Neytendablaðið - 01.10.1969, Page 13
Mjólkur-
umbúðir
- Hverjar henta á íslandi?
I greininni um mjólkurumbúðir úr danska tímaritinu „rád
og rcsultater ' (febr. 1968) bér að framan var í lokin minnzt
á þörf rannsóknar á vilja neytenda viðvíkjandi mjólkurum-
búðum. Slík rannsókn befur nú farið fram í Danmörku.
Helzta niðurstaða rannsóknarinnar er sú, að „Pure pak“ umbúðir
séu vinsælastar. (A myndinni af dönsku mjólkurumbúðunum er „Pure
pak“ lengzt til vinstri í annarri röð). „Pure pak‘ eru fernur, nokkurn
veginn sarna gerð og „Tetra Rex“ fernurnar hér, framleiðslufyrirtækin
eru aðeins önnur.
Þessi rannsókn hefur sætt harðri gagnrýni í danska neytendablað-
inu „Tænk“ (ágúst 1969), þar sem framkvæmd hennar hafi eingöngu
verið í höndum mjólkurframleiðenda.
sem getið var um fyrr í greininni. („Polythylen“-pokar eru notaðir
fyrir mjólk víða út um land hér á íslandi og í Reykjavík fyrir undan-
rennu; „polystyrol“-bikarar eru notaðir fyrir skyr, -—- aths. þýð.). Lögun
umbúðanna getur verið margbreytileg, og sumar er hægt að opna án
áhalda en aðrar verður að opna með hníf eða skærum.
Erfitt er að segja til urn hvaða skoðun neytendur í heild hafa á
mjólkurumbúðum nema fram fari skoðanakönnun rneðal þeirra með
þátttöku margra einstaklinga úr öllum þjóðfélagshópum og sem víðast
á landinu, og í þeim spurningum, sem fyrir þá yrðu lagðar, fælust
upplýsingar um hinar ýmsu tegundir umbúða, og verð hverrar teg-
undar væri um leið greinilega tckið fram. Slík skoðanakönnun yrði
allkostnaðarsöm í framkvæmd.
NEYTENDABLADID
13