Bændablaðið - 29.03.2012, Qupperneq 14
Bændablaðið | fimmtudagur 29. mars 201214
Smáauglýsandi Bændablaðsins:
Þjóðsagnapersónan á Brúnavöllum
Það er óhætt að segja að Sveinbjörn
Benediktsson á Brúnavöllum í
Austur-Landeyjum sé einn af
stórauglýsendum Bændablaðsins
þegar kemur að smáauglýs-
ingum. Varla líður það tölublað
að ekki birtist smáauglýsing frá
Sveinbirni, sem hefur allt milli
himins og jarðar til sölu. Hann
segist þó taka í umboðssölu fyrir
vini og vandamenn og fullyrðir að
Bændablaðið sé besti auglýsinga-
miðill landsins.
Sveinbjörn hefur undanfarin
fjögur ár búið á Brúnavöllum og er
kunnugur í þeirri sveit, enda var hann
bóndi um margra ára skeið á Krossi,
þar sem sonur hans býr nú. Húsnæðið
er hann nú með á sölu, hyggst flytja
á allt annan stað og selja nánast alla
hluti sem hann á.
„Menn eiga aldrei að fara aftur í
sama sveitarfélagið, maður er eins
og hálfgerður undanvillingur fyrir
vikið. Hér áður var mikil samhjálp
og samstaða um alla hluti en núna er
þetta mjög breytt þjóðfélag. Ég kom
hingað um mitt sumar árið 1967, fór
í 16 steypur það haust og það þótti
engum mikið,“ segir Sveinbjörn.
Faðirinn ráðsmaður hjá
Thorsurunum
Áður en Sveinbjörn snéri aftur í
Landeyjarnar vann hann um tíma
sem umsjónarmaður á Heilsuhælinu
í Hveragerði en mestan part starfs-
ævinnar var hann bóndi.
„Ég er fæddur á Hvammstanga
en foreldrar mínir bjuggu á
Bjargarstöðum í Miðfirði. Þegar
ég fæddist árið 1944 var mikill
snjóavetur og leiðinlegasta tímabil
í lífi móður minnar að hanga úti á
Hvammstanga í rúman mánuð frá
heimilinu að bíða eftir fæðingu
minni. Ég fæddist 2. nóvember, eftir
viku tíma kom faðir minn og ég var
settur í bláan Frónkassa með gæru
undir, hengdur á klakk og farið með
mig í Austurárdal á mitt nýja heimili.
Þegar ég var tveggja ára gamall flutt-
um við suður í Silfurtún. Ég er uppal-
inn í Mosfellssveit en faðir minn
var ráðsmaður hjá Thorsurunum á
Lágafelli,“ útskýrir Sveinbjörn og
segir jafnframt:
„Árið 1967 hóf ég búskap á
Krossi í Austur-Landeyjum og var
meðfram því meðhjálpari í kirkj-
unni. Yngsti sonur minn, Sigurður
Óli Sveinbjörnsson, tók síðan við
á Krossi og rekur þar myndarlegt
bú í dag. Mér fannst alltaf notalegt
á Krossi að hafa kirkjuna en þegar
við bjuggum á Lágafelli var kirkju-
garðurinn leikvangurinn minn. Ég
hef sungið í kirkjukór frá 15 ára aldri,
en það veitir mér lífsfyllingu.“
Söfnunarárátta og sölumennska
Fljótlega kom söfnunareðli
Sveinbjörns í ljós en gamlir
hlutir hafa alla tíð heillað hann.
Sölumannsblóðið sagði einnig til
sín á svipuðum tíma.
