Bændablaðið - 12.04.2005, Side 33

Bændablaðið - 12.04.2005, Side 33
Þriðjudagur 12. apríl 2005 33 Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400 jotunn.is Plógar, herfi og valtarar Mikið úrval, hagstætt verð Scan fjaðraherfi, dragtengd fjaðraherfi í mörgum stærðum. Vogel & Noot plógar, vandaðir og sterkir. Scan valtarar, mikil afköst og góð þjöppun. Skil á búreikningum til Hag- þjónustu landbúnaðarins er hluti af árlegri hagtölusöfnun í landbúnaði. Búreikningarnir eru m.a. notaðir við gerð samn- inga milli ríkis og bænda, við gerð rekstraráætlana í landbún- aði, við samanburð milli bú- greina og búrekstur í öðrum löndum og fleira. Viðmiðunin undanfarin ár hef- ur verið sú að búreikningar berist Hagþjónustu landbúnaðarins á sama tíma og uppgjöri er skilað til skattyfirvalda. Samkvæmt upplýs- ingum frá Ríkisskattstjóra er síð- asti frestur á skattskilum einstak- linga í rekstri 31. maí næstkom- andi. Með hliðsjón af því er æski- legt að búreikningar berist Hag- þjónustu landbúnaðarins eigi síðar en 10. júní. Þegar senda á búreikning er valið Verkfæri í valröndinni og síðan Gagnaflutningar-dk-Búbót- Hagþjónusta landbúnaðarins. Þegar þangað er komið er valið bókhaldstímabil og hvernig gengið er frá gögnunum. Það er annað- hvort hægt að vista þau á tölvudisk og senda í pósti eða senda þau sem viðhengi í tölvupósti á netfangið ingibj@hag.is eða hag@hag.is. Mikilvægt er að slá inn viðbótar- upplýsingar um búreksturinn sem ekki koma fram í bókhaldinu. Þessar upplýsingar eru rekstrar- form bús, ársverk, túnstærð, stærð grænfóðurs- og kornakra, aldur bænda, lömb til nytja, greiðslu- mark og heyuppskera í FE. Ef ekki hefur verið gert skatt- framtal í forritinu fyrir viðkomandi er mikilvægt að fyllt sé út bls. 4.08r2 (bústofnsblaðið) í skatt- framtali 4.08 en þar koma fram upplýsingar um bústofn. Við þennan gagnaflutning úr dkBúbót birtir forritið á skjánum samanlagðar niðurstöðutölur nokk- urra tekjulykla og það magni og þann fjölda sem tengjast þeim. Til þess að hægt sé að senda reikning- inn áfram þarf að staðfesta (haka við) að réttar upplýsingar sé um að ræða. Ef laga þarf upplýsingar um magn og/eða fjölda eða ekki er bú- ið að skrá þær inn er farið í Upp- flettingar- hreyfingar, F5 Valmynd og valið Breyta tilvísun á færslu og viðkomandi upplýsingar settar inn. Aðrir þættir sem búreikningur þarf að uppfylla svo að hann sé viðurkenndur í endanlegri úr- vinnslu Hagþjónustu landbúnaðar- ins. 1) Búreikningur þarf að vera full- frágenginn, þ.e. efnahagur og rekstur að stemma. 2) Stundum geta verið tiltölulega háar upphæðir í sjóði (lykill 7850). Þetta þarf að meta í hverju tilfelli fyrir sig og leið- rétta sjóðinn þegar svo ber und- ir, t.d. með því að færa á einka- reikning, hafi einkaneysla ekki verið skráð sem skyldi. 3) Bústofnskaup (lyklar 7320 og 7321) verða að vera búgreina- tengdir. 4) Varðandi fyrirframkeyptan áburð í árslok 2004 sem gjald- færður var á sama tíma er nauð- synlegt að hann sé einnig bók- færður á birgðabreytingu á lykil 2930 í kredit (án vsk.) og á móti sem birgðir í debet á lykil 7530. Fyrir búreikninga sem færðir voru á sama hátt í árslok 2003 er nauðsynlegt að sá áburður sé bakfærður á lykil 2930 í debet og kredit á birgðir 7530. Með því er tryggt að sú fjárhæð sem eftir stendur á lykli 2930 hafi einungis að geyma fyrirframkeyptan áburð sem keyptur var á bókhaldsárinu. 5) Búreikningur þarf að innihalda magn og/eða fjölda þess, sem framleitt er á búinu, sem annað- hvort er selt eða notað heima. Einnig er æskilegt að fram komi magn helstu aðfanga, svo sem fóðurs (lyklar 3100-3260), áburður og sáðvara (lyklar 3310-3390) og eldsneytis (lykl- ar 3510-3520). 6) Undir liðnum „ársverk (mán)“ á að skrá þann fjölda mánaða sem starfað var í fullu starfi við bú- ið. Hér er átt við bæði ábúend- ur sjálfa og aðkeypt vinnuafl. Með þessu móti er reynt að meta heildarvinnuna við búr- eksturinn og í framhaldi af því launagreiðslugetuna á hvert árs- verk á búinu. 7) Undir liðnum „Heyuppskera FE“ skal skrá heyuppskeru í fóðureiningum, skipt á milli rúlluheys, þurrheys og votheys. Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlegast hafið samband við Ingibjörgu Sigurðardóttur hjá Hag- þjónustu landbúnaðarins í síma 433-7080. Búreikningar til Hagþjónustu landbúnaðarins

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.