Bændablaðið - 12.04.2005, Side 27
Þriðjudagur 12. apríl 2005 27
Við höfum ekki lent í slíku enn
þá.“
Sauðkindin gagnvart hinu
Sæmundur segist hafa í aðdrag-
anda ráðstefnunnar einatt hnotið
um stöðu sauðkindarinnar gagn-
vart öðrum landnytjum. ,,Það er
ekki bara skógræktin, heldur hvers
konar önnur not og ásýnd, sem
fara ekki saman við hefðbundna
lausagöngu sauðskepnunnar. Ég
hef orðað það svo að hugsanlega
muni kratar allra stjórnmálaflokka
sameinast um að afnema lausa-
gönguna með lögum. Sú var tíðin
að lausaganga stórgripa var ekki
bönnuð og lausaganga hunda er
ekki leyfð, nema í sveitum og
sjálfsagt mál. Ég sé ekki að ríkið
geti endalaust staðið frammi fyrir
því að allir aðrir þurfi að girða
gagnvart því ríkisstudda fyrir-
komulagi, sem sauðfjárræktin er.
Gaman að segja frá því að einn af
starfsmönnum Skjólskóga var á
ferð í Nýja-Sjálandi fyrir
skömmu. Hann fór um Suðureyj-
una, sem er fjalllend og er miklu
groddalegra land en Ísland, og er
stundaður þar sauðfjárbúskapur til
kjötframleiðslu. Nýsjálendingar
skildu ekki spurningu Íslendings-
ins um lausagöngu sauðfjár þegar
hún var borin upp. Eina tilfellið
þar sem hún viðgekkst var sam-
eiginlegur girtur afréttur og ein-
göngu fyrir sauðfé til ullarfram-
leiðslu. Þar var akkúrat smalað
einu sinni á ári og fénu síðan
sleppt aftur þegar ullin hafði verið
tekin af.“
Sagt eftir leikinn
Ýmsum nýjum flötum var velt upp
á ráðstefnunni á Núpi og Sæ-
mundur segist ekki hafa heyrt ann-
að á mönnum, en að þeir væru
ánægðir með þær umræður og er-
indi sem flutt voru. ,,Við tökum
gjarnan við nýjum kenningum og
nýjum heitum og eigum oft erfitt
að sjá það í samhengi við það
gamla sem við höfum tileinkað
okkur. Orð eins og búsetulandslag
og landbúnaðarskógar svo dæmi
séu tekin. Áreiðanlega verða
breytingar ef lausaganga sauðfjár
verður bönnuð. Þá breytist til
dæmis búsetulandslagið. Og bú-
setulandslag aldanna er breytilegt
og tekur mið af hverjum tíma. Það
þýðir að við verðum að taka tillit
til margra sjónarmiða, hvort nýir
landeigendur ætla að stunda sauð-
fjárrækt eða skógrækt eða einfald-
lega að njóta útivistar á jörð sinni
og sinna náttúrurvernd. Stórbreyt-
ing varð á að þessu leyti með nýj-
um jarðalögum frá því sumar, en
kannski hefði átt að grípa fyrr inn
í, hefðu menn viljað hafa meiri
áhrif þróunina.“
Texti og myndir:
Finnbogi Hermannsson
Skógarsnípa - nýr varpfugl á Íslandi
Skógræktarmenn fundu nýja fuglategund, skógar-
snípu, í varpi í apríl í fyrra. Var það í stafafuruskóg-
um í Skorradal í Borgarfirði. Bjarni Diðrik Sigurðs-
son, sérfræðingur á Mógilsá, segir að skógarsnípa
hafi ekki áður verið staðfest í varpi á Íslandi. Fugla-
fræðingar hafi haft grun um að svo væri, en nú hef-
ur það verið staðfest. Skógarsnípan er frænka mý-
risnípunnar eða hrossagauksins en
stærri og ámóta stór og dúfa. Skóg-
arsnípan á heimkynni í ná-
grannalöndunum. Glókollur-
inn er líka nýr land-
nemi á Íslandi og er
minnstur fugla í
landinu sem og í Evrópu. Hann er
minni en músarrindill, sem átti metið
hvað smæð snerti. Glókollurinn var
þriðji algengasti fugl á Héraði í fyrra,
þegar talning fór þar fram í tengslum við
rannsóknarverkefni Náttúrufræðistofnunar,
fugl og skógur. Náttúrufræðingar hafa reyndar
áhyggjur af þessum nýja landnema þar sem lítið
hefur heyrst í honum eftir kuldatíð í vetur. Það
er því kannski heldur snemmt að halda því
fram að glókollurinn sé orðinn íslenskur staðfugl.
Í rannsóknarverkefninu, sem Náttúrufræði-
stofnun, Landbúnaðarháskóli Íslands og Rannsókn-
arstöðin á Mógilsá stóðu að og beindist að áhrifum
skógræktar á umhverfið, komu í ljós nýjar lífveru-
tegundir. Hinir upprunalegu íslensku birkiskógar
voru einnig til athugunar og í gömlum birkiskógi í
Skorradal rákust menn á nýja tegund af ásætum,
sem lifa utan á birkitrjám. Þetta eru fléttur sem lafa
niður og mynda eins og gluggatjöld í skóginum.
Um er að ræða sömu lífverur og við sjá-
um í ævintýrunum og hafa ekki áður
verið skráðar af vísinda-
mönnum og
heitir flókak-
ræða. ,,Ef til
vill er þetta ekki
ný lífvera í birkiskógum,
en sýnir að við höfum ekki
sinnt nægilega rannsóknum á þessu
sviði,“ segir Bjarni Diðrik Sigurðsson á
Mógilsá.
Teikningin af skógarsnípu er fengin af
vef BirdGuides.com BirdGuides (2005).
Heimasíða.
Kemur næst út 26. apríl