Bændablaðið - 12.04.2005, Síða 2
2 Þriðjudagur 12. apríl 2005
Sú tilraun sem Orkuveita Reykjavíkur hefur
gert á risarækjueldi að Bakka í Ölfusi hefur
komið svo vel út að fullyrt er að landeigend-
ur sem hafa nægt heitt og kalt vatn geti auð-
veldlega gert risarækjueldi að aukabúgrein.
Þorleifur Finnsson, framkvæmdastjóri ný-
sköpunar hjá Orkuveitu Reykjavíkur, hefur
manna best fylgst með tilrauninni með risa-
rækjueldið. Hann segir að það sé ekkert vanda-
mál að rækta risarækju hér á landi í opnum
tjörnum ef menn eru með nóg af heitu og köldu
vatni á svæðinu. Hann segir að í ljós hafi komið
í tilraunum OR að vaxtarhraði rækjunnar er
sambærilegur við það sem gerist í Nýja-Sjá-
landi en OR hefur verið í samstarfi við fyrir-
tæki þar í landi.
Þorleifur segir að tjarnirnar, sem rækja er
ræktuð í, séu bara gryfjur á túni eða móa, t.d.
20x100 m að stærð og 1,20 m að dýpt. Vatnið í
þessum tjörnum þarf að vera 28 gráðu heitt.
Hann segir að hagkvæmni stærðarinnar ráði hér
sem annars staðar þannig að menn þurfi að vera
með 2 til 3 hektara undir tjörnum til að ná fram
lágmarks hagkvæmni.
Rækjurnar eru settar í tjarnirnar um það bil
fjögurra mánaða gamlar. Klakið myndi fara
fram hér á landi í einni klakstöð enda hægt að
klekja svo miklu magni út að það myndi duga
fyrir allt landið og meira en það. Um yrði að
ræða eitt fyrirtæki sem seldi ungviðið í tjarn-
irnar. Tæknin og þekkingin liggur í klakfyrir-
tækinu og hugsunin er sú að það þjónusti bænd-
ur eða aðra landeigendur sem vilja fara út í
rækjueldi.
Rækjurnar eru 4 til 5 mánuði í tjörnunum.
Þá er vatnið látið renna í settjörn og síðan eru
rækjurnar tíndar upp. Þegar því er lokið er vatn-
inu úr settjörninni aftur dælt í uppeldistjörnina í
gegnum varmaskipti. Það er því alltaf sama
vatnið sem notað er. Aðeins þarf að bæta við
fyrir það sem gufar upp.
Rækjan er sum sé níu mánaða gömul frá
klaki þegar hún er sett á markað og er á bilinu
25 til 35 grömm að þyngd eða 30 til 40 stykki í
kílóinu. Verð fyrir svona rækju er frá 2000
krónum og upp úr fyrir kílóið. Það fer eftir
stærðinni og hvort hún er seld fersk eða frosin.
,,Okkar athuganir sýna að það geti verið
mjög arðbært fyrir þá aðila sem hafa aðstöðu
og vilja fara út í þessa ræktun. Skilaboð mín til
landeigenda er að fylgjast vel með og skoða
málið vel,“ sagði Þorleifur Finnsson.
Alþjóðlegir hestadagar verða í
Skagafirði dagana 21.-24. apríl en
þeir eru hluti af sýningunni Tekið
til kostanna á Sauðárkróki sem
haldin hefur verið í Svaðastað-
höllinni fyrstu helgi sumars frá
2001. Ákveðið var að stækka við-
burðinn og skapa honum sérstöðu
sem felst í því að höfðað er jafnt til
erlendra sem innlendra gesta og
dagskráin því flutt að hluta á
ensku. Markaðssetningin hófs á
Landsmótinu síðasta sumar en
síðan hefur verið auglýst í hesta-
tímaritum í Danmörku, Svíþjóð
og Noregi. Þá var farið í samstarf
við Ferðaþjónustu bænda um að
bjóða upp á sérstaka ferð á við-
burðinn. Allmargir erlendir gestir
koma á sýninguna. Hestadagarnir
eru samstarfsverkefni Hrossa-
ræktarsambands Skagfirðinga,
Leiðbeiningamiðstöðvarinnar,
Flugu og Hólaskóla.
