Verktækni - 15.08.1991, Blaðsíða 26
Stórátak í nvtingu
— viðtal við Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
Yfirskrift „Hvítu bókarinnar“
svokölluðu, sem hefur að geyma
stefnu og starfsáætlun ríkisstjórn-
arinnar, er „Velferð á varanlegum
grunni“. Þar segir að nýting orku-
linda landsins sé grundvöllur
framfara og þá væntalega sá
grunnur sem velferðin muni
byggja á. En hvernig er best að
nýta orkulindirnar? Hver eru
næstu skref? Hver er framtíðar-
sýnin? Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra ræðir þau mál í viðtali við
VERKTÆKNI.
Jón var fyrst beðinn um að gera
grein fyrir stefnu ríkisstjórnarinnar
varðandi nýtingu orkuauðlinda ís-
lands.
„Það er stefna ríkisstjórnarinnar að
freista þess með öllum ráðum að rjúfa
þá kyrrstöðu sem því miður hefur orð-
ið í íslensku atvinnulífi á undanförn-
um árum. Eitt af því sem við blasir að
brýnast sé að gera er nýtt stórátak í
nýtingu orkulindanna. Til þess að
koma þeim í verð er enginn vafi á því
að við þurfum að leita eftir samning-
um um orkufreka stóriðju og freista
þess að byggja upp orkufrekan iðnað
víða á landinu. Við þurfum að halda
áfram athugunum á útflutningi raf-
orku um sæstreng og við þurfum að
huga að framleiðslu vetnis sem orku-
bera. Hvort tveggja krefst samstarfs
við erlenda aðila eins og reyndar upp-
bygging á orkufrekum iðnaði. Kjarni
málsins er sá að við eigum miklar ork-
ulindir ónýttar. Við höfum ekki nýtt
nema um tíunda hluta þess sem í þeim
býr. Til þess að njóta afraksturs af
þessum náttúruauði þurfum við að
taka skipulega á málum. Fyrsta stóra
málið er að sjálfsögðu að ljúka samn-
ingum um álver á Keilisnesi og á því
eru nú góðar horfur.
Þetta er í stuttu máli meginstefnan í
orkumálum; að láta ekki árnar renna
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra.
(Mynd: Tíminn.)
arðlausar til sjávar öllu lengur, að rjúfa
kyrrstöðuna í íslensku atvinnulífi og
binda endi á það langa hlé sem hefur
orðið í stórvirkjunum með tryggða
sölu fyrir orkuna. Fimmtán ár eru liðin
frá því samningurinn var gerður um
Grundartangaverksmiðjuna og meira
en tuttugu ár frá því Alverið í Straum-
svík tók til starfa. Þótt það sé að vísu
rétt að það taki langan tíma að ná
samningum um þessi stóru verkefni þá
er þetta allt of hægur taktur.“
ÍSLAND HEFUR
ÓTVÍRÆÐA
STAÐARKOSTI FYRIR
ÁLFRAMLEIÐSLU
— N ú eru ýmsar blikur á lofti varð-
andi samningana við Atlantsál-hóp-
inn og ýmsir halda því fram að það
verði ekkert af áformum um að reisa
álver á Keilisnesi. Sovétríkin dæla áli
á markaðinn, það stefnir í eins millj'
arðs króna tap ÍSALS á þessu ári, áb
verð er í lágmarki og fátt sem bendir til
þess að það hækki á næstunni. Verður
af samningum í ljósi þessa?
26 VERKTÆKNI