„Þessi leiðindabaktería hófst hjá
mér strax í barnaskóla því ég var
fljótur að selja ýmsa muni og að
lokum seldi ég fermingarúrið mitt
frá Magnúsi Baldvinssyni úrsmíða-
meistara. Síðan fór ég að safna alls
kyns mögulegu og skipta á pennum
og þess háttar. Það hafa nú ekki
allir í kringum mig haft ánægju af
þessum lífshætti mínum en það er
víst erfitt að gera öllum til hæfis,“
segir Sveinbjörn og bætir við:
„Ég hef alltaf haft svo gaman af
gömlum munum og held til að mynda
mikið upp á saumaborð sem ég
keypti hjá fornsala á Grettisgötunni
í Reykjavík, þá 15 ára gamall. Mér
er svo minnisstætt að búðarmaðurinn
spurði mig hvort ég væri eitthvað
hinsegin, að kaupa mér saumaborð.
Mér hefur alltaf fundist gaman að
selja hlutina mína og á þá ekki til
eilífðarnóns, nema þetta saumaborð
sem ég hef alltaf haldið í og eins
hluta úr matarstelli Thors Jensen.
Þegar ég var 19 ára gamall keypti
ég mér nýja traktorsgröfu hjá Heklu
sem var jafnframt mín fyrsta, og fór
að kokkelera á móti ræktunarsam-
bandinu, svo maður hefur komið að
ýmsu.“
Auglýsir fyrir vini og vandamenn
Sveinbjörn lenti í erfiðum veikindum
fyrir tveimur árum sem hann er enn
að jafna sig af og segir að auglýs-
ingamennskan gefi honum mikla
lífsfyllingu eftir veikindin.
„Mér finnst svolítið eins og ég
sé með farsótt því eftir veikindin
hefur gestagangur hjá mér minnkað
til muna. Ég hef ekki fullt starfsþrek
í dag og er að finna mér eitthvað að
gera, ekki hvað síst andlega og aug-
lýsingarnar eru hluti af því.
Það er langur vegur frá því að ég
eigi alla hlutina, þetta eru Pétur og
Páll sem biðja mig um að auglýsa
fyrir sig. Sumir vilja auglýsa sína
hluti undir nafnleynd og þá er góður
vettvangur að koma til mín, biðja
mig að sjá um þetta fyrir sig og hafa
mitt símanúmer fyrir því. Vinir mínir
spyrja mig stundum hvort ég vilji
auglýsa fyrir þá, eða meira í þá veru
hvort þeirra megi fljóta með hjá mér.
Þar sem ég hef verið blessunarlega
laus við feimni um dagana þá er
þetta fyrirkomulag upplagt,“ útskýrir
Sveinbjörn og brosir breitt.
Skipti á hesti og rjómakönnum
Sem fyrr sagði hefur Sveinbjörn
verið afar duglegur við að setja inn
smáauglýsingar í Bændablaðið og
eru þær jafn fjölbreyttar og þær eru
margar, stundum svo hnyttnar að eftir
er tekið.
„Það ber langbestan árangur að
auglýsa í Bændablaðinu, það er ekki
spurning, og þess vegna auglýsi ég
svona mikið í þessu ágæta blaði. Það
var til dæmis ákaflega skemmtilegt
í síðasta blaði, þar sem auglýstur
var Wolksvagen Golf til sölu og í
lok auglýsingarinnar stóð: „P.S.
Sveinbjörn, ætlar þú ekki að ná í
hestakerruhjólin?“ Fljótlega hringdu
til mín aðilar alls staðar af að landinu
og fóru að spyrja mig út í þessa setn-
ingu og hvort hún ætti ekki við mig.
