Bændablaðið - 27.08.2009, Page 27
23 Bændablaðið | fimmtudagur 27. ágúst 2009
Út er komin bókin . . . og svo kom
Ferguson, sögur um Ferguson-
dráttarvélarnar á Íslandi í máli
og myndum. Höfundur er Bjarni
Guðmundsson, fyrrv. prófessor
við LBHÍ á Hvanneyri og for-
stöðumaður Landbúnaðarsafns
Íslands. Tilefni bókarinnar er að 60
ár eru nú liðin síðan innflutningur
á Ferguson-dráttarvélum hófst til
Íslands. Um það leyti átti sér stað
bylting í íslenskum landbúnaði
með almennri vélvæðingu búskap-
arins en í ýmsum efnum mátti þá
finna verklag og búskaparhætti hér
á landi sem höfðu verið óbreyttir
öldum saman.
Við upphaf þessa skeiðs áraði
ekki vel í íslensku þjóðlífi. Stutt
var þá frá því heimsstyrjöldinni
síðari lauk, efnahagur var bágur
og skömmtun á matvörum og fleiri
nauðþurftum. Til þess var tekið
að Íslendingar nutu þá Marshall-
aðstoðar eins og þjóðir á meg-
inlandi Evrópu sem voru í rúst eftir
heimsstyrjöldina.
Það er inn í þessar kringum-
stæður sem Ferguson-dráttarvélin
kemur til sögunnar hér á landi í
fylgd ýmissa annarra tegunda drátt-
arvéla og búvéla. Hennar beið hins
vegar það hlutskipti að verða flest-
um öðrum vélum og tækjum frekar
táknmynd vélvæðingar í landbún-
aði. Því réð annars vegar það að
hún kynnti ýmsar hagnýtar nýjung-
ar í hönnun dráttarvéla, svo sem
þrítengið og vökvalyftuna, sem
m.a. gat flutt viðspyrnu vélarinn-
ar á afturhjólin. Mikill fjöldi sér-
hæfðra vinnutækja var einnig fáan-
legur á vélina, flest hönnuð á þrí-
tengi hennar og vökvalyftu. Einnig
var þyngdarpunktur hennar lægri
en á sambærilegum vélum sem dró
úr veltihættu hennar. Hugmyndir
að þessum nýjungum átti hönnuður
vélarinnar, Harry Ferguson, og
nánustu samstarfsmenn hans.
Hitt atriðið sem réð útbreiðslu
vélarinnar var að umboðið hér á
landi, Dráttarvélar hf., var í eigu
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga sem í gegnum undirdeildir
sínar, kaupfélögin, var um það leyti
aðal viðskiptaaðili bænda.
Bjarni Guðmundsson, sem um
langan aldur hefur stundað rann-
sóknir og kennslu í bútækni, dregur
í bókinni fram ótrúlega margt sem
varðar sögu Ferguson-vélarinnar hér
á landi. Hann hefur um árabil safn-
að fróðleik um vélina. Þannig hefur
hann aflað margháttaðra upplýsinga
frá mönnum sem best þekktu til og
höfðu sjálfir verið þátttakendur í
þeirri sögu en eru nú fallnir frá.
Um þriðjungur bókarinnar er
síðan frásögn tíu bænda, sem rifja
upp þegar Ferguson kom á bú
þeirra, og ellefta frásögnin er svo
eftir Bjarna sjálfan. Á ýmsan hátt
er þessi hluti bókarinnar eftirminni-
legastur. Fyrsta og lengsta frásögn-
in er eftir Magnús Sigurðsson á
Gilsbakka í Hvítársíðu, sem nú er
nýlátinn.
Bókin … og svo kom Ferguson
er mikil fróðleiksnáma og skemmti-
leg aflestrar. Jafnframt vekur hún
spurningar. Eiga aðrar atvinnu-
greinar landsmanna viðlíka rit;
sjávarútvegur, iðnaður og verslun
og viðskipti? Því skal ekki svarað
hér og enn síður neitað. Hins vegar
segir mér svo hugur að þessi bók
höfði til lesenda töluvert út fyrir
raðir landbúnaðar og dreifbýlis.
Hér er dreginn saman mikill fróð-
leikur um afmarkað svið sem á hins
vegar tengingu vítt og breitt með
þjóðinni, og kveikt getur marghátt-
uð áhugaverð hugsanatengsl með
lesendum.
Þannig á góð bók að vera.
Matthías Eggertsson
Skil á vorbókum í sauðfjárrækt-
inni hafa verið ákaflega góð í
sumar. Með umbótum í fjar-
skiptamálum fjölgar með hverj-
um deginum þeim skýrsluhöld-
urum sem færa skýrsluhald sitt
að öllu leyti sjálfir í FJARVIS.
IS. Þrátt fyrir þetta eru enn
mjög margir sem eiga eftir að
skila vorgögnum í sauðfjár-
ræktinni í uppgjör. Því er beint
til þeirra og bretta upp ermarn-
ar og koma skýrsluhaldinu sem
fyrst til uppgjörs.
Ein ástæða þess að þetta þarf
að gerast sem fyrst er að að öðrum
kosti eiga menn ekki möguleika
á að fá haustbók fyrir haustið.
Haustbókin er með marvíslegum
upplýsingum sem eiga að geta
komið öllum fjáreigendum, sem
vilja sinna ræktunarstarfi í sinni
hjörð, að einhverjum notum. Þess
vegna er eðlilegt að hún sé fyrir
hendi við hauststörfin.