Eyþór Einarssonar, sem sér um
framkvæmd og undirbúning hesta-
daganna ásamt Ingimari Ingimars-
syni, sagði að haldnar yrðu sýningar
í reiðhöllinni Svaðastöðum bæði
föstudags- og laugardagskvöld þar
sem fram kemur úrval af bestu hross-
um landsins. Þá verður haldin hin
árlega Vorsýning kynbótahrossa á
Sauðárkróki. „Nú bætist við dag-
skrána metnaðarfull dagskrá á Hól-
um þar sem sérfræðingar skólans
bjóða upp á reiðkennslusýningu og
fyrirlestra á ensku um hrossaliti og
byggingu hrossa,“ sagði Eyþór. „Við
ætlum líka að höfða til erlendra gesta
með heimildarmyndinni Í Austurdal
sem verður sýnd í Sauðárkróksbíó
með enskum texta.“
Keppt verður í nýrri tegund af
töltkeppni fyrir reiðhallir sem kallast
Gæðatölt. Í þeirri keppnisgrein er
lögð höfuðáhersla á næma og fallega
reiðmennsku á góðum tölturum.
Gera má ráð fyrir að A-úrslitin sem
fram fara á laugardagskvöldið verði
hápunktur helgarinnar, þar sem 1.
sæti gefur 100.000 kr.
Sköpuð verður létt fjölskyldu-
og markaðsstemning í Svaðastaða-
höllinni með kynninga- og sölubás-
um, úrvals reiðhestar og unghross
boðin til sölu, keppni í kynbótadóm-
um, grillveislu og fleiru. Sunnudag-
inn 24. apríl verða nokkur hrossa-
ræktarbú í Skagafirði með opinn dag
og sama dag fer fram hin árlega
skeifukeppni Hólaskóla.
Nýtt mjólkur-
samlag
Nýtt mjólkursamlag, Mjólka
ehf., hefur verið stofnað. Það
mun sérhæfa sig í framleiðslu
og sölu á ostum fyrir innan-
landsmarkað. Mjólkursamlagið
mun starfa utan greiðslumarks-
kerfis landbúnaðarins. Sótt hef-
ur verið um leyfi til heilbrigðis-
yfirvalda til starfrækslu mjólk-
urstöðvar Mjólku. Reiknað er
með að fyrirtækið framleiði
osta úr 800 þúsund lítrum af
mjólk á ári og verður það með
eigin mjólkurframleiðslu á jörð-
unni Eyjum II í Kjós. Þegar
hafa 50 kýr verið keyptar og
stefnt að því að vera með 100 til
140 kýr á búinu þegar starfsem-
in verður komin í fullan gang.
Mjólkurframleiðsla er þegar
hafin og vonast eigendur
Mjólku ehf. eftir því að fá
starfsleyfi innan tíðar. Ólafur
Magnússon er framkvæmda-
stjóri Mjólku ehf. Hann hefur
sagt í blaðaviðtali að búið sé að
ganga frá samningi við verslan-
ir um að kaupa alla ostafram-
leiðslu Mjólku ehf. Fyrirtækið
hefur gengið frá samningum við
Sýni ehf. um eftirlit með gæðum
hjá Mjólku ehf. Þar er um að
ræða óháðan eftirlitsaðila.
Alþjóðlegir hesta-
dagar í Skagafirði
Risarækjueldi getur orðið
mjög álitleg aukabúgrein
Bændablaðsmynd/Jón Eiríksson
Samtökin Landsbyggð-
in lifi gefur út bók
Samtökin Landsbyggðin lifi hefur
gefið út bók upp á 94 síður í stóru
broti og er meginefni hennar 20
ritgerðir úr ritgerðasamkeppn-
inni ,,Unglingurinn á landsbyggð-
inni" sem Landsbyggðin lifi
(LBL) efndi til veturinn 2003-
2004. Bókin heitir Landsbyggðin
lifi.
