Neytendablaðið - 01.10.1969, Side 33
Ábyrgðarmerkingar
á húsgögnum
Árið 1966 gerðu Neytendasamtökin og Húsgagnameistarafélag
Reykjavíkur (H. M. F. R.) með sér samkomulag um ábyrgðarmerk-
ingu húsgagna, sem félagsmenn I I. M. F. R. framleiddu eða sæju um
framleiðslu á. Var ítarlega skýrt frá þessu í Neytendablaðinu á sínum
tíma, eða 1. tbl. 1967. Sumt af því verður endursagt hér. Nú í sumar
hefur verið unnið að samkomulagi milli Neytendasamtakanna og
Meistarafélags húsgagnabólstrara (M. H. B.) um ábyrgðarm.vkingu
búsgagna, sem félagsmenn M. H. B. framleiða. Ættu nú flest lnis-
gögn, sem framleidd cru á Islandi, að vera ábyrgðarmerkt.
Verkaskipting H. M. F. R. og M. H. B. er að sjálfsögðu sú að hús-
gagnasmíðameistarar ábyrgjast tréverkið og bólstrunarmeistarar bólstr-
unina. Þannig hefði skrifborð ábyrgðarmerki FI. M. F. R. og sófasett
ábyrgðarmerki M. H.B. og í sumum tilfellum einnig FI.M. F. R.
Einn höfuðtilgangur húsgagnasýningar á vegum H. M. F. R. og
M. H.B. 18.—28. september 1969 er að auglýsa ábyrgðarmerkin. Er
vonast til að allir viðeigandi meistarar noti ábyrgðarmerki á framleiðslu-
vöru sína. 1 sýningarskrá skrifar Karl Maack, formaður H. M. F. R.,
m. a.: „I dag er 21 framleiðandi sem merkir framleiðslu sína með þessu
merki (þ. e. ábyrgðarskírteini H. M. F. R.) og er gert ráð fyrir að þeim
fjölgi nokkuð með þessari sýningu."
KOMI FRAM GALLI Á ÞEIM
HÚSGÖGNUM, SEM ÞETTA MERKI
FYLGIR, BER KAUPANÐA AÐ TIL-
KYNNA ÞAÐ VERZLUNINNI EIGI SlÐAR
EN INNAN 12 MÁN. FRÁ MÓTTÖKUDEGI.
TEL3I KAUPANDI .SIG EKKI FÁ VIÐUN-
ANDI ÚRLAUSN VEGNA HINS MEINTA
GALLA INNAN 12 DAGA, BER
HONUM AÐ SNÚA SÉR TIL
NEYTENDASAMTAKANNA
REYKTAVlK
Tcxti ábyrgðarskírteinis M. H. B.
NEYTENDABLADID
33