Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 44
1
skólinn býður. „Við setjum okkur inn
í orkumál viðkomandi landa, athug-
um hvaða möguleika jarðhiti hefur
sem orkulind í landinu, við heimsækj-
um jarðhitasvæðin, sem verið er að
vinna á, í það og það skiptið, og við
heimsækjum rannsóknastofnanir og
skylda aðila. Þannig reynum við að
meta hvers konar þjálfun viðkomandi
landi kemur best. Sérfræðiþörf landa
er mjög mismunandi og við reynum að
sérhæfa fólk í flestum, ef ekki öllum,
vísindalegum sviðum innan jarðhita-
fræðinnar. Reyndar má segja að oft sé
námið hjá okkur skraddarasaumað að
þörfum landanna." Ingvar segir að
þegar upplýsingaöflun sé lokið ásamt
viðtölum við umsækjendur séu þeir
síðan valdir. „Við erum með topp-
menn í námi hér. Kennslan fer öll
fram á ensku og verða þeir að tala það
tungumál reiprennandi.“
Námið sjálft er, eins og fram kemur
í máli Ingvars, mjög sérhæft en jafn-
framt fjölbreytt. „Við nýtum alla þá
sérþekkingu sem við getum náð í hér
og síðan koma gestafyrirlesarar frá
öðrum löndum. Yfirleitt er hver kenn-
ari, sem er sérfræðingur á sínu sviði,
með tvo til þrjá nemendur í einu.“
— Hafið þið samband víð nem-
endurna sem stundað hafa nám við
Jarðhitaskólann?
Ingvar brosir í kampinn og segir að
það sé skemmtileg staðreynd að þó svo
að skólinn sé tiltölulega ungur að ár-
um sé önnur kynslóðin komin til
náms. „Við höldum sambandi við fyrri
nemendur okkar og nú eru nemendur
þeirra að koma til okkar að taka upp
þráðinn þar sem kennarar þeirra
slepptu honum. Markmið skólans er
að hjálpa jarðhitalöndum að koma sér
upp hópum fólks með sérhæfingu í
úrvinnslu jarðvarma frá grunni. Þetta
er þróunarstarf og við fylgjumst með
því hvernig starfið gengur þegar heim
er komið. Oft eru fleiri en einn og
tveir nemendur frá sama landi í námi
hjá okkur og það er vegna þess að við
leggjum áherslu á að hjálpa vikom-
andi löndum að verða sjálfbjarga á
þessu sviði. Við fylgjum nemendum
okkar eftir með heimsóknum, bréfa-
skriftum og síðast en ekki síst með því
að senda þeim rannsóknaskýrslur
jöfnum höndum.“
Að lokum spyrjum við Ingvar
hvernig þessi kynning eða útflutning-
ur á íslenskri sérþekkingu komi Islandi
til góða. Hann ítrekar að skólinn sé
fyrst og fremst þróunaraðstoð en auð-
vitað sé þetta jafnframt mikilvæg
kynning á íslenskri sérþekkingu. „Eins
og ég sagði áður þá er skólinn mjög
eftirsóttur og nemendur hans verða
oftast leiðandi sérfræðingar á sínu
sviði í heimalöndum sínum. Slikt
hlýtur að vera ómetanlegt fyrir ísland,
sérstaklega með tilliti til þess að hóp-
urinn, sem lýkur námi hjá okkur,
stækkar sífellt. Spurningin er hins
vegar hvernig við íslendingar nýtum ,
okkur síðan þessa kynningu á sérþekk-
ingu okkar. Það er svo önnur saga. “
I--------------------------1 *
Alþjóðleg
ráðstefna í
Reykjavík
Alþjóðleg ráðstefna um
nýtingu jarðhita í iðnaði
verður haldin í Reykjavík,
2.-4. september á næsta ári,
undir yfirskriftinni „Hrein
orka fyrir framtíðina“. Það
er Félag íslenskra iðnrek'
enda sem býður til ráðstefn-
unnar í samstarfi við ýmsa
innlenda og erlenda aðila.
Fjallað verður m.a. um
tæknileg einkenni jarðhita-
svæða, umhverfisþætti, nýt-
ingu jarðvarmaorku í iðnaði
og framtíðarmöguleika á því
sviði og hagræna þætti sem
snerta nýtingu jarðhita.
FROSTVORIM A VATNSINNTÖK !
Notkun á sjálfhitastillandi rafhitastreng kemur í veg fyrir að vatnsinntakið frjósi. Slíkur
strengur hitnar sjálfkrafa þegar kólnar í veðri. —-
Engin stýritæki nauðsynleg. Rafhitastrengir
eru einnig notaðir í þakniðurföll, rennur og
víðar. Strengirnir eru samþykktir af RER.
Útsölustaðir BYKO, Kópavogi
BYKO, Hafnarfirði
GLÓEY, Ármúla
RAFVÖRUR, Langholtsvegi
PR. BÚÐIN., Kópavogi
RAFDEILD KEA, Akureyri
44 VERKTÆKNI