Verktækni - 15.08.1991, Qupperneq 52
^ENDI-NGA' J
.T)VN<
[ Xs.h.JJ.r * <
ikáunpPmM 1K
v’v • wl
W~ v\.:^
LENlllNGA .-y.
rrABULA^
SLANDIAJ
Auclorc
>orgío Caroloj
L. rl .uulio, Jaí
.yímf'k í'odiinu
Gulí/. Cuf JRlácuw exauítl.
.1 IminiF.t y |
[W. v • "í •ý._f
> } f '*vj
X íslandskorti þvísem kennt er við Georgio Carolo frá byrjun sautjándu aldar ergefið ískyn að hverirnir séu til þess fallnit
séstaklega að lita ull annars vegar og fá hana vel hvíta hins vegar.
eins. Ein tilraun hér miðaðist að því að kanna þetta, með
því að borinn var saman þvottur með rafhituðu fersku vatni
og fersku vatni sem var hitað með jarðgufuinnspýtingu. Sú
gufa innihélt að sjálfsögðu brennisteinsvetni (H2S). Eng-
inn mismunur kom fram samkvæmt mælingum á sýnum
þeim sem þvegin voru.
Þannig berast böndin að kísilinnihaldi vatnsins. Til-
raunin sem miðaðist við að kanna þetta, bendir til að beint
samband sé milli kísilinnihalds (Si02) vatnsins og ljósend-
urkasts sýnanna, innan vissra marka. Þannig sýnir kísila-
ukning í fersku vatni um 100 mg/kg (bætt í sem Na2Si03-
5H20) hækkun um 4,2 einingar á þveginni ull, 300 mg/kg
aukning 6,9 eininga hækkun og 500 mg/kg aukning 7,4
eininga hækkun. Ávinningur virðist þannig lítill eftir að
komið er yfir 300 mg/kg, en mikill innan þeirra marka. Til
samanburðar má geta þess að vatn það sem prófað var frá
Hitaveitu Reykjavíkur innihélt um 110 mg/kg kísil (Si02)
en vatn frá hverasvæði í Hveragerði inniheldur um 300
mg/kg kísil.
Kísilinnihald er samt langt frá því að vera einhlítur
mælikvarði og um það vitna þær tilraunir hér, sem innifela
prófanir á blöndu af hitaveituvatni og fersku vatni. Þar
virðist sú regla einhlít, að betri árangur næst með óblönd'
uðu ferskvatni til þvotta, en blöndu jarðhitavatns í hlut-
föllunum 1:2 sem prófuð voru. Að líkindum stafar þetta af
útfellingum, sem verða við blöndum þessara tveggja vatns-
tegunda. Svo er að sjá þær rýri árangur þvottar stórlega.
VERKSMIÐJUPRÓFANIR
Þær handvirku prófanir, sem þegar hefir verið greint frá,
varðandi hveravatn í Hveragerði, voru framkvæmdar í
Ullarþvottastöðinni í Hveragerði. Samkomulag varð uffl
að samsvarandi prófanir væru gerðar í verksmiðjunni sjálfri
með fullum afköstum.
Við þvott í verksmiðjunni er notað ákveðið magn
þvottaefnis og þar að auki ákveðið magn sóta. Sú breyting
var gerð að því sem næst 300 mg/1 af kísil (Si02) í formi
natríum metasilikats var bætt inn en sótagjöf minnkuð um
25%. Að öðru leyti var allur rekstur hinn sami og áður.
Prófanir fóru fram í tvígang, þ.e. hin fyrri 20. okt. 1988
52 VERKTÆKNI