Bændablaðið - 09.08.2012, Qupperneq 30

Bændablaðið - 09.08.2012, Qupperneq 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. ágúst 2012 Rússneskar blaðakonur á ferð um landið: „Ísland er matvælaframleiðsluland í hæsta gæðaflokki“ Í júlí komu hingað til lands tvær blaðakonur frá Rússlandi til að kynna sér matvælaframleiðslu og matarmenningu. Konurnar heita Julia Matveeva, en hún er ritstjóri hjá rússnesku útgáfufyrirtæki, og Inga Lobzhanidze, sem er mark- aðsstjóri og sér um erlend sam- skipti sama fyrirtækis. Útgáfan gefur meðal annars út blöð um mat og matreiðslu og var tilgangur ferðarinnar til Íslands að viða að sér efni til birtingar í blöðunum. Í leit að upprunanum „Við vorum boðnar á kynningu hjá íslenska sendiráðinu í Moskvu í febrúar síðastliðnum en þar var verið að kynna íslensk matvæli og matvælahefð. Ég verð að viðurkenna að maturinn og hráefnið sem notað var kom okkur skemmtilega á óvart og voru gæðin mikil. Því urðum við forvitnar um uppruna þessara góðu matvæla og um Ísland. Í Rússlandi eruð þið þekktari fyrir eldgos en matvæli!“ segir Inga og hlær. Julia tekur undir og segir að í samráði við íslenska sendiráðið í Moskvu hafi verið ákveðið að þær kæmu nú í júlí til að skoða með eigin augum hvernig matvælaframleiðslu á Íslandi væri háttað. Undirbúningur og skipulagn- ing ferðarinnar var á hendi Erlends Garðarssonar, sem hefur stundað viðskipti með kjötvörur um árabil, og Alberts Jónssonar sendiherra, í samráði við utanríkisráðuneytið og Íslandsstofu. Sérstakt að sjá búfé á beit „Þið Íslendingar eruð sjálfsagt orðnir vanir því að útlendingar segi hversu stórkostlegt land þið eigið. Það er í raun merkilegt að sjá fé á fjalli og hesta í haga. Víðast um heiminn eru þessi dýr á afmörkuðum svæðum og með mjög einhliða gróður til að nær- ast á. Hér er búfénaðurinn frjáls og hefur aðgang að hreinu vatni. Þetta er ugglaust einn af stóru þáttunum í því hve gæðin á íslenskri matvöru eru mikil,“ segir Julia. Kryddið tínt úti í náttúrunni Blaðakonurnar fóru í ferða- lög um landið og áðu m.a. í Skagafirðinum þar sem þær hittu Ágúst Andrésson, framkvæmda- stjóra Kjötafurðastöðvar KS. „Það var gaman að skoða nútímaleg fyrir- tæki með hátæknibúnað og fara síðan og hitta bændur sem voru að rækta og framleiða hráefnið sem notað var. Upp til fjalla sáum við síðan sauðfé á beit. Það verður án efa fjallað um það í blaðinu okkar þegar Ágúst beygði út af veginum, stoppaði og stökk út til að tína kryddjurtir. Við spurðum hann hvað hann væri að gera og sagðist hann vera að ná í kryddið á lambasteikina sem okkur var ætluð í hádegismat! Við upplifðum einnig að smakka íslenskan mat eins og hann var gerð- ur í gamla daga, sem var athyglisvert. Sumt af þessu var verulega gott þó ég verði að viðurkenna að hákarlinn reif aðeins í,“ segir Julia. „Mig hrein- lega langaði að kaupa smá og gefa blaðamönnunum sem vinna fyrir bragðskynið hjá þeim!