Bændablaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 16
Ef Noregur yrði aðili að Evrópu sambandinu myndu niður greiddar matvörur frá meginlandi Evrópu fljót lega eyði-
leggja búsetuskilyrðin á landsbyggðinni. Þetta segir Berit Hundåla stjórnarmaður í norsku bænda sam tökunum,
Noregs Bondelag.
Berit er sauðfjárbóndi og stundar jafnframt skógar nytjar. ,,Landbúnaðarstefna ESB miðar að stærri búum og
viðskiptum án landamæra. Um 80 prósent af landbúnaðarstyrkjum ESB fer til fimmtungs bænda í Evrópu-
sambandslöndunum,” segir Berit.
Í Noregi er landbúnaðarstefnan samþættuð byggðamálum. Mark miðið er að tryggja fjölbreytileika í byggðum
landsins. Í gildi eru jafnframt stífar reglur um innflutning á kjöti, til að verjast dýrasjúkdómum. Við inngöngu, segir
Berit, myndi tollvernd hverfa jafnframt því sem samevrópskar reglur um stuðning við landbúnað myndu ryðja úr vegi
innlendum reglum. ,,Það yrði ómögulegt að viðhalda landbúnaði í núverandi mynd, ef við færum inn í Evrópu-
sambandið,“ segir Berit.
,,Nær allir bændur í Noregi eru mótfallnir inngöngu. Þeir vita sem er að Norðmenn myndu fá tvö prósent
atkvæðanna í ráðherraráðinu og 13 þingmenn af 745 í Evrópuþinginu,“ segir hún.
Þingkosningar eru í Noregi í haust. Berit telur nánast útilokað að umræða um aðild komist á dagskrá næsta
kjörtímabil. Núverandi vinstri stjórn mun ekki sækja um og stærsti flokkurinn á hægri vængnum, Fram faraflokkurinn,
er mjög gagnrýninn á aðild.
Útgefandi: Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Páll Vilhjálmsson. Prentun: Landsprent
Ísland og
Evrópusambandið
Í stjórnmálasögu lýðveldisins er aðeins eitt mál sem kemst í hálfkvisti
við umræðuna um aðild landsins að Evrópusambandinu og það er
herstöðvarmálið og innganga Íslands í Nato um miðbik síðustu
aldar.
Það er ábyrgðarhluti að efna til innanlandsófriðar um utanríkismál
og smáþjóð er það sérlega hættulegt. Það liggur í hlutarins eðli að
sjálfstæði og fullveldi er smáþjóðum viðkvæmara en stórþjóðum.
Grundvallarbreytingar í utanríkismálum þjóða, hvort heldur stórra
eða smárra, gerast einkum með tvennum hætti. Í fyrsta lagi með
átökum, stríði eða annars konar hagsmunabaráttu, og í öðru lagi með
hægfara langtímaþróun. Afstöðu Íslendinga til aðildar að Evrópu-
sambandinu verður að meta út frá seinna sjónarhorninu, hægfara
langtímaþróun.
Sjálfstæðisbaráttan er samofin stjórnmálum og varðveislu íslenskrar
menningar síðustu 150 árin. Markmið sjálfstæðisbaráttunnar var fullt
forræði Íslendinga í eigin málum. Í áföngum tókst að ná markmiðinu
og nærtækt að líta svo á að síðasti stóri áfanginn hafi verið útfærsla
landhelginnar í 200 mílur á áttunda áratugnum.
Á meðan Íslendingar sóttust eftir sjálfsforræði varð til málamiðlun á
meginlandi Evrópu um að framselja forræði í lykilmálum þjóðríkja til
yfirþjóðlegs valds. Tvær heimsstyrjaldir, báðar með upptök í Evrópu,
leiddu stórþjóðirnar Frakka og Þjóðverja að þessari niðurstöðu og
nágrannaþjóðir létu til leiðast. Kola- og stálbandalagið var undanfari
Evrópusambandsins en kol og stál voru ein mikilvægustu hráefni
stríðsrekstrar. Með sameiginlegu forræði yfir auðlindum ætluðu
meginlandsríkin að draga úr innbyrðis átökum.