Einnig eru útdrættir úr erindum
sem flutt voru á Byggðaþingi LBL á
Hólum í Hjaltadal í fyrra.
Samtökin efndu til fréttamanna-
fundar í tilefni útkomu bókarinnar
og var ráðherrunum Valgerði Sverr-
isdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, og Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur menntamálaráðherra afhent
eintök af bókinni.
Ragnar Stefánsson jarðfræðing-
ur er formaður LBL. Hann sagði við
þetta tækifæri að eitt þúsund eintök
af bókinni yrðu send til skólanna í
landinu og á fleiri staði. Hann þakk-
aði þeim mörgu sem hafa styrkt út-
komu bókarinnar og þakkaði sér-
staklega fyrrnefndum ráðherrum
fyrir stuðninginn og sagði að bókin
hefði ekki komið út án stuðnings
þeirra.
Stjórn LBL er með þá hugmynd
að hefja nýtt verkefni með grunn-
skólum landsins í upphafi næsta árs.
Markmiðið er að efla vitund barna
og unglinga um heimabyggðina og
gera þau að virkum þátttakendum í
að styrkja hana og auðga. Óskað
verður eftir ábendingum frá skólun-
um um verkefni og gæti það hugs-
anlega verið tengt umhverfinu.
Félag ferðaþjónustubænda hélt
aðalfund sinn fyrir skömmu.
Marteinn Njálsson, formaður fé-
lagsins, segir að fundurinn hafi
verið fjölmennur og mjög vel
heppnaður. Fundurinn var hald-
inn á Hótel Heklu á Skeiðum.
Hann segir afkomu ferðaþjón-
ustubænda fara batnandi, útlitið
fyrir sumarið sé gott og ferða-
mannatímabilið alltaf að lengjast
fram á vorið og fram eftir hausti.
Þakkaði hann skrifstofu Ferða-
þjónustu bænda fyrir gott starf.
Marteinn segir að innri mál sam-
takanna hafi að sjálfsögðu verið fyr-
irferðamest á fundinum. Meðal ann-
ars var samþykkt nýtt flokkunarkerfi
fyrir Ferðaþjónustu bænda sem hef-
ur verið í vinnslu sl. 4 ár. Bætt er við
nýjum flokki sem heitir sveitahótel
en með því eru þeir staðir aðgreindir
sem eru með herbergi með baði og
aðra úrvalsaðstöðu eins og veitinga-
stað og fleira. Þar með eru flokkarnir
orðnir 4. Fyrsti flokkur er heimagist-
ing í herbergjum án handlaugar. Í
öðrum flokki er komin handlaug inn
á herbergið. Þriðji flokkurinn hefur
verið herbergi með baði en með
fjórða flokki er þjónustustig aukið.
Annað umfangsmikið mál var
endurskoðun á umhverfismálum
samtakanna. Marteinn segir ferða-
þjónustubændur hafa tekið þá
ákvörðun að vera ævinlega í farar-
broddi í umhverfismálunum ferða-
þjónustu á landsbyggðinni. Samtök-
in hafa hlotið viðurkenningar á
þessu sviði eins og umhverfisverð-
laun Ferðamálaráðs 2004 og ferða-
verðlaun Ferðamálaráðs Norður-
landanna í mars sl.
Önnur mál sem Marteinn nefnir
frá aðalfundinum og verið er að
vinna að er íslenskur sveitamatur í
framhaldi af skýrslu landbúnaðar-
ráðherra þar um. Vinnuhópar unnu í
umhverfismálum og mikið var rætt
um landbúnaðartengda ferðaþjón-
ustu sem er sérstaða ferðaþjónustu-
bænda.
Að lokum nefnir Marteinn
Ferðatorgið í Smáralind um síðustu
helgi sem heppnaðist mjög vel. Þá
var einn félagi í Félagi ferðaþjón-
ustubænda, Guðrún Bergmann á
Hellnum, kjörin ferðafrömuður árs-
ins á Íslandi. - Sjá einnig frétt á
blaðsíðu 11.
Gott útlit í ferðaþjónustu