Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 42
og hins vegar að setja fiskinn ekki í kassa fyrr en eftir löndun og ísa
hann þá.“ — Hér má bæta við að hafin er hér á fslandi framleiðsla
sérstakra plastkassa í þessu skyni; kunnáttumenn telja kostnaðaraukann
vegna kassanna ekki munu verða mjög mikinn.
Heilbrigðisyfirvöld eru samþykk því að nauðsynlegt er að hafa fisk-
inn vel kældan en telja ýmsa örðugleika vera hér í vegi. Segir m. a.
í umsögninni: „Af 45 fiskbúðum hér í borginni hafa 39 kælirými, en
sum þeirra geta þó ekki talizt fullnægjandi. ... Hér er aftur komið að
kostnaðarhlið málsins, sem ekki verður sniðgengin.“
Það er skoðun stjórnar Neytendasamtakanna, að sá fisksali, sem
ekki hefur kælirými í húð sinni, valdi hæði neytendum og sjálfum sér
slíku tjóni, að hann hafi engan siðferðilegan rétt til fisksölu.
Einnig segir í umsögn heilbrigðisnefndar, að „í byrjun næsta árs
taka gildi hin nýju lög um hollustuhætti og heilbrigðisreglugerð. í þá
reglugerð þarf að setja strangari ákvæði um meðferð neyzlufisks, þar
sem megináherzla verði lögð á kælingu fisksins frá því að hann er
veiddur og þangað til neytandinn fær hann í hendur.“ — Þessu er
stjórn Neytendasamtakanna fullkomlega samþykk, og hefur hún því
sent nefnd þeirri, sem reglugerðina á að semja, erindi um málið.
Að lokum segir í umsögninni: „Ekki verður skilið við þetta mál án
þess að henda á þá staðreynd, að í dag fer hezti fiskurinn í vinnslu til
útflutnings, en sá lakari lendir á innanlandsmarkaðnum. Gera þarf
því ráðstafanir til þess að fiskdreifingarkerfið verði endurskipulagt og
meðferð aflans hætt, þannig að innanlandsmarkaðnum, eins og erlenda
markaðnum, sé tryggð fyrsta flokks vara."
Hvers vegna er innanlandsmarkaðnum ekki tryggð fyrsta flokks
vara?
Höfuðorsökin liggur vafalaust í því að fiskmatsmenn álíta aðeins
mat á fiski, sem ætlaður er til útflutnings, vera í sínum verkahring.
Margir fisksalar hafa skýrt svo 'frá, að forstöðumenn báta eða jafn-
vel togara hafi stundum samband við þá og hjóði þeim fisk, sem fiski-
matið hafi neitað að setja í 1. flokk. Þennan fisk verða fisksalarnir að
kaupa sem 1. flokks vóru og þar að auki á „uppsprengdu" verði. Fisk-
matsmenn hafa staðfest þetta og segja, að forsvarsmenn útgerðar leiki
oft þann leik að skáka fiskmatinu með því að setja á innanlandsmarkað
fisk, sem fiskmatsmenn eru ekki ánægðir með.
Hér verður að ráða bót á. Samkvæmt reglugerð ferskfiskeftirlitsins
(frá 1961) er „starfsmönnum ferskfiskeftirlitsins heimilt að fara um
borð í öll fiskiskip og á hvern þann stað, þar sem fiskur er unninn"
42
NEYTENDABLAÐIÐ