Bændablaðið - 12.04.2005, Page 10
10 Þriðjudagur 12. apríl 2005
Skeifan 2 • 108 Reykjavík
S. 530 5900 • Fax 530 5911
www.poulsen.is
Fyrir flestar
dráttavélar
kr. 12.960 m/vsk
Fáðu
þér sæti
Gunnar í Hrútatungu sextugur
Gunnar Sæmundsson, varaformaður stjórnar Bændasamtaka Íslands, hélt upp á
sextugsafmæli sitt á dögunum í félagsheimilinu á Hvammstanga. Fjölmargir lögðu
leið sína í félagsheimilið og fögnuðu tímamótunum með afmælisbarninu og
fjölskyldu hans. Á myndinni hér fyrir ofan er fjölskyldan frá Hrútatungu ásamt
tveimur tengdasonum. F.v. Sigrún E. Sigurjónsdóttir, Sigurjón, Þorgerður,
Guðmundur E. Jóhannesson, Arndís, Frímann Baldursson og Gunnar Sæmundsson.
Á myndinni t.v. má sjá Gunnar taka á móti Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni.
Skaði af völdum
óveðurs í Svíþjóð
Um miðjan janúar sl. gekk mikið
óveður yfir sunnanverða Svíþjóð
sem olli miklum skaða á skógi og
mannvirkjum.
Samband tryggingafélaga í
Svíþjóð áætlar að skaðinn nemi um
4,2 milljörðum skr. eða tæplega 40
milljörðum íkr. og skiptist til helm-
inga á mannvirki og skaða á skógi.
(Landsbygdens Folk nr.
8/2005).
Mjólkurframleiðsla
dregst saman í Þýskalandi
Bæði kúabúum og fjölda mjólkur-
kúa fer fækkandi í Þýskalandi um
þessar mundir. Kúabú voru
111.800 í nóvember á sl. ári og
hafði fækkað um 4,5% frá árinu
áður, en mjólkurkýr voru 4,4 millj-
ónir og hafði fækkað um 1,7% á
sama tíma.
Mest er fækkunin í Norður-
Þýskalandi eða um 7,2% í Norður-
Rhin, Westfalen, 3,7% í Slesvík-
Holtsetalandi og um 2,3% í Neðra-
Saxslandi. Fjöldi kúa í Bæjaralandi
var óbreyttur.
Meðalkúabú í Þýskalandi var
með 38,2 kýr árið 2004.
Bakteríur draga úr
gróðurhúsaáhrifum
Rannsóknir á vegum Danmarks
Jordbruks Forskning sýna að bakt-
eríur í skáninni, sem myndast ofan
á svínaskít í mykjutönkum brjóta
niður metan sem annars mundi
valda gróðurhúsaáhrifum í and-
rúmsloftinu.
Metan myndast eingöngu við
loftfirrtar aðstæður og því eru tank-
ar undir svínaskít mikil uppspretta
metans. Samkvæmt dönskum lög-
um skulu þessir tankar vera loft-
heldir til að draga úr köfnunarefn-
istapi, einkum í formi ammóníaks.
Skánin, sem myndast ofan á
skítnum, er annað hvort úr hálmi
eða úr lífrænu efni úr skítnum. Í
henni eru örverur sem lifa á lífrænu
efni og næringarefnum úr skítnum.
Í rannsóknum á skán frá sex svína-
búum fundust bakteríur, sem brutu
niður metan, í þeim öllum.
Áætlað er að 18% af þeim loft-
tegundum, sem valda gróðurhúsa-
áhrifum í Danmörku, komi frá
landbúnaðinum og hvað metan
varðar yfir 40%.
Danmörk á aðild að Kyoto-
sáttmálanum og hefur þannig
skuldbundið sig til að draga úr los-
un gróðurhúsalofttegunda. Athygl-
inni er því beint að landbúnaðinum
um möguleika að draga úr losun
metans.
Skynsamar kýr
Rannsóknamenn við Háskólann í
Oxford í Englandi hafa komist að
því að kýr geta leyst verkefni, sem
áður var talið að apar einir dýra
gætu leyst. Rannsóknamennirnir
undruðust það að kýr sem gat
beygt stálþráð og búið til lítinn
krók úr honum og veitt síðan góð-
gæti upp úr stórri krukku.
