Neytendablaðið - 01.10.1969, Blaðsíða 60
bandarísku neytendasamtakanna. Þetta blað kemur út í tæplega tvcim
milljónum eintaka og í sambandi við blaðið eru reknar miklar rann-
sóknarstofur. Aldrei er kveðinn upp dómur í blaöinu yfir neinni vöru-
tegund nema á undan fari nákvæm rannsókn, og þótt sumir dómar
blaðsins séu harðir er ekki vitað að nokkur framleiðandi eða seljandi
í Bandaríkjunum hafi höfðað mál á hendur því.
Brezka neytendablaðið „Which“ kemur út í u. þ. b. 800.000 ein-
tökum og nýtur mikillar virðingar. Þetta blað lét einnig fara fram sér-
staka rannsókn á „lífrænum" þvottaefnum og komst að sömu niÖur-
stöðu og bandaríska timaritið, — að umrædd þvottaefni hefðu lítið
eða ekkert hagnýtt gildi. í því blaði var sérstaklega fjallað um töfra-
efnið Luvil.
Eiginleikar „lífrænu“ þvottaefnanna felast í hinum svonefndu
enzymum, sem kljúfa auðveldlega eggjahvítuefni. Enzym eru mjög
dýr í framleiðslu og eru því aðeins lítill hluti undraéfnanna, sem eru
á markaðnum.
Efnafræðingar á íslandi hafa tjáð okkur, að enzym séu sérstaklega
vel til þess fallin að eyða óhreinindum úr eggjahvítuefnum en hafi
engin áhrif á önnur óhreinindi (t. d. úr fituefnum). Enzym vinna ein-
ungis við ákveðið hitastig, sem ekki má vera hærra en 30°, en þó er
sagt að nýjar ewzyrtt-tegundir séu að koma á markaðinn, sem þola allt
að 70° hita. Algerlega er óvíst hvort nýju ettzym-tegundimar séu í
innfluttu undraefnunum á Islandi.
I „Húsfreyjunni", blaði Kvenfélagasambands íslands, 2. tbl. 1969,
er sagt frá ákveönum hliðarverkunum enzymanna, og er heimildin
norska neytendablaðið ,,Forbruker-Rapporten“. Enzym geta ekki aðeins
leyst upp eggjahvítuefni heldur og rnyndað efni, sem getur leyst upp
suma málma, einkum zink. Undraefnin geta þannig eyðilagt renni-
lása o. fl.
Hvernig má samræma álit efnafræðinganna á áhrifamætti enzyma
og hörðum dómi erlendra neytendasamtaka á þeim þvottaefnum, sem
innihalda enzym? Því miður er ekki hægt að gera sjálfstæða rannsókn
á íslandi á þeirn vegiia kostnaðar og tæknilegra erfiðleika. Hins vegar
rná svara því til, að það sé tvennt ólíkt hvað enzym geta fræðilega gert
og hvað þvottaefni með dálítið magn enzyma geta gert í notkun, en
það var notkunargildið, sem erlendu neytendasamtökin athuguðu. Og
það er einnig ólíkt hvað enzymin geta gert í höndum fólks, sem virki-
lega trúir á töframátt þeirra og telja allan góðan þvott af þeim stafa.
Annars er óhætt að leggja áherzlu á þessar staðreyndir viðvíkjandi
milljónum efnakljúfa sjálfrar náttúrunnar:
60
HEYTENDABLAÐIÐ