Það var mikið rétt, þetta eru kerru-
hjól sem ég keypti fyrir töluverðu
síðan en mér hefur láðst að sækja
þau. Svo þetta er skemmtilegt, en
einnig hef ég fengið viðbrögð frá
fólki ef símanúmerið mitt vantar í eitt
tölublað og það eru ótrúlegustu menn
sem hringja og segjast fylgjast með
auglýsingunum mínum og vita að ég
er þar á ferð,“ útskýrir Sveinbjörn og
segir jafnframt:
„Eitt sinn skipti ég á hesti og
rjómakönnum og pottablómum, svo
ég á fullan skáp af rjóma- og sykur-
körum í stelli. Ég hef eignast allan
þremilinn í gegnum tíðina og burðast
með þetta landshorna á milli. Ég verð
alltaf jafn ánægður þegar kaupandi
er ánægður, en einnig mjög hryggur
þegar kaupandi er óánægður.“
Teinóttu jakkafötin fóru strax
Það vakti mikla athygli á síðasta
ári þegar Sveinbjörn auglýsti meðal
annars teinótt jakkaföt af sér til sölu
í Bændablaðinu, sem voru í líkingu
við jakkaföt sem Ólafur Thors átti
eitt sinn. Viðbrögðin létu ekki á
sér standa og Morgunblaðið fylgdi
Sveinbirni eftir þegar hann afhenti
kaupandanum jakkafötin.
„Mig hafði lengi langað að eign-
ast jakkaföt eins og Ólafur Thors átti
svo ég keypti þessi, en þau pössuðu
ekki á mig. Þetta var virkilega gaman
þegar þeir komu frá Morgunblaðinu
og fylgdu mér til Hafnarfjarðar þar
sem ég afhenti fötin. Kaupandinn
vildi ekki láta nafns síns getið svo
þeir fylgdu mér þegar ég afhenti þau
og mynduðu í leiðinni.
Ég var mjög hrifinn af Ólafi Thors
sem ungur maður og einnig föður
hans Thor Jensen, en ég stalst oft til
hans þegar ég var fjögurra ára gamall
og fékk hjá honum sælgæti. Síðan
seldi Lorenz Thors, bróðir Ólafs,
föður mínum ýmsa hluti svo við
vorum mikið í kringum Thorsarana,“
segir Sveinbjörn.
Á árum áður var Sveinbjörn ein-
göngu í hrossasölu en síðan minnk-
aði það með tímanum og fór hann
alfarið út úr því fyrir nokkrum árum.
„Það hafa oft gerst spaugilegir
hlutir eftir auglýsingu og viðskiptin
geta verið á ýmsa vegu. Eitt sinn var
ég í hrossasölu og aðilann vantaði
rauðblesóttan hest. Ég átti bara
hryssu með þennan lit en hann vildi
alls ekki hryssu. Á þessum tíma átti
ég um 200 hross og ákvað að sýna
honum stóðið mitt og sagði við hann
í gríni að það kostaði nú ekkert að
skoða hryssuna. Síðan gekk hann
á eftir mér, féll fyrir hryssunni og
keypti hana. Hann tamdi svo þá
rauðblesóttu og sýndi á sýningum,
en það er skemmtilegt hvað fólk
getur skipt um skoðun á aðeins sex
klukkustundum.“
Baldwin-orgelið verstu kaupin
Lífið í auglýsingabransanum er
ekki alltaf dans á rósum og hefur
Sveinbjörn lent í óheiðarleika fólks,
en það er þó í undantekningartil-
fellum.
„Ég hef aldrei verið plataður eins
mikið og þegar ég keypti Baldwin-
orgelið hérna um árið. Þá lét ég
seljandann fá tvær snemmbærur
að andvirði um 300 þúsund krónur
á núvirði og tvær hryssur sem fóru á
150 þúsund. Stuttu síðar kom ég við
í umboðinu í Reykjavík og sá að ný
týpa af Baldwin var á 275 þúsund,
„Ég hef aldrei verið plataður eins mikið og þegar ég keypti Baldwin-orgelið hérna um árið,“ segir Sveinbjörn, sem
borgaði tvær snemmbærur og tvær hryssur fyrir orgelið. Myndir /ehg
Dæmi um smáauglýsingar sem Sveinbjörn hefur
sett inn í Bændablaðið:
Í skemmunni er þessi fíni Massey Ferguson sem Sveinbjörn hefur dundað
sér við að gera upp en er nú falur fyrir rétt verð.