Verktækni - 15.08.1991, Page 22
Rafmagnsbíllinn sem Gísli Jónsson prófessor prófaði fyrir Háskóla íslands. Að
sögn Gísla var mjög gott að aka bílnum í snjó.
um að vera útblásturslausir bílar. Raf-
bíllinn er ekki lengur aðeins á teikni-
borðinu. Flestir bílaframleiðendur
hafa hannað rafbíla og næsta skrefið
er að fjöldaframleiða þá.
Ymislegt annað hefur einnig verið
prófað til að knýja áfram bifreiðar, t.
d. vetni, metanól og gas svo eitthvað
sé nefnt. Allt bendir þó til þess að
raforkan verði ofan á sem orkugjafi
fyrir bíla framtíðarinnar.
FYRSTI RAFBÍLLINN Á
ÍSLANDI
Sá sem mest veit um þróun rafbíla á
Islandi er Gísli Jónsson, prófessor í
Háskóla íslands. í september árið
1979 keypti Háskóli íslands rafmagns-
knúinn bíl að frumkvæði Gísla. Bílb
inn var af Subaru 500 gerð, búinn 16
blýgeymum sem vógu 435 kg. Hann
var keyptur tilbúinn frá Texas og var
kallaður Electra Van 500 eftir að hon-
um hafði verið breytt í rafbíl.
„Með því að kaupa þennan bíl vild-
um við finna út hvernig rafmagnsbíll á
að vera svo hann henti íslenskum að-
stæðum,“ segir Gísli. „Við prófuðum
hann og það kom heilmikið út úr
þeirri tilraun. Helsti gallinn var sá að
bíllinn var ekki byggður fyrir mikinn
kulda. Ef blýgeymar kólna mikið þá
fæst minni orka út úr þeim. Það var
einnig galli að hleðslutækið í honum
var laust en það hefði þurft að vera
22 VERKTÆKNl