Strangt til tekið er ekki bund-
inn skiladagur á vorbókinni hjá
öðrum en þeim sem eru að vinna
sig til þátttöku í gæðastýring-
unni hverju sinni. Aftur á móti
er lokadagur skila á skýrsluhald-
inu 20. janúar og eftir að vinnsla
á haustbókunum byrjar seint í
október mun hún hafa allan for-
gang. Þannig taka þeir slóðar
sem ekki ljúka skilum á vorbók
fyrir þann tíma þá áhættu að hún
komist ekki það snemma í upp-
gjör að haustbók fyrir síðari hluta
skýrsluhaldsins berist áður en
skilakröfur skýrsluhaldsins falla
í janúar. Þetta þarf öllum þeim
aðilum að vera ljóst sem setja sig
í slíka stöðu.
Það ánægjulega er að talsverð
fjölgun hefur enn orðið á skýrslu-
höldurum á þessu ári. Ástæða er
því til að nota tækifærið og hvetja
alla fjáreigendur, sem ekki eru
með fé sitt skýrslufært þegar í hinu
sameiginlega skýrsluhaldi, að
huga að því að gera slíkt. Eftir að
merkingarskylda var sett, á allt fé
að vera skráð í hinn sameiginlega
gagnagrunn. Fyrir þá aðila sem
hafa gott tölvusamband er færsla á
skýrsluhaldinu í FJARVIS.IS leik-
ur einn. Leikur sem ástæða er til
að hvetja alla, sem ekki taka þátt í
honum nú þegar, til að bætast sem
fyrst í hópinn til fullrar þátttöku.
JVJ
Nú er ekki seinna vænna
Ritfregn
. . . og svo kom Ferguson
Höfundur afhendir Jóni Bjarnasyni
landbúnaðarráðherra eintak af bók-
inni um Ferguson. Forsíða bók-
arinnar til vinstri.
Hin árlega landskeppni Smala-
hundafélags Íslands verður
haldin 29.-30. ágúst að Miðengi
í Grímsnesi. Að þessu sinni er
það nýstofnuð smalahundadeild
Ár nes sýslu sem heldur keppnina
en mikill áhugi var fyrir stofnun
deild arinnar og eru félagsmenn
rúm lega 20 talsins.
Búist er við metþátttöku þar
sem áhugi bænda og annarra á því
að eignast góðan smalahund hefur
stóraukist. Þá hafa félagsmenn
reynt að betrumbæta hundakostinn
með því að flytja inn nýtt blóð til
landsins. Verður því spennandi að
sjá hvernig til hefur tekist.
Keppnin byrjar á laugardag-
inn kl. 11 á unghundum og síðan
verður keppt í B-flokki og endað á
A-flokki. Á sunnudag hefst keppn-
in kl. 11 og verða þá úrslit í B- og
A-flokki.
Alla nánari uppl. er að finna
á vef Smalahundafélags Íslands
www.smalahundur.123.is
Á Miðengi er veitingasala, tjald-
stæði og snyrtiaðstaða. Þetta er
kjörið tækifæri fyrir alla fjölskyld-
una að skella sér í útilegu og eiga
góða helgi og frábæra skemmtun.
Frétt frá Smalahundafélagi Íslands
Landsmót Smalahundafélags Íslands um helgina
Haldið í Miðengi í Grímsnesi
Umsóknir um styrk
vegna þróunar- og
jarðabótaverkefna
Umsóknir eiga að berast til
viðkomandi búnaðarsam-
bands/ leiðbeiningamið-
stöðvar, annað hvort með
umsóknareyðublaði eða
með vefumsókn sem hvort
tveggja er að finna á www.
bondi.is. Í eftirfarandi styrki
er hægt að sækja um núna:
Endurræktun vegna að-
lög unar að lífrænum bú-
skap
Beitarstjórn og landnýt-
ing
Viðhald framræslu lands
vegna ræktunar
Kölkun túna
Jarðrækt (korn-, tún- og
grænfóðurrækt)
ROTÞRÆR – SITURLAGNIR
Heildarlausnir – réttar
lausnir. Heildarfrágangur
til sýnis á staðnum ásamt
teikningum og
leiðbeiningum.
VATNSGEYMAR 100 –
50,000 ltr.
LINDABRUNNAR - margar
gerðir – leiðbeiningar á
staðnum.
"%
&
' (
)*
&
+,,
-
-.
/+,
,/,/
&
0 .
/+1
/2,/
3 .
4 %
&
5 .
666% %
7
$
8 !
( %
JÚGURHALDARAR
Vélaval-Varmahlíð hf.
sími: 453-8888
Kornsekkir og
plastinnlegg
- Eigum til á
lager mismun-
andi stærðir
kornsekki sem
eru fullopnir
að ofan og
með/án los-
unarops í botni.
- Bjóðum einnig upp á
sterka plastinnlegg sem
henta fyrir kornsekkina.
Legur:
- Eigum til
legum á lager –
vottuð gæði.
Brettatjakkar:
- Mjög gott
úrval til af
prettatjökkum
á lager – mál-
aðir, galvan-
iseraðir og
ryðfríir.
Efnavara:
- Erum með mjög breiða
línu í efnavöru, smurefni,
með vottuð smurefni fyrir
matvælaiðnað.
Leitið upplýsingar hjá okkur
Tunguháls 10
110 Reykjavík
Sími: 517 2220