Bændablaðið - 27.08.2009, Síða 32
14. tölublað 2009 Fimmtudagur 27. ágúst
Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út
10. september
Á dögunum héldu Skólagarðar
Reykjavíkur árlega uppskeru-
hátíð sína en ríflega sexhundruð
börn á aldrinum 8 til 12 ára hafa
í sumar ræktað sitt eigið græn-
meti, kryddjurtir og sumarblóm
á vegum skólagarðanna. Ekki
þarf að efa að það er búbót í því
sem börnin hafa komið heim með
færandi hendi.
Sjö skólagarðar eru starfræktir í
Reykjavík, í Gorvík við Strandveg,
Kotmýri við Logafold, í Laugardal
við Holtaveg, í Skerjafirði
við Þorragötu, Bjarmalandi í
Fossvogi, í Jaðarseli og í Árbæ við
Rafstöðvarveg. Bændablaðið fór
og fylgdist með uppskeruhátíðinni
í Bjarmalandi og ræddi jafnframt
við Auði Jónsdóttur yfirverkstjóra
Skólagarðanna. Duglega rigndi á
garðyrkjufólkið þegar blaðamaður
mætti á svæðið en enginn lét það á
sig fá. Stuttu seinna stytti líka upp
og gerði prýðisveður.
Mikil ásókn í skólagarðana
Auður segir mikla ásókn hafa verið í
skólagarðana í sumar. „Það var mik-
ill áhugi og mikil ásókn í pláss hjá
okkur og því miður tókst okkur ekki
að anna allri eftirspurninni. Hvort
það tekst næsta sumar er ekki hægt
að segja til um á þessari stundu en
ég vona það svo sannarlega. Börnin
koma til með að búa að þessu alla
ævi, að hafa lært að rækta sitt græn-
meti hér.“
Skólagarðarnir útvega allt útsæði
sem börnin þurfa og fær hvert barn
átján fermetra garðpláss til sinna
nota. Mikil fjölbreytni er í rækt-
uninni en meðal þess sem börnin
rækta eru kartöflur, radísur, kál-
plöntur, garðablóðberg og sum-
arblóm. Auður segir börnin hafa
verið gríðarlega áhugasöm. „Þau
eru búin að vera vakin og sofin yfir
þessu. Sumarið hefur verið þurrt
og börnin hafa hlaupið hér ferð í
ferð með vökvunarkönnur og hafa
gætt þessa eins og sjáaldurs augna
sinna. Foreldrar hafa líka verið
mjög duglegir að koma með börn-
unum sínum og sinna þessu með
þeim.“
Bændablaðið óskar börnunum
hjá Skólagörðunum til hamingju
með afrakstur sumarins.
-fr
Uppskeruhátíð Skólagarða Reykjavíkur
Garðyrkjufólk framtíðarinnar
lét ekki rigningu á sig fá
Frú Lauga opnaði dyrnar
að bændamarkaði sínum við
Laugalæk 6 þann 7. ágúst sl.
Frú Lauga er heiti sem þau
Arnar Bjarnason og Rakel
Halldórsdóttir hafa gefið verslun
sinni, eða markaði, þar sem ætl-
unin er að bjóða upp á búvöru,
vín og sjávarafurðir sem borgar-
búum hefur oft reynst örðugt að
nálgast.
Árstíðabundnar gæðavörur
Arnar segir að hugmyndin hafi
verið að komast í gott samband við
framleiðendur með það í huga að
geta boðið upp á ferskar og góðar
vörur – með sérstaka áherslu vörur
sem ekki sjást í hillum stórmark-
aða. Hann segir að þau hafi farið
hringferð um landið í sumar til
að kynnast bændum og búvöru
þeirra og almennt hafi þeim verið
vel tekið. „Upplifun heimsókna
var mjög jákvæð og greinilegt að
margir bændur eru að byrjað eða
eru með á prjónum ýmsa spenn-
andi hluti, með endurvakningu
gamalla hefða og nýjar hugmyndir.
Grænmeti er í forgrunni hjá okkur
í sumar, en með haustinu fáum við
ýmsar vörur frá bændum sem þeir
hafa annars verið að selja ferða-
mönnum. Síðan koma berin, allar
kjötafurðirnar sem tengjast slátur-
tíð og auðvitað villibráðin. Hann
segir mikilvægt að gott og traust
samband myndist á milli framleið-
enda, Frú Laugu og neytendanna.
„Traust skiptir öllu máli varðandi
gæði vöru og upplýsingar.“
Frú Lauga á rætur að rekja til fyr-
irtækisins Víns og matar, sem þau
Arnar og Rakel stofnuðu árið 2003
með innflutning á víni, ólífuolíu,
hunangi, ediki ofl. að markmiði.
„Eitthvert horn verður í búðinni
með þá vöru og gefst fólki t.a.m.
kostur á að smakka Vín vikunn-
ar síðdegis á föstudögum.“ Arnar
segir að þau hafi enn ekki farið út
í neina framleiðslu sjálf en þau séu
opin fyrir hugsanlegu samstarfi við
bændur og fagmenn til þess að það
geti hugsanlega gerst.
Arnar segir að viðtökur borgar-
búa hafi verið afar góðar og nóg
verið að gera, en markaðurinn er
opinn miðvikudaga og fimmtu-
daga 12-18, föstudaga 12-19 og
laugardaga 10-18. Frekari upplýs-
ingar um vöruúrval er að finna á
vef Frú Laugu, www.frulauga.is,
auk þess sem þar er að finna upp-
skriftir og fróðleik um vörurnar og
matvælin sem eru í boði. - smh
Frú Lauga við Laugalæk
Bændamarkaður í borg