Bændablaðið - 12.04.2005, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 12. apríl 2005
Opinn dagur
á Lambeyrum
Ábúendur á Lambeyrum í
Dalasýslu bjóða öllum sem
vilja í heimsókn laugardaginn
16. apríl nk.
Dagskrá:
Kl. 13:30 - Gefið í gjafagrindur
frá Vírneti í Borngarnesi.
Kl. 14:30 - Fyrirlestur um
Lambeyrabúið, fjárhúsin, upp-
byggingu þeirra og ferlið á
sauðburði.
Kl. 15:30 - Fyrirlestur um velti-
kerfið - rafgirðingar sem hægt
er að slá undan.
Kl. 17:00 - Kynning á sjálf-
virku flokkunar- og meðhöndl-
unarkerfi og klaufsnyrtibás fyr-
ir sauðfé.
Lambeyrar eru í Dalasýslu,
framarlega í Laxárdal, 19 km
frá Búðardal og 20 km frá
Borðeyri. Þar er rekið eitt af
stærstu sauðfjárbúum landsins
en allar nánari upplýsingar um
búið er að finna á síðunni
www.lambeyrar.is. Árið 1997
hófust miklar framkvæmdir á
Lambeyrum. Settar voru upp 16
gjafagrindur frá Vírneti í Borg-
arnesi, innréttuð sauðburðarað-
staða og byggð stór hlaða. Nú
eru fjárhúsin um 2000 fermetrar
og á sauðburði er stærstur hluti
þessara bygginga innréttaður og
nýttur undir fé. Ábúendur á
Lambeyrum hönnuðu og þró-
uðu nýja tegund rafgirðinga.
Girtir hafa verið um 15 km með
þessu kerfi og hefur það vakið
athygli bæði hér á landi og er-
lendis. Nýjasta verkefnið sem
unnið hefur verið að er sjálf-
virkt flokkunar- og meðhöndl-
unarkerfi fyrir sauðfé. Hluti af
þesu kerfi verður sýndur á opn-
um degi en stefnt er að því að
taka allan pakkann í notkun
næsta haust og að þá verði búið
að gera breytingar á kerfinu
þannig að það falli að íslensk-
um aðstæðum. Í þessu kerfi
verður tekið á þáttum eins og
fósturtalningu, klaufsnyrtingu,
lambastigun o.fl.
Allir velkomnir.
Í páskavikuni var tæplega 29
metra löng og 13 tonna þung lím-
trésbrú flutt í heilu lagi frá lím-
trésverksmiðjunni á Flúðum að
Múlavirkjun við Straumfjarðará
á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hér
er um að ræða lengstu límtrésbrú
sem smíðuð hefur verið hér á
landi. Fyrirtækið Límtré Vírnet
smíðaði brúna og sá um flutning
hennar sem vakti mikla athygli
þeirra er sáu enda ekki á hverj-
um degi sem 29 metra löng brú er
flutt eftir vegum landsins.
Gísli V. Jónsson, markaðsstjóri
hjá Límtré Vírnet, sagði að brúin
væri bogabrú sem byggð væri úr
límtré en klædd með bárujárni. Hún
verður sett yfir Straumfjarðará, er
svo kölluð þjónustubrú, og hefur
því mikið burðarþol. Enginn stólpi
er undir henni miðri. Brúin er ekki
svo breið að bifreið komist eftir
henni en hægt er að fara yfir hana á
fjórhjóli.
Límtré Vírnet hefur smíðað
nokkrar göngubrýr úr límtré.
Sömuleiðis nokkur fjós og önnur
útihús fyrir bændur auk annarra
verkefna á síðustu misserum og
hefur verið mikið að gera hjá fyrir-
tækinu.
