Verktækni - 15.08.1991, Page 52

Verktækni - 15.08.1991, Page 52
^ENDI-NGA' J .T)VN< [ Xs.h.JJ.r * < ikáunpPmM 1K v’v • wl W~ v\.:^ LENlllNGA .-y. rrABULA^ SLANDIAJ Auclorc >orgío Caroloj L. rl .uulio, Jaí .yímf'k í'odiinu Gulí/. Cuf JRlácuw exauítl. .1 IminiF.t y | [W. v • "í •ý._f > } f '*vj X íslandskorti þvísem kennt er við Georgio Carolo frá byrjun sautjándu aldar ergefið ískyn að hverirnir séu til þess fallnit séstaklega að lita ull annars vegar og fá hana vel hvíta hins vegar. eins. Ein tilraun hér miðaðist að því að kanna þetta, með því að borinn var saman þvottur með rafhituðu fersku vatni og fersku vatni sem var hitað með jarðgufuinnspýtingu. Sú gufa innihélt að sjálfsögðu brennisteinsvetni (H2S). Eng- inn mismunur kom fram samkvæmt mælingum á sýnum þeim sem þvegin voru. Þannig berast böndin að kísilinnihaldi vatnsins. Til- raunin sem miðaðist við að kanna þetta, bendir til að beint samband sé milli kísilinnihalds (Si02) vatnsins og ljósend- urkasts sýnanna, innan vissra marka. Þannig sýnir kísila- ukning í fersku vatni um 100 mg/kg (bætt í sem Na2Si03- 5H20) hækkun um 4,2 einingar á þveginni ull, 300 mg/kg aukning 6,9 eininga hækkun og 500 mg/kg aukning 7,4 eininga hækkun. Ávinningur virðist þannig lítill eftir að komið er yfir 300 mg/kg, en mikill innan þeirra marka. Til samanburðar má geta þess að vatn það sem prófað var frá Hitaveitu Reykjavíkur innihélt um 110 mg/kg kísil (Si02) en vatn frá hverasvæði í Hveragerði inniheldur um 300 mg/kg kísil. Kísilinnihald er samt langt frá því að vera einhlítur mælikvarði og um það vitna þær tilraunir hér, sem innifela prófanir á blöndu af hitaveituvatni og fersku vatni. Þar virðist sú regla einhlít, að betri árangur næst með óblönd' uðu ferskvatni til þvotta, en blöndu jarðhitavatns í hlut- föllunum 1:2 sem prófuð voru. Að líkindum stafar þetta af útfellingum, sem verða við blöndum þessara tveggja vatns- tegunda. Svo er að sjá þær rýri árangur þvottar stórlega. VERKSMIÐJUPRÓFANIR Þær handvirku prófanir, sem þegar hefir verið greint frá, varðandi hveravatn í Hveragerði, voru framkvæmdar í Ullarþvottastöðinni í Hveragerði. Samkomulag varð uffl að samsvarandi prófanir væru gerðar í verksmiðjunni sjálfri með fullum afköstum. Við þvott í verksmiðjunni er notað ákveðið magn þvottaefnis og þar að auki ákveðið magn sóta. Sú breyting var gerð að því sem næst 300 mg/1 af kísil (Si02) í formi natríum metasilikats var bætt inn en sótagjöf minnkuð um 25%. Að öðru leyti var allur rekstur hinn sami og áður. Prófanir fóru fram í tvígang, þ.e. hin fyrri 20. okt. 1988 52 VERKTÆKNI

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.