Áður hafði verið sýnt fram á að
kýr myndu það hvort komið hafði
verið vel eða illa fram við þær.
Jafnframt muna þær hverjir það eru
sem haga sér vel eða illa við þær.
Rannsóknamennirnir fengu sjö
manns, konur og karla, í hlutverk
góðu og vondu hirðanna. Þegar
kýrnar ráku hausinn í stöng framan
við góðu hirðana uppskáru þær
fóður en ekki frá vondu hirðunum.
Það tók kýrnar skamman tíma að
þekkja andlit góðu hirðanna og
sniðganga þá vondu.
Á næstunni munu fulltrúar hins
opinbera og rannsóknamenn koma
saman á ráðstefnu í London sem
ber heitið: Hvernig ber okkur að
endurskoða viðhorf okkar til bú-
fjárins?
Ræktun erfðabreyttra
jurta jókst um 20% árið 2004
Ræktun erfðabreyttra jurta jókst
um 20% árið 2004 miðað við árið
áður. Það eru einkum Bandaríkin
og Argentína sem stunda þessa
ræktun, eða alls 79% af ræktun
þeirra í heiminum.
Næsta stóra framrás í ræktun
erfðabreyttra jurta er vænst að
verði í Asíu. Árið 2004 ræktuðu sjö
milljón smábændur í Asíu erfða-
breytta baðmull og horfa nú fram
til þess að erfðabreytt hrísgrjón fái
opinbera viðurkenningu stofnunar-
innar „International Service for the
Acpuistion of Agro-Biotech Appl-
ication“.
Það var árið 1996 sem ræktun á
erfðabreyttum nytjajurtum hófst í
almennum landbúnaði.
Verðhækkun á jólatrjám
í Danmörku
Jólatré eru ræktuð í stórum stíl í
Danmörku en þó hefur bændum
sem stunda þá búgrein fækkað að
undanförnu. Í kjölfar þess sjá menn
nú fram á verulega verðhækkun á
jólatrjám á þessu ári.
Samdráttur í framleiðslu er
áætlaður 25% eða um þrjár millj-
ónir trjáa, samkvæmt áætlun Sam-
taka ræktenda jólatrjáa í Dan-
mörku. Erlendir kaupendur
danskra jólatrjáa eru nú þegar í
mars farnir að staðfesta pantanir á
jólatrjám fyrir næstu jól en þeir
hafa aldrei áður verið svo snemma
á ferð. Hingað til hafa þeir dregið
pantanir sínar í lengstu lög til að ná
verðinu sem mest niður. Önnur
lönd í Evrópu geta ekki fyllt í það
skarð sem samdrátturinn í Dan-
mörku veldur.
Spurningin er því aðeins hve
mikill verðhækkunin verður, segir
Kaj Östergaard, framkvæmdastjóri
Samtaka ræktenda jólatrjáa í Dan-
mörku. Til að ræktunin skili bónd-
anum sem mestu er nauðsynlegt að
flokka trén í stærðar- og gæða-
flokka. Ef bóndinn er ekki fær um
það sjálfur verður hann að fá að-
stoð kunnáttumanna í þeim efnum,
segir Kaj Östergaard.
12 milljón egg í svínafóður í Nor-
egi
Árið 2003 kom upp skortur á eggj-
um í Noregi sem leiddi til þess að
reist voru fjölmörg eggjabú og
önnur stækkuð. Afleiðingin varð
offramleiðsla á eggjum. Eggja-
framleiðendur í Noregi hafa með
sér samvinnufélag um sölu eggja,
Prior Eggprodukter, og á þessu ári
var svo komið að fyrirtækið var
komið með eggjalager upp á 12
milljón egg, eða 713 tonn. Þegar
séð var fram á að þau seldust ekki
innan eðlilegs geymslutíma var
gripið til þess ráðs að vinna úr
þeim svínafóður.
Prior Eggprodukter hafa jafn-
framt lækkað framleiðendaverð á
eggjum, og sent eggjabændum fyr-
irmæli um að draga tímabundið úr
framleiðslunni.
