Bændablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 23
19 Bændablaðið | fimmtudagur 27. ágúst 2009
Sumarið hefur gengið vel hjá
Ferðaþjónustu bænda í sumar og
er ljóst að erlendir jafnt sem inn-
lendir gestir kunna vel að meta
þá þjónustu sem ferðaþjónustu-
bændur hafa upp á að bjóða.
Það sem gerir Ferðaþjónustu
bænda sem félagasamtök einstaka
er tengingin við sveitina, gott
aðgengi um allt land og fjölbreytn-
in innan samtakanna. Félagar í
Ferðaþjónustu bænda bjóða upp á
fjölbreytta gistimöguleika; heima-
gistingu, gistihús bænda, sveita-
hótel og sumarhús, auk þess sem
margir bjóða upp á veitingar og
ýmiss konar afþreyingarmöguleika,
t.d. gönguferðir, hestaferðir, veiði,
golf og fjölskylduvæna afþreyingu.
Þá skipar matur mikilvægari sess
í ferðaþjónustu en áður og leggja
ferðaþjónustubændur víða áherslu
á heimilislegan mat og mat úr hér-
aði. Ferðaþjónusta bænda er með
eigið gæðakerfi og flokkunarkerfi
á gistingu og hefur sú vinna skipt
miklu máli hvað varðar bættan
aðbúnað og þjónustu við gesti.
Ferðaskrifstofan Ferðaþjónusta
bænda – Bændaferðir, sem er í
eigu bænda, sér um markaðs-
og kynningarmál allra félaga í
Ferðaþjónustu bænda. Með því
að gerast aðili að Félagi ferðaþjón-
ustubænda (hagsmunafélaginu)
fer viðkomandi inn í allt kynning-
arefni sem gefið er út af ferðaskrif-
stofunni og má þar nefna www.
sveit.is, www.farmholidays.is og
upplýsingabæklinga á ensku og
íslenska bæklinginn Upp í sveit.
Kynningar- og markaðsstarfið
nær víða um heim auk þess sem
Ferðaþjónusta bænda hefur sett upp
bókunarvef sem veitir viðskipta-
vinum tækifæri til að bóka gistingu
beint í gegnum netið.
Undirbúningur fyrir árið 2010 er
hafinn og vill Ferðaþjónusta bænda
veita ferðaþjónustuaðilum sem
stunda ferðaþjónustu á lögbýlum
en eru ekki félagsmenn tækifæri til
að sækja um aðild. Mikilvægt er að
starfsemin hafi öll tilskilin leyfi og
að ferðaþjónusta hafi verið starf-
andi í sumar. Umsóknareyðublöð
er að finna á www.sveit.is en auk
þess veitir Berglind gæðastjóri nán-
ari upplýsingar um málið (netfang:
berglind@farmholidays.is, beinn
sími: 570-2706).
Ágætis sumar hjá Ferðaþjónustu bænda
'
(
Viltu gerast félagi að
Ferðaþjónustu bænda?
Umsóknarfrestur fyrir árið 2010 er til 7. september 2009
Nánari upplýsingar er að finna á www.sveit.is og hjá
Berglindi gæðastjóra, netfang: berglind@farmholidays.is,
beinn sími: 570-2706.
Frá Eyvindará II. Ljósm. Joshua Contreras.
„Það er óhætt að segja að þetta
hafi gengið vel hjá okkur, bæði
þróunarvinnan og framleiðsl-
an, og viðtökur hafa verið
einkar góðar, langflestir kett-
ir eru ánægðir með vöruna,“
segir Þorleifur Ágústsson,
framkvæmdastjóri Murrs ehf.
í Súðavík og einn eigenda fyr-
irtækisins. Hann er dýralífeðl-
isfræðingur að mennt og hefur
allt frá árinu 2003 velt fyrir sér
hugmyndinni um að þróa gæða
katta- og hundamat þar sem
áhersla er lögð á rétta samsetn-
ingu fóðursins frá næringarsjón-
armiði og nýta til þess íslenskt
hráefni í háum gæðaflokki. Nú
er framleiðslan komin í gang
og fyrirtækinu hefur verið val-
inn staður í Súðavík þar sem
fyrir hendi er gott húsnæði og
frábært starfsfólk, en fyrirtækið
skapar fimm ný störf á staðnum
– sambærilegt við 3.500 manna
vinnustað í Reykjavík, svo grip-
ið sé til klassískra höfðatölu-
reikninga!
Murr framleiðir nú heilfóður,
Murr kattamat, sem unnið er úr
samsettu hráefni úr sauðfé, naut-
um og svínum, en Þorleifur segir
að aðeins sé unnið úr þeim vefj-
um sem uppfylla ströngustu regl-
ur um heilbrigði og ekkert notað
annað en það sem tíðkast að nota
til manneldis. Um þessar mundir
er svo að bætast við ný vara, Murr
lúxus lamb, sem einungis er fram-
leidd úr lambaafurðum og eins
er að koma á markað Urr smá-
hundamatur. Þorleifur segir hann
henta fyrir alla hunda, þó svo að
leiðbeiningar miðist við hunda að
8 kílóum að þyngd.
