blaðið - 17.11.2006, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Atvinnuréttur og
samskipti við fjölmiðla
Mér var illilega brugðið vegna
fréttar í Blaðinu á miðvikudag þar
sem beinlínis er rangt haft eftir mér,
bæði í fyrirsögn og í tilvitnun. Þar er
því haldið fram, vegna athugasemda
Dags B. Eggertssonar, að ég þurfi að
segja af mér sem varaborgarfulltrúi
þar sem ég hef tekið að mér verkefn-
isstjórn fyrir Faxaflóahafnir.
Tildrög þessa verkefnis eru þau
að skipulag Slippasvæðisins hefur
verið í vinnslu í meira en heilt kjör-
tímabil og hvorki gengið né rekið.
Faxaflóahafnir hafa lagt í mikinn
kostnað vegna málsins og sér ekki
enn fyrir endann á því. Eg var beð-
inn um að taka að mér verkefnið
vegna þess að ég hef bæði menntun
og reynslu í því að vinna að skipu-
lags- og byggingarmálum. Engar
efasemdir eru uppi um mikilvægi
þess að fara í þetta verkefni og engar
efasemdir eru uppi um það að ég sé
ekki vandanum vaxinn. Það sem
hinsvegar blasir við í uppsetningu
fréttarinnar, er að reynt er að gera
mig tortryggilegan um leið og rangt
er haft eftir mér. Ég hef haft það
fyrir reglu í samskiptum við fjöl-
miðlamenn að greina alltaf frá eítir
bestu getu þannig að það sem um
er fjallað komi fram í sem skýrustu
máli. Reynsla mín af blaðamönnum
hefur fram að þessu verið góð en
þessi fréttaflutningur er augljóslega
til þess gerður að sverta mannorð
mitt, en ekki að upplýsa um málið.
Blaðamaður hefur viðurkennt þau
mistök sín að hafa haft rangt eftir
mér og sú leiðrétting birtist í blað-
inu í gær, fimmtudag. I Blaðinu
sama dag staðfestir einnig starfandi
borgarritari að meginreglan í sveit-
arstjórnarrétti sé sú að menn sinni
öðrum störfum jafnframt því sem
þeir eigi sæti í sveitarstjórn.
Það sem eftir stendur í þessu máli,
eftir dæmalausar aðdróttanir Dags
B. Eggertssonar, er spurningin um
hver sé staða sveitarstjórnarmanna
til almennrar atvinnuþátttöku ef
Umrœðan
Málatilbúnaður
Dags er til þess
fallinn að kasta
rýrð á trúverð-
ugleika minn
Óskar Bergsson
menn sem gegna trúnaðarstörfum
fyrir sveitarfélag mega ekki starfa
fyrir fyrirtæki eða stofnanir sem
eru að hluta eða öllu leyti í eigu sveit-
arfélagsins. Það vekur upp spurn-
ingar hvort skólastjórar, kennarar
eða aðrir starfsmenn sveitarfélaga
megi ekki taka þátt í sveitarstjórn-
armálum síns sveitarfélags. Margir
skólamenn hafa verið áberandi í
störfum fýrir sitt sveitarfélag án
þess að það sé gert tortryggilegt. f
Reykjavík þekkjum við dæmi þess
að skólastjórar hafi verið borgarfull-
trúar. í Reykjavíkþekkjumviðdæmi
þess að læknar á vegum Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík hafi verið borgar-
fulltrúar og í Reykjavík þekkjum við
dæmi þess að varaborgarfulltrúar
hafi bæði verið starfsmenn ÍTR og
Orkuveitunnar. f engum af þessum
tilfellum hefur verið talið að um
vafasamt athæfi hafi verið að ræða,
enda er það ekki svo. Stjórnsýslu-
lögin taka skýrt á vanhæfi manna
til ákvarðanatöku og eftir þeim er
farið við afgreiðslu mála í stjórn-
kerfi Reykjavíkurborgar.
Málatilbúnaður Dags B. Eggerts-
sonar er einungis til þess fallinn að
kasta rýrð á trúverðugleika minn
sem stjórnmálamanns og hann
dregur Blaðið á bólakaf ofan í svaðið
með sér í þeim hráskinnaleik. Ég
gef lítið fyrir drengskap Dags en ég
geri þá kröfu til Blaðsins að það fari
með meiri varkárni að æru manna
heldur en þeir gerðu í þessu tilviki.
Traust er fjölmiðlum jafn mikilvægt
og stjórnmálamönnum og því skulu
báðir sýna hvor öðrum gagnkvæma
virðingu.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
hí j ÁrrTii jÞj 32 | Sírni 533 5060 j www.stepp.is | stopp@siepp.if
iiiiiii'iIIIÉ^Ti mmrn''
í landi fækkandi
fr amsóknarmanna!
f landi fækkandi framsóknar-
manna fer að verða mikilvægara
fyrir þá sem eftir eru að kjósa rétt.
Ég hef í gamni og alvöru haldið
því fram að höfuðátakalínur ís-
lenskra stjórnmála liggi milli fram-
sóknarmanna annars vegar og krata
hins vegar. Og alltaf sannfærist ég
meira og meira um réttmæti þeirrar
kenningar.