“ Hágæða veitingastaðir Þær Julia og Inga ferðuðust líka um Suðurland og heimsóttu m.a. Friðheima þar sem þær snæddu dýrindis tómatsúpu í gróðurhúsi. „Hugsið ykkur hvað þið hafið mikla möguleika í matvælaframleiðslu og hvað væri hægt að flytja út frá Íslandi. Á Íslandi hef ég borðað mjög góðan mat og veitingastaðir hér standast fyllilega samanburð. Við fórum á fjölda staða, t.d. á VOX og Kolabrautina og síðan smærri staði. Það var virkileg upplifun. Ég er viss um að erlendir gestir sem koma fyrst og fremst til að skoða náttúru landsins verða skemmtilega undrandi þegar þeir fara að borða hérna,“ segir Julia. Allir Rússar þekkja íslensku síldina Íslenskir útflytjendur hafa horft hýru auga til Rússlandsmarkaðar síðustu misserin en viðskipti voru blómleg á árum áður. Kjöt- og fiskútflytj- endur hafa t.d. farið tvö ár í röð á matvælasýninguna ProdExpo og þar hafa byggst upp viðskiptatengsl. Í Rússlandi hefur velmegun aukist síðustu ár og efnameiri Rússar gera æ meiri kröfur. Inga og Julia telja báðar að góður markaður sé fyrir íslenskar vörur þar í landi. „Rússland er stórt land og efnahagur heima er að batna. Millistéttin er að styrkjast og t.d. fer fólk mikið út að borða. Auðvitað eru þið ekki að framleiða í miklu magni né á verði í lægri kantinum. Hins vegar er töluvert til af fólki sem hefur góð auraráð og lætur eftir sér vörur sem má fremur telja sem lúxus,“ segir Inga. Hún hamrar á því að Íslendingar verði að vera duglegir að kynna Ísland og íslenskar vörur. „Því miður vitum við Rússar ekki mikið um Ísland og afurðir ykkar ef frá er talin síldin, en íslensku síld- ina þekkja allir Rússar. Þið verðið að koma því áleiðis að þið eruð matvælaframleiðsluþjóð í hæsta gæðaflokki. Það er einnig mjög gott ef þið komist inn á viðurkennda veitingastaði þar sem tekið er fram að hin og þessi vara sé frá Íslandi. Okkur sýnist að kjötið sé að koma sterkt inn og þarf að fylgja því eftir. Mjólkurvörur gætu átt gott erindi til Rússlands, svo maður tali ekki um fiskinn. Við sjáum ekkert sem gæti komið í veg fyrir að íslenskar vörur yrðu vinsælar í Rússlandi, en auð- vitað kostar það tíma og peninga,“ segir Inga að lokum. Til sölu Musso Grand Lux, árg. 2000, keyrður 129 þús. km. Á sama stað til sölu fjögurra stjörnu heytætla. Uppl. í síma 434-1206 á kvöldin. Til sölu Passat prjónavél og fylgir önnur í varahluti. Töluvert magn af spólu prjónagarni. Uppl. í síma 899- 1047. Til sölu Polaris 500 X2, árg. 2007. Götuskráð fyrir tvo. Keyrt 47,5 klst. Verð 1.450 þús. kr. Uppl. í síma 896- 4671. Mjög gott hey til sölu. Einnig óskum við eftir ám til kaups í haust. Er í Til sölu er vörubíll, Volvo N10 árg. 1979. ekinn 362.000 km, með krana. Nýskoðaður og lítur vel út. Uppl. í síma 886-4419. Til sölu Píet Hoyous hnakkur, vel með farinn, þriggja ára. Verð 150.000 kr. Uppl. í síma 898-6960. Til sölu Izusu Trooper, árg. ́ 99, á 33“ dekkjum. Ekinn 223 þús. km. Óska eftir tilboði. Skoða skipti á dráttarvél pv1733, árg. 1996. Nnotuð