Þorleifur segir að vissulega
hafi eitt og annað komið upp á
undirbúningstíma, enda um að
ræða flókna framleiðslulínu.
„En þau mál hafa ævinlega verið
leyst og við höfum góðan aðgang
að sérfræðingum á Ísafirði sem
reynst hafa okkur afar vel,“ segir
Þorleifur og nefnir m.a. Vélsmiðju
Ísafjarðar, Vélsmiðjuna Þrist og þá
hafi þekking manna á svæðinu á
frystitækni komið sér vel; þannig
hafi Guðmundur Þór Kristjánsson
vélstjóri reynst félaginu vel.
Ekki auðvelt að keppa við þekkt
innflutt merki
„Það er auðvitað ekki auðvelt að
keppa við öll þessi þekktu inn-
fluttu merki og það hefur líka
borið á því að fólk trúi í blindni
því sem sagt er í flottum og dýrum
auglýsingum um innfluttan gælu-
dýramat, en staðreyndin er sú að
við hjá Murr nýtum okkar fag-
þekkingu og vinnum okkar vöru
úr besta fáanlega hráefni sem völ
er á, því geta okkar kaupendur
treyst,“ segir Þorleifur. Dr. Bragi
Líndal Ólafsson fóðurfræðingur er
framleiðslustjóri Murrs, en hann
býr yfir gríðarlegri þekkingu á
sviði fóðurfræði og hefur áratuga
reynslu á því sviði. „Ég fullyrði að
það stendur honum enginn framar
í fóðurfræðinni,“ segir Þorleifur.
Hann nefnir að aðgengi að
úrvals hráefni skipti sköpum.
Þannig hafi bæði Norðlenska slát-
urhúsið og SHA-afurðir tekið virk-
an þátt í þróunarvinnunni. „Við
flytjum allt hráefni hingað vestur
og vissulega er flutningskostnaður
mikill, en á móti þeim stóra bita
má nefna að við fengum frábæra
aðstöðu til afnota í Súðavík og
starfsfólkið er eins gott og hægt
er að hugsa sér,“ segir Þorleifur.
„Framleiðslugetan hjá okkur er
mikil, en hún miðast við sölu
hverju sinni. Við höfum þessa fínu
vinnsluaðstöðu og því getum við
breytt framleiðsluhraða og magni
mjög auðveldlega. Okkar mark-
mið er að ná góðri fótfestu hér á
landi og raunar víðar, enda erum
við að framleiða mjög góða vöru á
góðu verði,“ segir Þorleifur.
Hann nefnir einnig að hráefnið
sem fyrirtækið notar í sína fram-
leiðslu hafi verið vannýtt áður, en
óhætt sé að slá því föstu að marg-
ar flugur séu slegnar í einu höggi
með framleiðlu á íslensku gæða-
fóðri fyrir gæludýr. „Við spörum
gjaldeyri vegna minni innflutn-
ings, betri nýting fæst í kjötfram-
leiðslunni, úrgangur verður minni
og ný störf hafa orðið til. Vonandi
skilar þetta allt sér svo á end-
anum til grunnframleiðendanna,
bændanna, en okkur Íslendingum
verður æ ljósara hve mikilvægir
þeir eru íslensku þjóðfélagi,“ segir
Þorleifur.
Starfsemi Murr í Súðavík komin í fullan gang
Aðgangur að gæða-
hráefni skiptir sköpum
Þorleifur bar hugmynd sína um framleiðslu á gæludýrafóðri undir föður
sinn og systur, þau Ágúst Þorleifsson, fyrrverandi héraðsdýralækni á
Akureyri, og Elfu, dýralækni á Akureyri, en hér eru þau saman á góðri
stund í Grunnavík í Jökulfjörðum.
Sparaður gjaldeyrir, betri nýting,
minni úrgangur og ný störf. Allt er
þetta ávinningur af því að félagið
Murr hóf framleiðslu á gæludýra-
fóðri vestur í Súðavík nú nýverið.
Þar hefur félagið til umráða góða
aðstöðu, en myndin er einmitt
tekin af Þorleifi þar innandyra.
GÓÐ KAUP
SP-902B, stærð 107x107 sm.
sturtuklefi - margar gerðir
MX-390 slöngubátur
m/álgólfi, stærð 390x173 sm
SP-20SN, stærð 123x123 sm
Infra rauður saunaklefi
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
S. 5445550
Möguleiki á að taka reykrör
upp úr vél eða aftur úr henni.
Öryggisgler fyrir eldhólfi.
Trekkspjald fylgir.
Sp-302C,
90x90 sm. og 96x96 sm.
MA-420 slöngubátur
m/álgólfi, stærð 430x202 sm
Roro bjálkasaunaklefi,
stærð 205x174 sm.