Bændablaðið - 27.08.2009, Qupperneq 36
13. tölublað 2009 Fimmtudagur 9. júlí
Næsta tölublað Bændablaðsins kemur út
27. ágúst
Allt til rafsuðu
Hollvinafélag Húsabakka sem
stendur fyrir uppbyggingu Nátt-
úruseturs á Húsabakka í Svarf-
aðardal, hefur tekið í notkun
fugla skoðunarhús í Friðlandi
Svarf dæla. Bygging hússins er
liður í átaki félagsins í að bæta
aðgengi að friðlandinu sem
bænd ur í Svarfaðardal höfðu for-
göngu um að stofna árið 1972.
Nýja fuglaskoðunarhúsið
stend ur við Tjarnartjörn skammt
neð an við Húsabakka í Svarfaðar-
dal en frá Húsabakka liggja stik-
aðar gönguleiðir um friðlandið.
Í húsinu eru fuglabækur á þrem
tungumálum og veggskilti með
upp lýsingum fyrir áhugasama
fugla skoðara. Það er 4 x 2 metrar
að flatarmáli og rúmar auðveldlega
litla skólahópa en Náttúrusetrið
á Húsabakka býður m.a. upp á
fræðslu um fugla og umhverfis-
mennt fyrir grunnskóla- og leik-
skólabörn.
Fyrirhugað er að reisa annað
fugla skoðunarhús við Hrísatjörn
skammt frá Dalvík auk þess sem
þar verða lagðir stígar með hvers
kyns fróðleik um fuglalífið og
náttúruna.
Í vor tók Grunnskóli Dalvíkur-
byggðar Friðland Svarfdæla í fóst-
ur en í því felst m.a. að krakkarn ir
sjá um eftirlit og viðhald á stígum,
stikum og skiltum en Dal vík ur-
byggð leggi þeim til efni og að-
stöðu.
Landsmót Ungmennafélags
Ís lands, hið 26. í röðinni, hefst á
Akur eyri í dag, fimmtudaginn
9. júlí og stendur fram á sunnu-
dag. Hundrað ár eru liðin frá því
UMFÍ efndi til fyrsta landsmóts-
ins og var það haldið á Akureyri
sumar ið 1909, en landsmót hafa
tvívegis í millitíðinni verið haldin
á Akureyri, 1955 og 1981. Undir-
búningur vegna 100 ára afmælis-
landsmótsins hefur staðið yfir í
rúm tvö ár og var á lokaspretti
þegar Bændablaðið hitti Óskar
Þór Halldórsson verkefnisstjóra
að máli á mótssvæðinu í liðinni
viku.
„Það stefnir allt í mjög glæsi-
legt landsmót, enda ærið tilefni
að fagna þeim áfanga að landsmót
hafa verið haldin á Íslandi í 100
ár,“ segir Óskar Þór. Keppendur
og þátttakendur í einstökum grein-
um mótsins eru fast að 2000 talsins
og segir Óskar Þór að keppt verði í
öllum helstu landsmótsgreinum, en
að auki bætast við greinar. „Þannig
er til að mynda keppt í júdó að
þessu sinni enda mikil hefð fyrir
iðkun þeirrar greinar á Akureyri.
Þá verður keppt í sjósundi sem ekki
hefur verið áður á dagskrá, „en
aðstaða til sjósund er óvíða betri en
einmitt hér í bænum,“ segir Óskar
Þór. Einhverjir sundkappanna
ætla að feta í fótspor Lárusar Rist
sem fyrstur manna synti þvert yfir
Eyjafjörðinn
Landsmótshlaup er einnig á
meðal nýjunga, en efnt er til þess
í tilefni af aldarafmæli landsmót-
anna en um er að ræða eina af
kynningagreinum mótsins. „Í leið-
inni er þetta 100 ára afmælishlaup
landsmótanna og mér sýnist það
falla vel í kramið, þátttakan er
mjög góð,“ segir Óskar Þór. Boðið
verður upp á vegalengdir við allra
hæfi, allt frá þriggja kílómetra
skemmtiskokki upp í heilt maraþon
og er þetta í fyrsta sinn sem boðið
er upp á maraþonhlaup á Akureyri.