Framsóknarmenn voru lengst af
20. öldinni fjölmennir í öllum stjórn-
málaflokkunum fjórum en þó fæstir
í Alþýðuflokki. Það góða og blessun-
arríka sem stafað hefur frá íhaldi
þessa lands er mildum landsföður-
legum framsóknarmönnum þar
innan dyra að þakka. Það sama má
segja um Alþýðubandalagið sáluga
sem hýsti reyndar Möðruvallahreyf-
inguna alla en gegnumgrænni fram-
sóknarhreyfing var kannski aldrei
til í þessu landi.
Það sem einkennir þessa gamal-
grónu framsóknarstefnu er þjóðleg
sáttahyggja, mildi og velvild. Velvild
gagnvart landsbyggð þessa lands,
atvinnuvegum þess, menningu
landsins og sögu. Mildi gagnvart
erfiðum breytingum sem ákveðnir
landshlutar og heilar stéttir standa
frammi fyrir og hægt er að milda
verulega með pólitískum stjórn-
valdsaðgerðum. Þjóðleg sáttahyggja
þegar kemur að því að meta og sam-
ræma ólík viðhorf, viðhorf gamla
tímans og hins nýja, viðhorf hins
þjóðlega og alþjóðlega, viðhorf kyn-
slóða og viðhorf ólíkra menningar-
heima þjóðarinnar.
Allt er þetta öndvert því skeyting-
arleysi sem einkennir tæknikrata
á öllum tímum og í öllum löndum.
Því miskunnarleysi sem fylgir bók-
stafstrúarmanni hvort sem lögmál
hans er markaðsbúskapurinn eða
reglugerðarbókstafur.
Þegar að er gáð er oft giska stutt
milli öfgamanna hvort sem þeir
koma úr hægri skúmaskotum Sjálf-
stæðisflokksins, frekjusellum Sam-
fylkingarinnar eða blindingsliði
Vinstri grænna. Allir eru þessir
hópar til í að etja þjóðinni í illindi
Endurreisn
framsóknar-
stefnunnar er
nauðsynleg
Umrœðan
Bjarni Haröarson
og átök um jafnt matarverð, virkjana-
pólitík og hina félagslegu samhjálp.
En hvað þá með „framsóknar-
mennina" í þessum flokkum, eru
þeir engir eftir, kann einhver að
spyrja. Ur því ég held því fram að
þeir hafi verið þar, hljóta þeir þá
ekki að vera þar enn? Víst er það
svo. En vegur þeirra er miklu minni
en var fyrir nokkrum árum. Gömlu
bændahöfðingjarnir mega sín lítils í
Sjálfstæðisflokki og hjá vinstriflokk-
unum ber nú meira á geltandi frekju-
tóni, ættuðum ýmist frá Greenpeace
eðagamlaAlþýðubiaðinu.Sáttatónn-
inn er þar löngu týndur.
Eftir því sem hinn raunveru-
legi Framsóknarflokkur minnkar
minnka líka áhrif hans inn í aðra
flokka. Verst er þó að Framsóknar-
flokkinn hefur á undanhaldi undan-
farinna ára skort þá reisn að halda
gildum flokksins fram af einurð og
festu. Halda fram hugsjónum Fram-
sóknarflokksins, sem ég vonast til
að geta gert betur grein fyrir síðar.
Höfundur er bóksali með meiru.
Forvarnir - fíkniefni
og fúkyrði Guðna
Á þriðjudag fóru nokkrir fram-
sóknarmenn nánast af hjörunum í
þinginu vegna umræðu um að þeir
hefðu svikið fíkniefnamilljarðinn
til forvarna. Svo sárt sveið þeim
að þeir fóru nánast hamförum til
að draga annað fram með talna-
leikjum og klækjum.
Framsókn gerði baráttu gegn
fíkniefnum að kosningamáli með
býsna umdeildum hætti árið 1999.
Síðan þá hefur vandinn vaxið
stórkostlega enda stjórnvöld ekki
staðið sig í stykkinu. Hvað sem
talnaleikjum ráðþrota Framsókn-
arflokks líður.
Engin ný stefna hefur verið
mörkuð i áfengis- og fíkniefna-
málum og meðferðarstöðvar
ramba á barmi þrots ár hvert
vegna fjársveltis.
Þá hafa framlög í fornvarnar-
sjóð minnkað um nokkrar millj-
ónir á ári frá 2000. Eru nú um 80
milljónir króna. Grátlega lág tala
og segir mikið um metnað stjórn-
valda í málinu.
Fíkniefnaneysla er orðin að sam-
félagsbresti. Hvað er til ráða? Að
auka forvarnir og setja meira fé
til meðferðarmála. Ekki herða refs-
Meðferðar
stöðvar ramba
á barmi þrots
ár hvert vegna
fjársveltis
Umrœðan
Björgvin G. Sigurðsson
ingar eða draga úr forvörnum líkt
og nú er gert.
Sorgarsaga og ruddaskapur land-
búnaðarráðherra í umræðunum í
gær verður lengi í minnum hafður
en Guðni rann á flótta með fúkyrða-
flaum á vörum. Sóðakjaft um að
við stjórnarandstæðingar værum
að ljúga til um fikniefnavandann.
Merkilegt það, Guðni Ágústs-
son, eftir að hafa gert málið að
atkvæðaneti fyrir nokkrum
árum. Sök bitur sekan og nú
læsir hún klónum í hinn hrædda
landbúnaðarráðherra.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar-
innar í Suðurkjördæmi.
____SMÁAUGLÝSINGAj 5103737
GEFA/ÞIGGJA