Harpan - 01.06.1937, Qupperneq 17
H
R
P
A
N
A
4. Hvar faldi máninn sig?
5. Hvar lagðist Haraldur til hvíldar?
<>. Við hvað vaknaði Haraldur?
7. Af hverju fékk hann ofbirtu í augun?
Lausn á 5. liði í verkefni II.
Afi Amraa. Bróðir. Frænka.
Mamma. Pabbi. Systir. Vinur.
Verkefni.
III.
1. Raðaðu eftirfarandi orðum í
í stafrófsröð:
gaman, synda, pyrnar, allt,
vatn, vindur, amstur, örn,
börn, misa, reiði, pallur-
Harpa vill hjálpa ykkur til
aukins orðaforða og skilnings
á móðurmálinu. Harpa hefur
líka sterka löngun að koma ykk-
ur til hjálpargegn hljóðvillunum
— losa ykkur við þær, ef unnt
er. Við vegum vitanlega ekki
um of óttast breytingar. Málið
er breytingum háð sem allt
annað. En hljóðvillurnar geta
ekki talizt eðlileg eða heilbrigð
þróun. Þær eru illgresi í málinu,
er uppræta þarf, sjúkdómur, er
lækna þarf, með því að grafa fyr-
ir orsök hans. Og hún er, þ.
e. a. s- að minu áliti, fólgin í
því, að ti! fyrsta undirstöðu
náms barnsins í lestri er ekki
vandað sem skyldi. Barninu
er ekki gerður nógu Ijós mis-
munur likra hljóða — og ekki
taminn nógu skýr framburður.
Til fyrstu undirstöðunnar
verður að vanda sem vendi-
legast. Og það er víst, að
vissu foreldrar hverja erfið-
leika þeir skapa börnum
sínum, og hverjum spjöllum
þeir valda á málinu með lé-
legri byrjunarkennslu í lestri,
þá myndu þeir vanda til henn-
ar sem mest mætti.
Nú og framvegis mun Harpa
flytja verkefni, sem orðið geta
þér til nokkurar hjálpar í þessu
efni — ef þú reynir að not-
færa þér þau sem bezt. An
þess eru þau einskisnýt. Ég
ætla að reyna að hjálpa þér
um verkefni, og þú átt að
hjálpa mér og þeim öðrum.er
vinna vilja gegn málspjöllum,
með því að nota verkefnin sem
bezt. Ef við leggjum saman,
orkum við áreiðanlega miklu.
Reynum!
Harpa vænlir samvinnu allra
kennara í pessu efni.
2. Finnið orð, er hafa sömu eða
líka merkingu og: mjór, steinn,
lítill, sársauki, blað, seinn,
kasta, ljós, myrkur, tré, sver,
lallegur.
3. Gerðu þér glögga grein fyrir
framburðarmismun þessara
hljóðtákna (stafa): e og i, u og
ö, g og k, t.d. í orðunum lag
og lak.
4. Skrifaðu eftirfarandi orð eftir
upplestri. Athugaðu vandlega
þau hljóð (stafi) orðsins, er
þú flaskar á. Æfðu þau orð,
er þú kannt að skrifa skakkt,
79'