„Við höfum fengið mjög góð við-
brögð við því, þátttakendur verða
í það minnsta 50 í maraþoninu og
koma sumir um langan veg til að
taka þátt, meira að segja erlendis
frá. Við vonumst til að þetta verði
til þess að hlaup af þessu tagi verði
reglulegur viðburður hér í bænum,“
segir Óskar Þór. Skráningu í
Landsmótshlaupið lýkur kl. 17
daginn fyrir hlaup, en það fer fram
laugardaginn 11. júlí. „Þetta verð-
ur einn af stóru viðburðum mótsins
og ég er afar ánægður með að við
getum boðið upp á svo glæsilegt
hlaup á þessum merku tímamót-
um,“ segir hann.
Gert er ráð fyrir gríðarlegum
fjölda gesta á mótið, keppenda-
tjaldbúðir verða settar upp við
Rangárvelli, almenn tjaldsvæði eru
við Þórunnarstræti og að Hömrum
og í nágrenni bæjarins, gistirými
sem til staðar er í bænum er fullt
og þá hafa bæjarbúar brugðist vel
við óskum um að leigja gestum og
gangandi íbúðir sínar landsmóts-
dagana. Fjöldi gesta dvelur svo
einnig í heimahúsum um allan bæ.
Undirbúningur vegna lands-
mótsins hefur staðið yfir í rúm tvö
ár og hefur heilmiklu verið kostað
til, miklar framkvæmdir verið á
íþróttasvæði Þórs þar sem hefur
risið glæsilegur frjálsíþrótta- og
knattspyrnuvöllur sem Óskar Þór
segir vera einn þann besta á land-
inu. „Hann mun nýtast vel til
framtíðar litið og mun án efa verða
mikil lyftistöng fyrir frjálsar íþrótt-
ir á Akureyri og nágrannabyggðum.
Þessi nýi völlur er annar tveggja 8
brauta hlaupavalla landsins, hinn er
Laugardalsvöllur.
Forsetahjónin, Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff,
munu sækja Landsmót UMFÍ
heim og verða m.a. viðstödd
setningarathöfn mótsins á föstu-
dagskvöld. Þá munu systk-
inin KK og Ellen Kristjánsbörn
koma fram á fjölskylduskemmt-
un á Ráðhústorgi sama kvöld,
ásamt Hvanndalsbræðrum,
Leikhúsbandinu, Halla og Góa, Á
móti sól og Magna Ásgeirssyni svo
einhverjir séu nefndir. Leiktæki
verða sett upp fyrir börn og í
boði verða áhugaverðar göngu-
ferðir með leiðsögn. Þá stendur
Landsmótið ásamt Háskólanum
á Akureyri fyrir ráðstefnu með
yfirskriftinni „Heilsa og vellíðan
alla ævi,“ í tengslum við lands-
mótið. Hundrað ára afmælissýn-
ing Landsmóta UMFÍ verður á
Amtsbókasafninu á Akureyri, en
þar hefur Björn Björnsson sýning-
arhönnuður sett upp sýningu þar
sem landsmótunum er gerð skil í
málum og myndum.
Ókeypis er á alla viðburði og
keppnir sem Landsmótið stend-
ur fyrir. „Við erum mjög ánægð
með að geta boðið okkar gestum
að fylgjast með öllum viðburðum
mótsins án endurgjalds og vonum
og vitum raunar að fólk muni nýta
sér það. Við eigum því von á mikl-
um fjölda fólks og góðri stemmn-
ingu á Landsmótinu á Akureyri,“
segir Óskar Þór. MÞÞ
Landsmót UMFÍ haldið á Akureyri og þess minnst að 100 ár eru frá því fyrsta landsmótið var haldið.
Gert ráð fyrir miklum fjölda keppenda og gesta á glæsilegt afmælismót
Fuglaskoðunarhús í
Friðlandi Svarfdæla