Tæplega 29 metra löng límtrésbrú flutt frá Flúðum að Múlavirkjun
Fræðslunet Suðurlands hefur gengist fyrir nám-
skeiðum í fjórum sveitarfélögum á Suðurlandi þar
sem fjallað er um landið, söguna og átthagafræði í
1100 ár. Haldin voru námskeið í Biskupstungum,
Gnúpverjahreppi og Skeiðum, Hrunamanna-
hreppi og síðasta námskeiðið var í Vík í Mýrdal.
Jón Hjartarson, framkvæmdastjóri Fræðslunets
Suðurlands, segir að síðan sé ætlunin að bjóða
sveitarfélögum upp á sams konar námskeið sem
snerti hvert þeirra fyrir sig. Hann segir að nám-
skeiðin séu mjög ódýr því um sé að ræða 20 tíma
námskeið sem kosta ekki nema 8.000 krónur á
mann og því verði að leita eftir einhverjum styrkj-
um hjá sveitarfélögunum.
Námskeiðin hafa verið vel sótt að sögn Jóns Hjart-
arsonar en ekkert þeirra eins og námskeiðið í Vík í
Mýrdal. Nærri áttatíu manns hafa sótt það námskeið.
Meðal þeirra eru 14 aðilar sem aka á hverjum þriðju-
degi frá Selfossi til að taka þátt í námskeiðinu í Vík.
Námskeiðið Mýrdalshreppur, land og saga, átt-
hagafræði í 1100 ár hófst þriðjudaginn 8. febrúar í
Leikskálum í Vík. Þátttakendur eru nærri áttatíu. Þetta
er sem fyrr segir fjórða sveitarfélagið sem tekur þetta
vinsæla námskeið. Jón Hjartarson segir mjög ánægju-
legt að finna þann mikla áhuga sem fólk hefur á sinni
heimabyggð og að kynnast rótum sínum. Námskeið-
inu í Vík lýkur í dag, 12. apríl, með sameiginlegri
uppskeruhátíð. Myndina tók Jónas í Fagradal.
Sunnlendingar hafa mikinn áhuga
á landi, sögu og átthagafræði
Auglýsingar
Áhrifaríkur auglýsingamiðill
Sími 563 0300
Netfang augl@bbl.is
Poulsen hefur fest kaup á versl-
uninni OSG, þ.e. Orku Snorra
G. Guðmundssonar. Sameigin-
leg velta þessara tveggja fyrir-
tækja er áætluð um 700 milljón-
ir árið 2005. Ragnar Matthías-
son verður framkvæmdastjóri
félagsins. Íslandsbanki var ráð-
gjafi Poulsen við kaupin.
OSG sérhæfir sig í ráðgjöf,
þjónustu og vöruframboði vegna
viðgerða og viðhalds ökutækja.
Höfuðáhersla er lögð á ytra byrði
bílsins, þ.e. yfirbyggingu og vara-
hluti þar að lútandi. Í versluninni
eru allir bílalitir framleiddir á
staðnum samdægurs. Veitt er fag-
leg ráðgjöf varðandi alla þætti
bílamálunar og réttinga, rúðuísetn-
inga og plastviðgerða. Jafnframt
veita sérfræðingar í verslun fyrir-
tækisins þjónustu varðandi bílrúð-
ur, ísetningar, bílalakk, bílamálun,
vélar og tæki, verkfæri, slípivörur,
viðgerðarefni, efnavörur, o.fl.
Saga Poulsen nær aftur til árs-
ins 1910 þegar Valdemar Poulsen,
danskur járnsteypumeistari, hóf
viðskipti með eldfastan leir og
ýmsa málma. Poulsen hefur ávallt
lagt metnað sinn í að þróast með
breytingum í þjóðfélaginu og er
sífellt að leita nýjunga til að
treysta og efla fyrirtækið.
Eigendur Poulsen eru Ragnar
Matthíasson, Lovísa Matthíasdótt-
ir, Matthías Helgason og Kristján
E. Jónsson. /Fréttatilkynning.
Poulsen
kaupir
verslunina
OSG
Auglýsingar
Áhrifaríkur auglýsingamiðill
Sími 563 0300
Netfang augl@bbl.is