Verktækni - 15.08.1991, Síða 28
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. (Mynd: Tíminn.)
hagstæð vegna þess að lægð er í fram-
kvæmdum víða um lönd.“
ER KRAFIST
FULLKOMINNA
MENGUNARVARNA í
SAMNINGUM UM
ÁLVER Á KEILISNESI?
— Kristín Einarsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, heldur því fram í við-
tali við VERKTÆKNI að ekki sé kraf-
ist fullkominna mengunarvarna í
samningunum við Atlantsáhhópinn.
Hverju svarar þú þeirri fullyrðingu?
„Ég get ekki sagt neitt annað um
hana en að hún er röng og hún styðst
ekki við rök. Ef bornar eru saman
kröfur varðandi útblástursloft frá ker-
skála í nýjustu norsku starfsleyfunum
— en Norðmenn eru nú taldir gera
mjög strangar kröfur — þá liggur ís-
lenska krafan, sem er um hámark 0,75
kíló af flúoríði á hvert tonn af franv
leiddu áli, alveg um miðjan flokk
nýrra leyfa. Þessi leyfi eru yfirleitt á
bilinu frá 0,7 og upp í 0,9 kílo af
flúoríði á tonn sem hefur verið talið
viðsjárverðasta efnið. Þetta á sér líka
hliðstæðu í mjög mörgum öðrum
löndum þar sem mörk fyrir leyfilega
mengun frá nýjum álverum eru víðast
hvar á bilinu 0,7 og upp í 1,0 kíló
flúoríðs á hvert tonn af áli. Við krefj-
umst því fullkominna mengunar-
varna.
Ég vil líka láta þess getið að miðað
við þessa kröfu um hámark 0,75 kíló af
flúríði verður raunveruleg útkoma
mun lægri. Til þess að fyrirtæki geti
verið viss um að mengun haldist inn-
an þessara marka þá verða þau að vera
með hreinsiverkið stillt þannig að
mengunin verði jafnan minni en felst
í þessum tölum. Það má líka glöggt sjá
í þeim álverum, sem mæta slíkum
kröfum, að niðurstaðan verður veru-
lega innan þessara marka.
Hvað brennisteinstvíildi varðar er
ekki gert ráð fyrir vothreinsun í starfs-
leyfinu heldur eingöngu þurrhreins-
un. Vothreinsun myndi fyrst og fremst
hafa það í för með sér að brennisteins-
tvíildi félli miklu fyrr í sjó en það gerir
ef um þurrhreinsun er að ræða. Það er
líka rétt að benda á að brennisteins-
tvíildi er ekki talið í flokki þeirra gas-
tegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum
á jörðinni. Það er fyrst og fremst
spurning um staðbundin áhrif af
brenn i steinsmengun.
Það verður að skoða reglurnar sem
álveri hér á landi eru settar að þessu
leyti í ljósi aðstæðna. í löndum, þar
sem mikil mengun er fyrir og aðal-
eldsneyti er kannski brennisteinssúrt
jarðeldsneyti, víkur allt öðru við en
hér, þar sem að mestu er notuð meng-
unarfrí raforka og jarðvarmi. Þannig
er skynsamlega á þessu máli haldið í
starfsleyfinu og fyllstu krafna gætt
miðað við aðstæður hér á landi.“
28 VERKTÆKNI