Bændablaðið - 09.08.2012, Side 17

Bændablaðið - 09.08.2012, Side 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012 17 Ungnautaspjöld og nautaskrá Nýlega kom út seinni nautaskrá ársins 2012. Skráin er með sama sniði og sú fyrri hvað varðar upp- lýsingar um nautin. Reyndu nautin í skránni eru 22 að þessu sinni og tilheyra fjórum nautaárgöngum, 2003 til 2006. Þar af eru fjögur naut úr árgangi 2003, allt notadrjúg naut og kemur Gyllir 03007 aftur inn í skrána. Þrjú naut eru úr árgangi 2004, þar af tvö sem voru notuð sem nauts- feður. Endanlegri afkvæmarann- sókn er nú lokið á árgangi 2005 og úr þeim árgangi eru níu naut. Loks eru sex naut úr árgangi 2006 en afkvæmarannsókn þess árgangs mun ljúka í byrjun árs 2013.Naut úr árgangi 2006 eru Koli 06002 frá Berustöðum í Ásahreppi, Baldi 06010 frá Baldursheimi í Hörgársveit, Logi 06019 frá Kristnesi í Eyjafjarðarsveit, Kambur 06022 frá Skollagróf í Hrunamannahreppi, Dynjandi 06024 frá Leirulækjarseli í Borgarbyggð og loks Hjarði 06029 frá Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Nautin í skránni eru synir átta nautsfeðra og eru flest synir Stígs 97010 frá Oddgeirshólum, eða tólf naut, undan Fonti 98027 frá Böðmóðsstöðum eru fjögur naut og þau eru öll úr yngsta árgangnum. Soldán 95010 frá Hrólfstaðahelli á tvo syni í skránni og Seifur 95001 frá Hundastapa, Teinn 97001 Akbraut, Punktur 94032 frá Skipholti III og Prakkari 96007 frá St. Hildisey II eiga einn son hver. Sex nautsfeður Nautsfeður að þessu sinni verða sex: Vindill 05028 frá Ytri-Tjörnum, Birtingur 05043 frá Birtingaholti I, Koli 06003 frá Sólheimum, Frami 05034 frá Skúfsstöðum í Hjaltadal, Baldi 06010 frá Baldursheimi Hörgársveit og Kambur 06022 frá Skollagróf. Það að naut sé merkt sem nautsfaðir merkir fyrst og fremst að við mælumst til þess að nautsmæður séu sæddar með sæði úr þessum nautum frá og með útgáfu skrárinnar þar til næsta skrá tekur gildi. Þar sem nautsfeðrum er nú skipt út nokkuð örar en áður var, þá skal ítrekað að þó naut falli af nautsfeðraskrá vill Nautastöðin eftir sem áður vita af nautkálfum undan þeim og nautsmæðrum. Þau naut sem hafa verið nautsfeður gætu átt ófædda kálfa. Nautaspjöld bæði á Netinu og í prentuðu formi Þó nautin í þessari skrá séu öll öflug og líkleg til kynbóta, sem mun sjá stað í ræktun komandi ára, er nauðsynlegt að minna enn á þá gull- vægu reglu að nota óreynd naut til jafns við þau reyndu og huga vel að skyldleikanum við nautavalið. Þannig og aðeins þannig treystum við ræktun kúnna til lengri framtíð- ar. Nú eru fyrstu ungnautin í árgangi 2011 að komast í notkun og verið að senda út fyrsta ungnautaspjaldið með upplýsingum um átta ungnaut sem farið verður að bjóða innan tíðar. Upplýsingar á spjöldunum eru þær sömu og verið hefur og sést á þeim að hér er um mjög efnileg ungnaut að ræða. Feður þeirra eru úr þeim sterka árgangi 2002 og mæður ýmist ungar og mjög efnilegar kýr eða mjólkurkýr sem hafa sýnt mikla afurðagetu um langan tíma. Vegna eindreginna tilmæla verður un g- nautaspjöldunum nú dreift bæði á Netinu og prentuðum. Magnús B. Jónsson Ráðunautur í nautgriparækt mbj@bondi.is Uppskriftir á gottimatinn.is H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA silkimjúkt kallar á stökkt og sætt Stráðu múslí yfir gríska jógúrt og bættu í hana örlitlu fljótandi hunangi. Svo tínirðu á diskinn girnilega osta og brauð. Kannski færðu þér kaffi – en rólega því ekkert á að gerast hratt í sumarmorgunverðinum. Nautaskrá Nautastöð BÍSumar 2012 Landvernd býður upp á plöntugreiningarnámskeið í Alviðru sunnudaginn 12. ágúst kl. 13:00 – 16:00. Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en ráðlegt er að taka með sér plöntuhandbók ef hún er til á heimilinu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rannveig Thoroddsen líffræðingur en hún hefur áralanga reynslu af plöntugreiningu og kennslu. Mæting er við Alvirðu kl. 13:00. Gengið verður um svæðið og plöntur og plöntusamfélög skoðuð. Nánari upplýsingar er að finna á www. landvernd.is. Skráning á námskeiðið er á netfangið eirikurv@hi.is og þátttaka er öllum að kostnaðarlausu. Plöntugreiningar- námskeið í Alviðru Landskeppni Smalahundafélags Íslands verður haldin að Kaldármelum helgina 1. og 2. september. Aðalfundur félagsins verður jafnframt á Snorrastöðum föstudagskvöldið 31. ágúst. Keppt verður í eftirtöldum greinum: A fl. Opinn flokkur og fyrir þá hunda sem hafa fengið 50 stig eða meira í B fl. B fl. Fyrir óreynda hunda eða sem ekki hafa náð 50 stigum í B fl. Unghundaflokkur. Hundar yngri en 3 ára. Dómari verður James MacKee heimsmeistari en 30. og 31. ágúst mun hann kenna á námskeiði að Mýrdal Kolbeinstaðarhreppi. Forgang að námskeiðinu hafa skráðir keppendur á Landsmóti. Smalahundadeild Snæfellsness og Hnappadalssýslu sem heldur keppnina að þessu sinni. Þáttöku í keppni og námskeiði þarfa skrá hjá Gísla Þórðarsyni í Mýrdal fyrir 26 ágúst í síma 847- 4083 eða netfangið myrdalur@ mmedia.is Landskeppni smala- hunda árið 2012

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.