Bændablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 27. ágúst 2009
Fréttir úr bú-
rekstri LbhÍ
Nýir vendir sópa best
Nú í byrjun sumars var Sigtryggur Veigar Herbertsson ráðinn sem
verkefnisstjóri yfir búrekstri skólans um leið og undirritaður fór að
huga að nýju starfi við verkefnið Sprota á sviði nýsköpunar og tækni-
þróunar. Sigtryggur Veigar útskrifaðist með meistaragráðu héðan frá
skólanum nú í vor og er að sjálfsögðu boðinn hjartanlega velkominn
til starfa.
Meira hey eftir fyrri slátt
Hjá okkur, eins og öðrum hér í Borgarfirði og víðar, hefur heyskapur
gengið vonum framar. Uppskeran eftir fyrri slátt svotil meiri en heild-
aruppskeran í fyrra, en á móti kemur að háin er ekki eins mikil. Allt
útlit er fyrir mikil og góð fóðurgæði.
Skotland, magnað!
Í lok júní fóru útskriftarnemendur Bændadeildar í ferðalag til Skot-
lands og var undirritaður fararstjóri í þeirri ferð. Ferðin gekk einstak-
lega vel og voru móttökur skosku bændanna sem heimsóttir voru alveg
með ólíkindum. Ferðin endaði á því að farið var á landbúnaðarsýn-
inguna í Edinborg. Nánari grein fyrir ferðinni verður gerð hér á síðum
blaðsins síðar.
Ný rakstrarvél
Á liðnu vori buðum við út kaup á nýrri rakstrarvél, en óskir okkar
stóðu til þess að fá vél sem gæti rakað í bæði einn og tvo múga.
Fjölmörg tilboð bárust en hagstæðasta boðinu var að sjálfsögðu tekið,
sem að þessu sinni kom frá Jötun Vélum á Selfossi. Hingað kom svo
sk. halarófuvél frá Pöttinger um mitt sumar en vegna framleiðslugalla
á henni hefur ekki verið hægt að nota hana verulega mikið í sumar.
Þetta olli auðvitað vonbrigðum en þeir sómamenn sem vinna hjá Jötni
Vélum hafa gert allt sem þeir gátu til þess að leysa okkar vandamál og
því höfum við nú fengið aðra vél sömu gerðar í staðinn fyrir þá sem
var gölluð. Hafi þeir þökk fyrir.
Vélaver í þrot
Eins og allir vita sem þetta lesa fór Vélaver í þrot og eðlilega fór að-
eins um þá sem eru með DeLaval mjaltaþjóna enda þeir háðir því að
geta fengið sérhæfða þjónustu með skömmum fyrirvara. Sem betur fer
hefur gjaldþrot fyrirtækisins ekki bitnað með nokkrum hætti á þjónust-
unni og ber að þakka það.
Agrómek í 12. sinn!
Já þetta hljómar etv. eins og grín en það er það ekki. Það var sem sagt
ákveðið að athuga hvort bændur og aðrir hefðu enn hug á því að fara
á landbúnaðarsýninguna Agromek sem nú er haldin í lok nóvember.
Til þess að halda verðinu nokkuð hefðbundnu hefur ferðaskipulagið
þó verið stytt um tvær nætur. Um skráningu í ferðina sér Áslaug hjá
Bændaferðum í síma 570 2790.
Og heim heldur féð
Það er vissulega komin tilhlökkun í hóp starfsmanna vegna vænt-
anlegrar heimkomu fjárins af fjalli. Það er alltaf ákveðin spenna í loft-
inu áður en lömbin fara að hlaðast inn í dilkana í réttinni og vænleiki
þeirra sést. Við væntum að sjálfsögðu góðra dilka í ár, eins og ávalt en
vera má að þurrkatíðin hafi truflað vöxtinn eitthvað í sumar.
Reiðvega- og stígagerð
Í sumar sem leið var unnið að gerð á reiðvegi hér á Hvanneyri sem
tengdi sk. veiðihúsaveg við vegslóða „suður í landi“. Fyrir þá fjöl-
mörgu sem þekkja til á Hvanneyri tengir þessi nýji vegur s.s. saman
þessa jarðarparta sem áður var ómögulegt. Nýja leiðin hefur verið
mikið notuð bæði af reiðmönnum en ekki síður af útivistarfólki og er
kærkomin viðbót við annars fínar göngu- og reiðleiðir á Hvanneyri.
