Bændablaðið - 09.08.2012, Síða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012 17
Ungnautaspjöld og nautaskrá
Nýlega kom út seinni nautaskrá
ársins 2012. Skráin er með sama
sniði og sú fyrri hvað varðar upp-
lýsingar um nautin. Reyndu nautin
í skránni eru 22 að þessu sinni og
tilheyra fjórum nautaárgöngum,
2003 til 2006.
Þar af eru fjögur naut úr árgangi
2003, allt notadrjúg naut og kemur
Gyllir 03007 aftur inn í skrána.
Þrjú naut eru úr árgangi 2004, þar
af tvö sem voru notuð sem nauts-
feður. Endanlegri afkvæmarann-
sókn er nú lokið á árgangi 2005
og úr þeim árgangi eru níu naut.
Loks eru sex naut úr árgangi 2006
en afkvæmarannsókn þess árgangs
mun ljúka í byrjun árs 2013.Naut
úr árgangi 2006 eru Koli 06002
frá Berustöðum í Ásahreppi,
Baldi 06010 frá Baldursheimi
í Hörgársveit, Logi 06019 frá
Kristnesi í Eyjafjarðarsveit,
Kambur 06022 frá Skollagróf í
Hrunamannahreppi, Dynjandi
06024 frá Leirulækjarseli í
Borgarbyggð og loks Hjarði
06029 frá Hjarðarfelli í Eyja- og
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi.
Nautin í skránni eru synir átta
nautsfeðra og eru flest synir Stígs
97010 frá Oddgeirshólum, eða
tólf naut, undan Fonti 98027 frá
Böðmóðsstöðum eru fjögur naut og
þau eru öll úr yngsta árgangnum.
Soldán 95010 frá Hrólfstaðahelli
á tvo syni í skránni og Seifur
95001 frá Hundastapa, Teinn
97001 Akbraut, Punktur 94032 frá
Skipholti III og Prakkari 96007 frá
St. Hildisey II eiga einn son hver.
Sex nautsfeður
Nautsfeður að þessu sinni verða sex:
Vindill 05028 frá Ytri-Tjörnum,
Birtingur 05043 frá Birtingaholti
I, Koli 06003 frá Sólheimum, Frami
05034 frá Skúfsstöðum í Hjaltadal,
Baldi 06010 frá Baldursheimi
Hörgársveit og Kambur 06022 frá
Skollagróf. Það að naut sé merkt
sem nautsfaðir merkir fyrst og
fremst að við mælumst til þess að
nautsmæður séu sæddar með sæði
úr þessum nautum frá og með
útgáfu skrárinnar þar til næsta skrá
tekur gildi. Þar sem nautsfeðrum er
nú skipt út nokkuð örar en áður var,
þá skal ítrekað að þó naut falli af
nautsfeðraskrá vill Nautastöðin eftir
sem áður vita af nautkálfum undan
þeim og nautsmæðrum. Þau naut
sem hafa verið nautsfeður gætu átt
ófædda kálfa.
Nautaspjöld bæði á Netinu og í
prentuðu formi
Þó nautin í þessari skrá séu öll öflug
og líkleg til kynbóta, sem mun
sjá stað í ræktun komandi ára, er
nauðsynlegt að minna enn á þá gull-
vægu reglu að nota óreynd naut til
jafns við þau reyndu og huga vel
að skyldleikanum við nautavalið.
Þannig og aðeins þannig treystum
við ræktun kúnna til lengri framtíð-
ar. Nú eru fyrstu ungnautin í árgangi
2011 að komast í notkun og verið
að senda út fyrsta ungnautaspjaldið
með upplýsingum um átta ungnaut
sem farið verður að bjóða innan
tíðar. Upplýsingar á spjöldunum eru
þær sömu og verið hefur og sést
á þeim að hér er um mjög efnileg
ungnaut að ræða. Feður þeirra eru úr
þeim sterka árgangi 2002 og mæður
ýmist ungar og mjög efnilegar kýr
eða mjólkurkýr sem hafa sýnt mikla
afurðagetu um langan tíma. Vegna
eindreginna tilmæla verður un g-
nautaspjöldunum nú dreift bæði á
Netinu og prentuðum.
Magnús B. Jónsson
Ráðunautur í nautgriparækt
mbj@bondi.is
Uppskriftir á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
silkimjúkt kallar
á stökkt og sætt
Stráðu múslí yfir gríska jógúrt og bættu í hana örlitlu
fljótandi hunangi. Svo tínirðu á diskinn girnilega
osta og brauð. Kannski færðu þér kaffi – en rólega
því ekkert á að gerast hratt í sumarmorgunverðinum.
Nautaskrá
Nautastöð BÍSumar 2012
Landvernd býður upp á
plöntugreiningarnámskeið í Alviðru
sunnudaginn 12. ágúst kl. 13:00 –
16:00. Námskeiðið hentar fólki á
öllum aldri en ráðlegt er að taka
með sér plöntuhandbók ef hún
er til á heimilinu. Leiðbeinandi
á námskeiðinu er Rannveig
Thoroddsen líffræðingur en
hún hefur áralanga reynslu af
plöntugreiningu og kennslu. Mæting
er við Alvirðu kl. 13:00. Gengið
verður um svæðið og plöntur og
plöntusamfélög skoðuð. Nánari
upplýsingar er að finna á www.
landvernd.is. Skráning á námskeiðið
er á netfangið eirikurv@hi.is og
þátttaka er öllum að kostnaðarlausu.
Plöntugreiningar-
námskeið í Alviðru
Landskeppni Smalahundafélags
Íslands verður haldin að
Kaldármelum helgina 1. og 2.
september. Aðalfundur félagsins
verður jafnframt á Snorrastöðum
föstudagskvöldið 31. ágúst.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum: A fl. Opinn flokkur og
fyrir þá hunda sem hafa fengið
50 stig eða meira í B fl. B fl.
Fyrir óreynda hunda eða sem
ekki hafa náð 50 stigum í B fl.
Unghundaflokkur. Hundar yngri
en 3 ára.
Dómari verður James MacKee
heimsmeistari en 30. og 31. ágúst
mun hann kenna á námskeiði að
Mýrdal Kolbeinstaðarhreppi.
Forgang að námskeiðinu hafa
skráðir keppendur á Landsmóti.
Smalahundadeild Snæfellsness
og Hnappadalssýslu sem heldur
keppnina að þessu sinni.
Þáttöku í keppni og námskeiði
þarfa skrá hjá Gísla Þórðarsyni í
Mýrdal fyrir 26 ágúst í síma 847-
4083 eða netfangið myrdalur@
mmedia.is
Landskeppni smala-
hunda árið 2012