Evrópusambandið er málamiðlun meginlandsþjóða álfunnar.
Sambandið er einnig orðið valdamiðstöð þangað sem þjóðir leita
skjóls frá voldugum nágrönnum, Írar gagnvart Bretum og Finnar frá
Rússum. Þjóðir sem liggja ekki nærri átak asvæðum álfunnar eru með
margvíslega fyrirvara á samstarfinu. Bretar hafa ekki tekið upp evru,
Írar felldu Lissabonsáttmálann, Svíar og Danir höfnuðu gjaldmiðla-
samstarfi og svo má áfram telja. Jaðarþjóðir Evrópu eru af sögulegum
og landfræðilegum ástæðum tregar til málamiðlana sem kjarnaþjóð-
irnar hafa talið nauðsynlegar.
Ísland er bæði hvað sögu og landafræði varðar á annarri siglingu en
Evrópa meginlandsins. Ef við nánast upp úr þurru gerbreytum utan-
ríkis stefnu okkar til að ganga í Evrópusambandið köstum við hugsunar-
laust fyrir róða stefnumiðum sem hafa dugað öldum saman.
Nær allir bændur í Noregi eru mótfallnir inngöngu. Þeir vita sem er að Norðmenn myndu fá tvö prósent
atkvæðanna í ráðherraráðinu og 13 þingmenn af 745 í Evrópuþinginu,“ segir Berit Hundåla stjórnarmaður
í norsku bændasamtökunum, Noregs Bondelag sem nýlega heimsótti Ísland. Hér er hún við Barnafossa.
Maðurinn í gulu peysunni í bakgrunninum er Lars Göran formaður sænsku bændasamtakanna.
ESBaðild
myndi eyðileggja
landsbyggðina
Tillagan og atkvæðin
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um að ild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin
þjóðar atkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undir búning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim
sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar.
Atkvæðagreiðsla á Alþingi 16. júlí 2009. Alls greiddu 33 atkvæði með tillögunni, 28 greiddu atkvæði gegn og 2 þingmenn sátu hjá.
Já sögðu:
Samfylkingin
Jóhanna Sigurðardóttir, Helgi Hjörvar, Valgerður Bjarnadóttir,
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Össur Skarphéðinsson, Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, Skúli Helgason, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Árni Páll
Árnason, Katrín Júlíusdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Magnús Orri
Schram, Björgvin G. Sigurðsson, Oddný Guðbjörg Harðardóttir,
Róbert Marshall, Kristján Möller, Guðbjartur Hannesson, Ólína
Þorvarðardóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jónína Rós Guð munds-
dóttir.
Vinstri græn
Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Lilja
Mós es dóttir, Ögmundur Jónasson, Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey
Gunnarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir.
Sjálfstæðisflokkur
Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Framsóknarflokkur
Siv Friðleifsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson.
Borgarahreyfingin
Þráinn Bertelsson.
Nei sögðu:
Sjálfstæðisflokkur
Illugi Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Ólöf Nordal, Birgir Ármannsson,
Bjarni Benediktsson, Jón Gunnarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir,
Árni Johnsen, Unnur Brá Konráðsdóttir, Kristján Þór Júlíusson, Tryggvi
Þór Herbertsson, Ásbjörn Óttarsson, Einar K. Guðfinnsson og
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Vinstri græn
Atli Gíslason, Þuríður Backman, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur
Einar Daðason, Jón Bjarnason.
Framsóknarflokkur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Vigdís Hauksdóttir, Eygló
Harðardóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Höskuldur Þórhallsson, Sigurður
Ingi Jóhanns son.
Borgarahreyfingin
Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir.
Sátu hjá:
Sjálfstæðisflokkur
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Vinstri græn
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Heimssýn þakkar
eftirtöldum stuðninginn:
Búnaðarsamband Austurlands
Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Búnaðarsamband Kjalarnesþings
Búnaðarsamband Húnaþings – og Stranda
Búnaðarsamband Skagfirðinga
Búnaðarsamband Suðurlands
Búnaðarsamband S-Þingeyinga
Búnaðarsamband N-Þingeyinga
Búnaðarsamband Vestfjarða
Búnaðarsamtök Vesturlands
SEPTEMBER 2009