ca. 12 ha á ári. Alltaf geymd inni. Er útbúin fyrir upptöku í 500 kg kassa eða stórsekki. Uppl. í síma 898-2464. Massey Ferguson, 390 T árg. 92 með tækjum. Ný kúpling, nýr startari og rafgeymar. Verð 2.000.000. Skoda Octavia, 4x4, dísel, árg. 05. Nissan Patrol, dísel, 35“ breyttur, árg. ´98. Fóðurvagn,Varmo lift, árg. ´96, tekur rúllur, sker og gefur til beggja handa á fóðurgang. Verð 180.000 þús. kr. Rafmótor 3gja fasa, 4 kW, nýr. Uppl. í síma 864-8471. Til sölu tvær rakstrarvélar. 1 stk. Tounnitti 9 hjóla og eitt stk. Spring master. Á sama stað býðst hestur til sölu, rauðskjóttur undan Illingi frá Tófun. Uppl. í síma 846-3552. Volvo F616, árgerð 1982, ekinn 540 þús. km. Er með vírheysi. Bíll í topp- standi. Allt virkar en mætti kannski fara að huga að húsinu. Sími 866-5156. í síma 893-1058. Hef til sölu rúlluhey frá 2012. Uppl. í síma 893-6332. Til sölu Krone KS 3,5/10 rakstrarvél í góðu lagi, verð 160 þús. Einnig til sölu Zetor 6911 vel nothæfur í léttari 500 snúningsvél í varahluti og einnig - í síma 894-5759. Til sölu Zetor 6911, árg. 1980, með ónýta heddpakkningu. Tilvalið fyrir laghenta eða til niðurrifs í varahluti. 891-9186. Til sölu Nissan Primera, árg 1998, sjálfsk, ekinn 135.000 km. Verð 300.000 kr. Er í Borgarnesi sími 863- 7361 eða 897-1090. Til sölu stálgrind og ásar í 1000 m² skemmu. Allar teikningar fylgja. Verð kr. 10 milljónir + vsk. Uppl. í síma 660-5990. Til sölu Toyota Hilux, árg´ 98, og lítill 3 tonna sturtuvagn. Uppl. í síma 894- 4460. Harmonikur í úrvali. Seljum nýjar og notaðar harmonikur. Einnig fylgihluti svo sem poka og ólasett. Tökum harmonikur í umboðssölu. EG-Tónar. Símar 824-7610 og 660-1648. Til sölu Nissan Terrano, árg. 2004, 7 manna 2,7 dísel, Turbo ekinn 158 þ. km. Góð þjónustusaga. Verð 1850 þ. Engin skipti, nema hugsanleg á sumarbústaðarlandi. Uppl. í síma 772-7043 og 587-9099. Óska eftir Íslensk bláber, krækiber, einiber, kúmen, rifsber, jarðarber. Mig vantar þessar tegundir í talsverðu magni. Lífrænt vottað er líka vel þegið. Uppl. í síma 695-1008 og snorri@reykja- vikdistillery.is Kaupi allar tegundir af vínylplötum. Borga toppverð. Sérstaklega ís- lenskar. Vantar 45 snúninga ís- lenskar. Staðgreiði líka vínylplötusöfn. Uppl. gefur Óli í síma 822-3710 eða á olisigur@gmail.com Gamlar vinnuvélar og stærri áhöld óskast. Áttu gamlar vinnuvélar, rakstrarvélar, traktora, akkeri eða annað frá gömlum tíma sem þú ert til í að losna við ? Ég get komið og náð í græjurnar. Nánari uppl. í síma 899-1100. Erum ung hjón með tvö börn úr Hval- og leitum því eftir jörð með búskap til leigu. Flest allt kemur til greina, höfum alltaf búið í sveit. Brynjar Ottesen, sími 865-7508, og Guðný K. Guðnadóttir, sími 846-0162 eða gudnykristin87@gmail.com Óska eftir að kaupa notaða Hardy eiturdælu aftan á traktor. Þarf að vera vel með farin. Skálpur LF, Stóru Sand- vík, sími 892-9565 og 482-1934. sem staðsett mun verða á Suðvestur landi. Æskileg