Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 12
góðar að verðliækkunin borgi sig. Slíkar umbúðir verða að vera hent-
ugar í meðferð, smekklegar að sjá og hreinlegar og vernda mjólkina
fyrir skemmdum.
Þegar mjólkurbúin árið 1930 komust að samkomulagi um að nota
gegnsæju flöskuna sem samhæfða umbúð fyrir mjólkurvöru, voru það
miklar framfarir. („Gegnsæja flaskan“, — sama flöskutegund og Mjólk-
ursamsalan í Reykjavík notaði löngum, — aths. þýðanda). í lok 6.
áratugsins var ákveðið með hliðsjón af margra ára reynslu af þessari
flöskutegund að koma með nýja flöskutegund, sem væri með sterkara
gleri, hefði aðra lögun og væri brún á lit til að vernda mjólkina gegn
skaðlegum ljósáhrifum. Sumir neytendur litu hrúnu flöskuna horn-
auga, enda höfðu þeir ekki möguleika til að meta hve mikið nýja teg-
undin minnkaði hættuna á flöskubroti.
Gott dæmi um umbúðir, sem þjóna vel bæði hagsmunum neytenda
og mjólkurframleiðenda, eru nýju „polystyrol“-umbúðirnar fyrir súr-
mjólk („polystyrol" er plasttegund og áðurnefndar tegundir umbúða,
sem í Danmörku cru notaðar fyrir súrmjólk, eru nú á íslandi notaðar
fyrir skyr, — aths. þýð.). Við vonum, að innan skamms komi á mark-
aðinn slíkir plastbikarar einnig fyrir venjulega mjólk, og leysast þá
vafalaust ýmis framreiðslu og uppþvottavandamál.
Vissar grundvallarkröfur um mjólkurumbúðir verður að gera; —
þær verða að vera nógu góðar frá heilbrigðissjónarmiði, þær verða að
gefa framleiðsluvörunni næga vernd og þær verða að uppfylla kröfur
um hreinlæti og dreifingarmöguleika. Þess vegna hefur Innanríkis-
ráðuneytið ákveðið, að allar tegundir umbúða, sem notaðar eru, verði
að fá opinbera viðurkenningu. Viðurkenningin fæst fyrst, þegar heil-
brigðisyfirvöld hafa athugað umbúðirnar, og tilraunamjólkurstöð ríkis-
ins hefur prófað hvernig umbúðirnar og framleiðsluvaran fari saman
og báðar þessar stofnanir telji, að umbúðirnar fullnægi lágmarkskröf-
um. Fram til þessa liafa ýmsar umbúðategundir fengið viðurkenningu,
og geta mjólkurbúin síðan valið milli þeirra.
Hér er ekki hægt að útskýra nákvæmlega hverja einstaka tegund
umbúða, sem viðurkenningu hefur hlotið. Þau efni, sem fyrst voru
notuð, voru pappi, sem var vatnsþéttur með paraffíni, .en á seinni árum
hefur þessi gerð umbúða að mestu leyti vikið fyrir umbúðum úr pappa,
sem er vatnsþéttur með plastefninu „polythylen". (Hymurnar og fern-
urnar, sem íslenzkir neytendur kannast við, hafa seinni árin einmitt
verið úr pappa og plastefni, — aths. þýð.). Einnig hafa komið fram
umbúðir, sem eru eingöngu gerðar úr plastefninu „polythylen", —
mjólkurpokar úr plasti, og umbúðir með hörðu plasti, „polystyrol",
12
NEYTENDABLAÐIÐ