Verktækni - 15.08.1991, Side 20
Frá Mutnovski háhitasvæðinu að sumarlagi. Það er í um 1.000 m hæð yfir sjó.
Kákasus nánar tiltekið — og mikill
áhugi heimamanna á samstarfi við
okkur. Þar eru gamlar og þurrausnar
olíulindir en í jarðlögunum er mikið
eftir af 90 til 100 gráðu heitu og til-
tölulega góðu vatni. Þeir hafa mikinn
áhuga á því að nýta þetta vatn, bæði
til upphitunar húsa og eins til gróður-
húsaræktunar, sem er þar mikil. Það
er aðallega í tengslum við húshitunina
sem við kæmum til sögunnar.
Þetta er það helsta sem hefur verið á
döfinni hjá okkur undanfarið en ýmis-
legt fleira er í athugun."
FLEIRI TÆKIFÆRI -
AUKNIR
TEKJUMÖGULEIKAR
— Að hve miklu leyti veitið þið
hjá Virki-Orkint ráðgjöf og að hve
miklu leyti eruð þið verktakar?
„Fram að þessu höfum við fyrst og
fremst veitt tækniráðgjöf. Hins vegar
hefur það komið mjög skýrt í ljós í
viðræðum við marga aðila, sem við
höfum haft samskipti við, að þeir vilja
og þurfa það sem kalla má heildar-
lausnir, sem fela í sér ráðgjöf, hönnun
og byggingu mannvirkja. Þetta er eitt
af því sem verið hefur til umræðu ný-
verið á vettvangi Virkis-Orkints og
mér sýnist að sú stefna verði tekin að
fyrirtækið fari út í það að taka slíkar
heildarlausnir að sér. En þá þarf að fá
fleiri aðila hér á landi til samstarfs.
Það er ljóst að ef ráðist verður í þetta
þá er verið að tala um fleiri tækifæri
og aukna tekjumöguleika en jafnframt
meiri áhættu.“
Nú, þegar samið hefur verið um
sameiginlegt evrópskt efnahagsvæði,
vaknar sú spurning hvort ekki opnist
nýir möguleikar fyrir Virki-Orkint.
„Við veltum því mikið fyrir okkur um
tíma að reyna að komast inn á markað
Evrópubandalagsins þannig að við
gætum haft þar aðgang að verkefnum
og sjóðum sem bundin voru við
Evrópubandalagslöndin. Á síðasta ári
og fram á þetta ár vorum við í viðræð-
um um að kaupa jarðhitafyrirtæki í
austurhluta Þýskalands í þessu skyni
og samningar þar að lútandi voru
nokkuð langt komnir. En svo þróuð-
ust málin á annan veg og okkur fannst
seinagangurinn of mikill. Við konv
Guðmundur Pálmason, forstjóri Jarð-
hitadeildar Orkustofnunar. (Mynd:
Kristján Einarsson).
umst því að þeirri niðurstöðu að rétt
væri að hætta við kaupin. En með
samningnum um EES opnast ýmsir
möguleikar fyrir okkur, sem við ekki
höfðum áður, á að komast inn á Evr-
ópumarkaðinn. En það má líka snúa
dæminu við því það er hugsanlegt að
við fáum aukna samkeppni hér á landi
frá fyrirtækjum á Ítalíu, Frakklandi og
jafnvel víðar að sem geta boðið þjón-
ustu sína á sviði jarðhita hér á landi.
Eg held hins vegar að við séum ekkert
illa undir slíka samkeppni húin og
þurfum ekki að óttast hana sérstak-
lega.“
VÆNLEGUR
ÚTFLUTNIN GUR
— Sjá menn fyrir sér að þessi starf-
semi geti orðið umtalsverður útflutn-
ingsatvinnuvegur?
„Ég veit nú ekki hversu stórt þetta
getur orðið á þjóðarvísu. En við erum
auðvitað að þessu vegna þess að við
höfum trú á að þetta geti orðið væn-
legur útflutningur. Ástæðan fyrir því
er auðvitað sú að hér á landi er að
finna þekkingu og mikla reynslu á
þessu sviði. Þannig að við höfum góð-
an grunn til að byggja á.“ Guðmundur
segir að töluverð samkeppni sé á þess-
um markaði. „Við erum að keppa við
fyrirtæki frá löndum eins og Nýja-Sjá-
landi, Italíu, Frakklandi og Banda-
ríkjunum. En heimurinn er stór og
það eru margir sem þurfa á þessari
þjónustu að halda þannig að ég held
að það sé pláss fyrir þó nokkuð mörg
fyrirtæki.
Eitt er þó rétt að hafa mjög í huga.
Áhugi á nýtingu jarðhita fer ákaflega
mikið eftir heimsmarkaðsverði á olíu.
Þegar olíukreppurnar gengu yfir var
áhuginn sérstaklega mikill um allan
heim en það dró úr honum þegar olíu-
verðið lækkaði aftur. Þetta er eðlilegt
Framh. bls. 55
20 VERKTÆKNI