Bændablaðið - 29.03.2012, Side 17

Bændablaðið - 29.03.2012, Side 17
17Bændablaðið | fimmtudagur 29. mars 2012 Hestaleigan vinsæl Herbergin eru nú 27 talsins og segir Óli að villtustu draumar geri ráð fyrir 35 herbergjum en enn sé til staðar ónotað rými. Annað sé þó á undan í forgangsröðinni. Þau horfi m.a. til þess að auka afþreyingu á svæðinu, en undanfarin sumur hefur hestaleiga verið starfrækt á staðnum og verið vel tekið. Hún er öllum opin, bæði gestum á Skjaldarvík og öðrum. Klara, elsta dóttir þeirra, starfar við hestaleiguna, en hún er 17 ára menntaskólanemi. Í boði eru þrjár ferðir á dag um nágrennið. „Við stefnum að því að auka þennan þátt,“ segir Óli, en fyrir sumarið 2013 eru uppi áform um að reisa reiðvöll á túni neðan gistiheimilisins og bjóða þar upp á hestasýningar. Eins munu þau fara af stað með norðurljósa- ferðir í samvinnu við Ferðaþjónustu bænda haustið 2012. Kryddaður með ást og umhyggju húsmóðurinnar Matsala er rekin í Skjaldarvík, boðið er upp á rétt dagsins og annað hvort forrétti eða eftirrétti og sér Dísa alfarið um eldamennskuna, enda mikill ástríðukokkur. „Við bjóðum upp á heimilislegan mat sem kryddaður er með ást og umhyggju húsmóðurinnar,“ segir Óli. Þau taka um þessar mundir þátt í verkefni á vegum Ferðaþjónustu bænda, Eldað í sveitinni, þar sem áhersla er lögð á að horfa á sérkenni svæðisins og hvaða hráefni henti til matseldar á hverjum stað fyrir sig. „Það kom okkur skemmtilega á óvart hversu margir af okkar gestum kusu að borða hér á staðnum,“ segir Dísa. Stolt af viðurkenningum Þrátt fyrir að saga ferðaþjónustu þeirra Dísu og Óla í Skjaldarvík sé ekki löng hafa þau hlotið viðurkenn- ingar fyrir starfsemi sína. Fyrsta sumarið fengu þau viðurkenningu frá Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi fyrir faglega uppbygg- ingu og líka í tengslum við þátttöku í verkefni Ferðaþjónustu bænda, Better Business. Á uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda í desember síð- astliðnum fengu þau svo viðurkenn- ingu í flokknum Framúrskarandi ferðaþjónustubæir 2011. „Við erum mjög stolt af þessari viðurkenningu, sérstaklega í ljósi þess að innan Ferðaþjónustu bænda eru um 170 bæir þar sem víða hefur verið unnið gott og merkilegt starf, en við erum rétt að hefja okkar rekstur,“ segir Dísa. Í umsögn dómnefndar segir að þau Dísa og Óli hafi ákveðið að hætta að vinna fyrir aðra og gerst ferðaþjónustubændur. „Með mikilli framkvæmdagleði, hugvitssemi, brennandi áhuga, ríkri þjónustulund og góðri eldamennsku hafa þau náð að bræða hjörtu gest- anna. Staðurinn er eftirsóknarverður, fallegur og mikill fengur fyrir ferða- manninn að dvelja hjá fjölskyldunni í Skjaldarvík,“ segir í umsögn dóm- nefndar. „Við ætlum okkur að halda ótrauð áfram og gera Skjaldarvík að áfangastað ferðamanna á ferð sinni um Ísland,“ segja þau Dísa og Óli. /MÞÞ. Hestar á beit á túni neðan við Skjaldarvík, en gestir slaka á í heita pottinum. Mynd / Rakel Ósk Sigurðardóttir. Alls eru 27 herbergi í notkun í Skjaldarvík og hægt er að taka á móti allt að 60 manns í einu. Mynd / Rakel Ósk Sigurðardóttir. 1.990kr. Vnr. 55900060 Kantskeri. 1.890kr. Vnr. 55900040 Arfaskafa. 1.690kr. Vnr. 55900016 Malarskófla. 2.290. Vnr. 55900037 Stunguskófla. 2.490kr. Vnr. 55900019 Malarskófla með trefjaplastskafti. Ve rð ve rn d BY KO tr yg gi r þ ér læ gs ta v er ði ð. E f þ ú ka up ir vö ru h já o kk ur o g sé rð s öm u eð a sa m bæ ril eg a vö ru a ug lý st a ód ýr ar i a nn ar s st að ar , i nn an 2 0 da ga , e nd ur gr ei ðu m v ið þ ér m is m un in n og 1 0% a f h on um a ð au ki ! N jó ttu v el . Sj á ná na ri up pl ýs in ga r o g sk ilm ál a á w w w .b yk o. is 4.990kr. 1.890kr. 390kr. Vnr. 79290094 Hjólbörur, 80 l. Vnr. 77818012 Múrfata, 12 l. Verð frá: Vnr. 77818038 Múrbali, 40 l. Verð frá: VOR Í LOFTI 2.490kr. Vnr. 55900039 Stungugaffall. 139.900kr. Vnr. 79290121 Bílkerra 1520x1200 mm. Heitgalvaniseruð með dekkkrossvið í botni. Nefhjól og LED ljós. SKOÐAÐU KERRUÚRVALIÐ Á BYKO.IS Úrval af vörum sem létta þér garðverkin. 2.490kr. Vnr. 55900030 Hekkklippur með trefjaplastskafti. 4.590kr. Vnr. 55900033 Stórklippur með trefjaplastskafti. 890kr. Vnr. 68583100 LUX strákústur með skafti, 40 cm. Öl l v er ð er u bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g/ e ða m yn da br en gl . A lla r v ör ur fá st í BY KO B re id d en m in na fr am bo ð ge tu r v er ið í öð ru m v er sl un um . Nýr reyktur úrvals rauðmagi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.