Bútæknihúsi LbhÍ – Snorri Sigurðsson
Að vanda var fjölmenni á
Ís lands meistaramótinu í Hrúta-
þukli sem fram fór við Sauð-
fjár setr ið í Sævangi á Ströndum
um síðustu helgi. Keppendur
voru frá öllum landhlutum, alls
50 talsins, auk þess sem rúm-
lega tvöhundruð áhorfend ur
voru á staðnum. Keppt var í
flokkum vanra og óvanra hrúta-
þuklara og veitt vegleg verðlaun
sem Bændasamtökin og Sauð-
fjársetrið gáfu.
Sigurvegarinn í flokki vanra
hrúta þuklara, Guðbrandur Björns-
son Smáhömrum, hlaut að laun-
um farandgripinn „Horft til
him ins“ sem Búnaðarsamband
Húna þings og Stranda gaf fyrir
nokkr um árum til minningar um
Brynjólf Sæmundsson ráðunaut
og smíðaður var af Valgeiri Bene-
diktssyni í Árnesi. Í öðru sæti í
flokki vanra hrútaþuklara varð
Halldór Olgeirsson á Bjarn ar-
stöðum við Öxarfjörð og Gunn-
ar Steingrímsson í Stóra-Holti
í Fljótum varð í þriðja sæti. Í
flokki óvanra sigraði Barabara
Ósk Guðbjartsdóttir í Miðhúsum í
Kollafirði, Steinar Baldursson frá
Odda í Bjarnarfirði hreppti ann-
að sætið og Alda Ýr Ingadóttir
Kaldrananesi það þriðja. Vegleg
verðlaun voru í boði, m.a. skammt-
ar af hrútasæði og áðurnefnd-
ur verðlaunagripur, prjónavörur,
gjafabréf á kaffihlaðborð og fleira.
Auk hrútaþuklsins var ýmislegt
annað til afþreyingar, svo sem leik-
tæki, hestaferðir, ferðir á vagni
aftan í dráttarvél. Þá léku börnin
við heimalningana og landnáms-
hænurnar sem hafa verið í Sævangi
í allt sumar. Hrútaþukl er vitanlega
ekki framkvæmanlegt án hrúta og
það voru þeir Sólon, Hvínur og
Freri frá Broddanesi og Guddi frá
Miðdalsgröf sem biðu þolinmóðir
hjá „íhaldsmönnunum“ meðan um
hundrað hendur þukluðu þá í bak
og fyrir. Dómnefndina skipuðu
eins og jafnan áður þau Jón Viðar
Jónmundsson, Lárus Birgisson og
Svanborg Einarsdóttir.
Að sögn Arnars S. Jóns sonar
framkvæmdastjóra Sauð fjár set-
urs ins hefur verið metaðsókn að
Sauð fjár setrinu í sumar. Aðsóknina
þakkar hann góðu ferðasumri hvað
varðar innlenda ferðamenn. „Auk
þess virðist sem þetta fyrirbæri
sé búið að stimpla sig inn,“ sagði
Arnar að lokum. kse
Meistaramót í hrútaþukli
Grillið sló í gegn
Við greindum frá því í síðasta blaði að bændur, ÍNN, mbl.is og Krónan buðu til þriggja grillveislna um
miðjan júlí. Tilefnið var að kynna matreiðsluþættina Eldum íslenskt sem sýndir eru á mánudagskvöldum
á ÍNN og á vefnum mbl.is. Skemmst er frá því að segja að viðtökurnar voru með eindæmum góðar.
Alls voru gefnir um 3.000 matarskammtar af nauta-, svína- og lambakjöti og grænmeti þessa þrjá
daga og að sögn rekstraraðila Krónunnar jókst aðsókn og sala umtalsvert í verslunum á meðan.
Tiltækið fékk mikla athygli en þegar biðröðin var sem lengst voru um 60 manns í röðinni.
„Íhaldsmennirnir“ tilbúnir í slaginn og hrútarnir líka. Sverrir Guðbrandsson
fremst á myndinni.
Mikael Árni Jónsson við svokallaðan Saurbæ. Bæina smíðar Ásdís Jóns-
dóttir á Hólmavík og eru þeir notaður yfir rotþrær.
Ingibjörg Benediktsdóttir kom á
svæðið á dráttarvél með áletr-
uninni „Fiðruð gæs“. Tilefnið var
síðbúið gæsa partý en hún var
löngu búin að gifta sig þegar það
fór fram. Á stærri myndinni er
Ingibjörg einbeitt við þuklið.
Sigurvegararnir, óvanir hér að ofan
en vanir til hægri.
Dómnefndarmenn skeggræða.