Verðlaun fyrir vatnsvernd
Fyrirtækið Bayer, sem er þýskt en
starfar víða um heim, veitir árlega
nýjungum á sviði landbúnaðar
verðlaun, sem nefnast Bayer
CropSciences nýjungaverðlaun. Í
ár hlutu verðlaunin tvö verkefni
sem varða vatnsvernd og bætta
nýtingu vatns.
Bayer-samsteypan hefur sett
sér það markmið að styðja sjálf-
bæran landbúnað og í því skyni
hefur deild fyrirtækisins á Norður-
löndunum árlega verðlaunað verk-
efni sem stuðla að framleiðslu
hollra vara sem framleiddar eru á
sjálfbæran hátt.
Tvenn verðlaun voru veitt að
þessu sinni. Önnur hlaut Jenny
Kreuger sem starfar við Landbún-
aðarháskóla Svíþjóðar í Uppsölum
og Eskil Nilsson, ráðgjafi hjá fyrir-
tækinu Visari Vellinge, sem hafa
starfað saman að því að vernda
vatnsföll í náttúrunni fyrir mengun
af völdum plöntueiturs sem berst út
í ár og vötn. Þau hafa fylgst með
ánni Vemmehög á Skáni og rann-
sakað tegundir og magn jurtaeiturs
í henni frá árinu 1992. Niðurstöður
þeirra rannsókna hafa verið kynnt-
ar öllum bændum, sem eiga land
að ánni, og jafnframt hafa þau veitt
þeim ráð um það hvernig draga
megi úr útskolun efnanna í ána.
Með því móti hefur verið dregið úr
útskoluninni um 90% án þess að
það hafi komið niður á búrekstrin-
um.
Hitt verkefnið sem hlaut verð-
laun var vökvunarkerfi í landbún-
aði sem nýtir vatnið betur en áður.
Það voru þrír Danir sem starfa við
verkfræðirannsóknir hjá fyrirtæk-
inu Vitus Bering Danmark í Hor-
sens sem hlutu verðlaunin. Þeir
hafa hannað vél til vökvunar sem
stjórnað er með GPS staðsetningar-
kerfi. Vélin vökvar neðri hluta
plantnanna beint og dreifir vatninu
í tveimur umferðum, litlu fyrst, en
síðan meiru. Með þessu móti hefur
vindur lítil áhrif á vatnið og upp-
gufun verður í lágmarki. Jafnframt
skolast jarðvegur síður burt.
Fimmti hver Dani kaupir nauta-
kjöt beint frá bóndanum
Sífellt fleiri fara nú út um sveitir og
kaupa nautakjöt beint frá bóndan-
um. Samkvæmt skoðanakönnun
sem fyrirtækið ACNielsen AIM
hefur gert fyrir Markaðsráð kjöt-
framleiðenda (Kødbranchens Fæl-
lesråd), gerir fimmti hver Dani slík
kaup a.m.k. einu sinni á ári. Fyrir
utan hagstætt verð á kjötinu er
mikilvægt að slík kaup bjóða upp
öðru vísi upplifun en að kaupa það
í búðinni, kaupandinn nær að hitta
bóndann og kannski að kíkja í fjós-
ið. Hinn dæmigerði kaupandi að
slíku er kona með háskólapróf sem
býr í dreifbýli.
Samkvæmt upplýsingum frá
Markaðsráði kjötframleiðenda
þykir upphefð í því að kaupa beint
frá bónda.
„Að fara á upprunastað vör-
unnar, fá smávegis mold undir
skóna, hitta alvöru bónda og alvöru
kýr - það er góð saga við matborð-
ið. Það gefur til kynna velmegun,
siðgæði og hugmyndaauðgi - sem
allt er í hávegum haft nú á tímum.
Okkur finnst gaman að því að
málsverðurinn eigi sér sögu. Eink-
um og sér í lagi þegar það er saga
sem gefur til kynna að við erum
nautnaseggir, sem vilja gæði og
upplifun. Í því samhengi eru kjöt-
kaup beint frá bónda einkar vel til
fundin.“
/Landbrugsavisen, BHB
AÐ UTAN
www.bondi.is