stærð 60 fm2 – 100 fm2. Uppl. í síma 531-3003. Óska eftir húsbíl í skiptum fyrir land- skika. Upplýsingar í síma 616-8018. Vantar PZ sláttuvél 165 eða stærri. Er á Vesturlandi. Uppl. í síma 897-9070. Áður fyrr voru steðjar á hverjum bæ. Nú eru þeir ekki lengur brúkaðir til sveita, nema þá helst til skrauts og safna ryki og ryði í skúmaskotum og görðum. Mig sárvantar steðja, svona 50-125 kg á sanngjörnu verði. Uppl. í síma 860-5801, Einar. Vantar gírkassa í 1400 cc Toyota Corolla, árg 2001. Uppl. í síma 475- 1180 eða 848-4129. Óska að kaupa nothæft orf og ljá. Vinsamlega hafa samband við Örn í síma 898-0949. Rekaviður óskast í byggingaverkefni, er á höfuðborarsvæðinu en get sótt út á land. Hannes, sími 862-9192 og netfang: hannes@k16.is Atvinna Okkur vantar starfsfólk í ferðaþjón- ustu frá 10.ágúst og til loka septem- ber. Hugsanlega getur verið um lengri ráðningartíma að ræða. Tungumála- kunnátta og æskilegt að umsækjend- Húsnæði og fæði á staðnum. Frekari uppl. og umsóknir berist á netfangið olof@vogafjos.is Dýrahald Border Collie hvolpar til sölu undan síma 841-7047. Andarungar til sölu. Er á Vestur- landi. Upplýsingar í síma 849-1445, Magnús. Gisting Gisting á Akureyri. Gæludýr leyfð. Uppl. gefur Sigurlína í síma 861- 6262. Gisting - skammtímaleiga. Fullbúin íbúð til leigu í gamla bænum í Hafnarfirði. Það eru 2 svefnher- bergi, baðherbergi með sturtu, stofa og eldhús. Verslanir, veit- ingahús o.fl. í göngufæri. U.þ.b. 30 mín. akstur til Keflavíkurflugvallar. Nánari uppl. í síma 858-9004 og á mariubaer.is Jarðir Óska eftir að kaupa landspilu til skógræktar. Litlar kröfur um land- gæði, melar og móar gætu hentað mjög vel. Helst í brekku eða fjallshlíð. Uppl. í síma 692-7302. Hjón óska eftir lítilli jörð á leigu, skipti á íbúð í Reykjavík koma til greina. Uppl. í síma 693-1797. Leiga Meðleigjandi óskast. Erum tveir ró- legir ungir menn með stórt einbýlishús í miðbæ Hafnarfjarðar sem vantar meðleigjanda. Herbergið er um 15 fm, stór stofa og stórt eldhús ásamt tveimur baðherbergjum. Stór og góð lóð. Uppl. hjá Ómari í síma 774-7223 Sumarhús Rotþrær - Vatnsgeymar. Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 l. Lindarbrunnar. Sjá á borgar- plast.is - Mosfellsbæ. Uppl. í síma 561-2211. Þjónusta Bændur-verktakar Skerum öryggis- gler í bíla, báta og vinnuvélar. Send- um hvert á land sem er. Skiptum einnig um rúður í bílum. Vinnum fyrir öll tryggingafélögin. Margra ára reynsla. BílaGlerið ehf. Bíldshöfða 16, 110 Rvk. Sími 587-6510. Öll almenn trésmíðavinna. Sumar- hús,viðhald og sólpallar, nýbyggingar. Get tekið að mér byggingarstjórn. Tilboð eða tímavinna. Upplýsingar í síma 893-5374, Björn. „Þið verðið að vera dugleg að kynna Ísland og íslenskar vörur,“ segir Inga Lobzhanidze sem starfar sem markaðsstjóri hjá rússnesku útgáfufyrirtæki. Auglýsinga- og áskriftarsími Bændablaðsins er 563-0303 Netfang: bbl@bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.