Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 14
Pökkunarkostnaður í aurum, 28. nóvember 1968:
Þessar deilur um umbúðir í Danmörlcu
sýna hve margþætt vandamálið er. — Þar
virðast samtök neytenda m. a. ekki vilja
missa hyrnurnar ...
A Islandi hefur engin svipuð rann-
sókn ennþá verið gerð. Hér verður
reynt að fjalla um mjólkurumbúðir út
frá þeim staðreyndum, sem fyrir hendi
eru.
Sexmannanefndin, sem ákveður verðlag
landbúnaðarafurða, hefur reiknað út hvert
verð mjólkur eigi að vera í mismunandi
umbúðum miðað við mismunandi pökkun-
arkostnað. Neytendablaðið hefur fengið
leyfi til að birta útdrátt úr þessum útreikn-
ingum. Þótt þessi útreikningur á pökkunar-
kostnaði mjólkur sé síðan í nóv. 1968, gild-
ir hann ennþá sem liður í síðasta verðút-
reikningi mjólkur 1. sept. 1969.
Ymis konar sundurliðun á kostnaði er
sleppt. Pökkunarkostnaður er miðaður við
ákveðið lágmark á framleiðslu hverrar um-
búðartegundar, og er það lágmark nokkuð
mismunandi, eða frá 14 milljónum lítra ár-
lega, þegar um 2 lítra fernur er að ræða,
í 40 þúsund lítra árlega af 1 dl. hyrnum.
Eins og taflan ber með sér er pökkunar-
kostnaður 2 lítra fernu kr. 3,81 eða kr. 1,91
á líterinn af mjólk. Pökkunarkostnaður 1
líters hyrnu er lægri, eða kr. 1,45. Útsölu-
verð 2 lítra fernu er í dag kr. 29,30 og 1
líters hyrnu kr. 14,10. Pökkunarkostnaður
1 líters plastpoka er kr. 1,28, en 1 líters
flösku 68 aurar. Pökkunarkostnaður hvers
líters í 10 lítra pappakössum er kr. 2,20,
eða allmiklu hærri en á 2 lítra fernum, 1
líters hyrnum og plastpokum.
Væri mjólk hins vegar seld í 1 líters
14
NEYTENDABLAÐIÐ