörf fyrir
RAðgjöf í austur-
hvrópu
Verkefni Virkis-Orkint hafa verið
víða um heim og oft í fjarlægum lönd-
um. Má þar nefna verkefni í Kenýa og
Djibouti í Austur'Afríku sem miðuðu
að því að nýta jarðgufu til raforku-
vinnslu. En aðspurður um þau verk-
efni sem fyrirtækið hefur unnið að
undanfarið segir Guðmundur að í
seinni tíð hafi menn litið í auknum
mæli til Austur-Evrópu. „Ástæðan er
sú að þarer talsverður jarðhiti, lághiti
í flestum tilvikum, og þar er mikil þörf
fyrir ráðgjöf. Sérstaklega þurfa þessi
ríki aðstoð við að innleiða hjá sér vest-
ræna tækni og tæknihúnað til nýting-
ar á jarðhitanum." I Ungverjalandi
var stofnað sameiginlegt fyrirtæki
Virkis-Orkints og heimamanna á síð-
asta ári og á vegum þess voru gerðar
forathuganir á byggingu, og í vissum
tilvikum endurbyggingu, hitaveitna í
nokkrum bæjum. Líkur eru á því að
ráðist verði í eitt af þessum hitaveitu-
verkefnum seint á þessu ári eða
snemma á því næsta að sögn Guð-
mundar og mun Virkir-Orkint tengj-
ast því. Þá hefur verið unnið að sams
konar forathugun í Tékkóslóvakíu.
Einnig hafa verið kannaðir möguleik-
arnir á samstarfi við Sovétmenn.
„Fyrir rúmu ári fórum við til Austur-
Síberíu og Kamtsjatka. Á Kamtjsatka-
skaganum er mikill jarðhiti en nýting
hans er skammt á veg komin. Þar hafa
þó verið boraðar margar gufuholur á
svæði þar sem hugmyndin er að byggja
100 til 200 MW jarðgufuvirkjun. Það
hefur talsvert verið rætt um hvort við
gætum eitthvað aðstoðað við þá frarn-
kvæmd. En það er ekki bara raforku-
vinnsla sem er áhugaverð þar því
heimamenn þurfa einnig á hitaveitu
að halda. Það er nokkurn veginn búið
að ganga frá einu verkefni þar sem
unnið verður að á næstunni og felur í
sér forathugun á hitaveitu fyrir Elizo-
vo, sem er bæjarfélag í nágrenni við
höfuðborgina Petropavlosk. Gengið
var frá þeim samningi efnislega í
Moskvu nú í haust.
Annað svæði er einnig mjög áhuga-
vert í Sovétríkjunum — í norðurhluta
FRÁBÆR ÞAKDÚKUR
FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA
Reykjavikurvegi 60. 222 Hafnarfjörður,
Simi: 91-54644, Fax: 54959
BYGGÐAVERK HF.
Margir húseigendur þekkja það af sárri og kostnaðarsamri reynslu að vatn er oft
til vandræða.
SIKA PVC þakdúkarnir eru varanleg vatnsvörn á svalir og þök. Öll samskeyti eru
soðin saman og vatnið á enga leið í gegnum dúkinn sem er níðsterkur og
algerlega viðhaldsfrír. SIKA þakdúk má leggja allt árið um kring og
sjá sérmenntaðir starfsmenn okkar um að leggja allan dúk
sem við seljum. Það ásamt obilandi trú okkar á
gæðum SIKA þakdúkanna gerir okkur kleift
að bjóða 15 ára ábyrgð á efni og vinnu.
Komdu eða hringdu og fáðu nánari
upplýsingar um SIKA þakdúkana. Við
gerum föst verðtilboð kaupendum að
kostnaðarlausu.
Áratuga reynsla og 15 ára ábyrgð á
efni og vinnu tryggja að þegar þú
reiknar dæmið til enda er SIKA
hagkvæmasti kosturinn.
VERKTÆKNI 19