Verktækni - 15.08.1991, Side 50

Verktækni - 15.08.1991, Side 50
Baldur Líndal: Hveravatn INNGANGUR Á árunum 1987-88 gerði höíundur nokkrar athug- anir á þvottaeiginleikum hveravatns hér á iandi. Til- drög voru þau, að tiltæk gögn og reynsla þjóða af hveravatni bentu til þess að þarna væri að finna sér- staka þvottaeiginleika, sem gerðu hin þvegnu efni sérstök í sinni röð. Alkunna er að vatn hvera og annarra heitra linda hefur víðsvegar verið notað til þvotta svo lengi sem sagnir ná til. Nægir þar að minna á okkar eigin fornsögur, þvottalaug- arnar í Reykjavík og hverja athygli þvottar vöktu meðal erlendra ferðalanga fyrr á öldum. Þannig segir á fsland- skorti Guðbrandar Þorlákssonar, frá sextándu öld, og á Islandskorti því sem kennt er við Georgio Carolo frá byrjun sautjándu aldar, til skýringar við Reykjanes: „Fons comm- utans lamas nigras in albas! albas in nigras" þ.e. uppspretta sem breytir hvítri ull í svarta. Ut frá Olfusi segir síðan: „Fons commutans lamas albas in nigras“ þ.e. uppspretta sem breytir svartri ull í hvíta. Þannig er gefið í skyn að hverirnir séu til þess fallnir sérstaklega að lita ullina annars vegar og fá vel hvíta upp hins vegar. Auk nafna eru litlar skýringar á kortum þessum að öðru leyti, nema vitaskuld við Heklu. Þar stendur „mons perpetuo ardeus“ þ.e. fjall eilífra vítiselda, eins og vænta mátti á þessum tíma. f annan stað má benda á reynslu af jarðhitavatni í Kína. í ullarverksmiðju í borginni Tianjin er fullyrt að með þessu vatni náist óhreinindi betur úr efnunum en öðru vatni, bleiking sé betri og teppin séu litfegurri. I hliðstæðri verk- smiðju í Peking er sagt að litun sé varanlegri og betri, bleiking sé meiri og litirnir skærari. Til staðfestingar ár- angri Kínverja í þessu efni má nefna, að kunnugt er að teppi það, sem kínverska þjóðin gaf Sameinuðu þjóðunum og hangir í fordyri húss S.þ. í New York, er meðhöndlað með jarðhitavatni. Þá má nefna að jarðhitasérfræðingar, sem hafa verið við störf í Indonesíu, hafa haft orð á því, að einstæðan árangur mætti fá með þvottum úr jarðhitavatni á því landsvæði. Hliðstæð reynsla erfyrirhendi íTyrklandi. Jarðhitasvæðið í Kizildere í Menderesdalnum í sunnanverðu landinu er vatnsmikið. Þetta vatn þótti svo gott til þvotta, að þaðan hefur verið gerð sjö km löng vatnslögn að vefnaðarverks- miðju í nágrenninu. Er bleiking meiri og litir verða skærari á dúkunum. Verksmiðjur, sem ekki njóta þessa vatns þarna, telja sig ekki geta keppt við þau vörugæði sem nást með þessu vatni. Efnasamsetning vatnsins í Kizildere er okkur vel kunn hér sökum annarra viðfangsefna. Því var hægt að bera það saman við aðstæður hér á landi og í ljós kom að jarðhitaað- stæður í Hveragerði voru ekki ósvipaðar. I Hveragerði var til þvotta rekið þvottahús á stríðsárunum, sem annaðist þvott fyrir herinn, og þegar hér var komið sögu, 1987, hafði Þvotta- húsið Hveralín starfað þar í þrjú ár. Forstöðukona þvotta- hússins, Auður Guðbrandsdóttir, skýrði frá reynslu sinni svofellt: „Þvottahúsið Hveraltn hefir frá upphafi notað hveragufu í þvottavélarnar. Hveragufan er fengin frá sam- eiginlegri gufuveitu á staðnum, sem raunar gefur gufu blandaða nokkru af hveravatni". Aðspurð tjáði forstöðu- konan höf. að þvottur frá sér væri talinn mýkri en áður var, þegar sömu þvottar fóru fram í Reykjavík, og að þvottar væru fallegri (ljósari) hjá sér en hún þekkti til annarsstað- ar, þrátt fyrir minni bleikingu. Sömu sögu væri að segja frá Elliheimilinu í Hveragerði, en það notaði einnig gufu frá hverasvæðinu á sína þvottavél. Nú var ákveðið að kanna þetta mál nánar í þvottahúsinu Hveralín. Guðjón Hjartarson, verksmiðjustjóri á Álafossi, lagði til sýni af óþvegnu prjóni frá verksmiðju sinni. Voru þau annars vegar þvegin í vélunum á venjulegan hátt með hveragufuhituðu vatni og hins vegar úr óblönduðu hvera- vatni. Raunin varð sú að sýnið, sem þvegið var með hvera- vatninu, var bæði áferðarbetra og mýkra. Ástæður þær sem valda vinsældum hveravatns ti 1 þ votta á vefnaðarvöru eru að öllum líkindum fleiri en ein. Augljós er sá ávinningur sem er af hitastigi vatnsins og oft á tíðum yfirfljótandi magni þess miðað við aðstæður. En margt bendir til þess að fleira sé þarna að verki og berast þá böndin að efnainnihaldi hveravatnsins, sem er til muna frábrugðið venjulegu fersku vatni. Varla þarf að taka fram hér, að fyrir hendi er mikill fjöldi efnagreininga á jarðhitavatni svo og öðru vatni, bæði af hérlendum og erlendum uppruna. Hins vegar skortir heim- ildir og prófanir á því hvaða efni í vatninu það eru einkum sem valda umræddum áhrifum. Álitið var að ekki yrði úr því skorið með nokkurri vissu, án þess að gera viðeigandi prófanir. Sú greinargerð sem hér fer á eftir nær til tveggja þátta rannsóknanna sem gerðar voru, þ.e. skýrslu um niðurstöðu handvirkra þvottaprófana á lauga- og hveravatni og niður- stöður verksmiðjuprófana. HANDVIRKAR SAMANBURÐARPRÓFANIR Þróuð var einföld handvirk aðferð, þar sem efnin fengu nákvæmlega sömu meðferð, en vatnstegundin og hin þvegnu efni voru mismunandi. Fyrstu fimm prófanirnar voru gerðar á baðmullarefnum sem óhreinkuð voru með málningardufti. Borinn var sant' an þvottur þveginn með kranavatni frá Hitaveitu Reykja- víkur (1987) og því blönduðu við venjulegt kranavatn 50 VERKTÆKNI

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.