Fréttablaðið - 15.02.2012, Side 12
12 15. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
HALLDÓR
Kæri Össur, á hverri klukkustund látast 300 börn af völdum vannær-
ingar í heiminum. Það er eins og hvert
einasta barn í 25 leikskólum Reykjavík-
ur myndi deyja í dag – og þá er nóttin
eftir. Vannæring hefur verið kölluð þögli
morðinginn, um 2,6 milljónir barna deyja
ár hvert af hennar sökum, það eru lík-
lega fimm sinnum fleiri börn en í allri
Danmörku.
Svolítið erfitt fyrir okkur að ná utan
um þetta, hér er offita og útlitsdýrkun
eitt helsta vandamálið, ef eitthvert tíma-
ritið vill selja vel, slær það manneskju
upp á forsíðu sem hefur náð af sér 50
kílóum. Það eru hversdagshetjur okkar.
Hversdagshetjurnar í Eþíópíu, Pakistan,
Bangladess eru þær sem komast í gegn-
um daginn án þess að deyja úr hungri.
7.200 börn munu ekki komast lifandi
gegnum þennan miðvikudag.
Erfitt að ná utan um þessar tölur? Hvað
þá þessar: 170 milljón börn eru vannærð
í heiminum – tvöfaldur íbúafjöldi Þýska-
lands – þau hafa aldrei fengið fullnægj-
andi næringu, þar af leiðandi ekki náð
að þroskast eðlilega, hvorki líkamlega né
andlega, og eru því á allan hátt vanbúnari
að takast á við lífsbaráttuna. Það er
grimmilegt að dæma næstum 200 milljón
börn til vannæringar, og líka grimmi-
legur kostnaður fyrir hagkerfi heims-
ins, hann er áætlaður um 121 milljarður
Bandaríkjadala. Össur, ef við bregðumst
ekki umsvifalaust við þessu vandamáli,
og af öllu afli, þá vex það og fjöldi hinna
vannærðu fimmfaldast á næstu 15 árum.
Umhyggja okkar fyrir hagkerfi heimsins,
þar með eigin buddu, ætti ein og sér duga
til að vekja okkur.
Kæri Össur, Ísland er fámennt land,
en í þessu máli eru til einfaldar leiðir;
hér þarf í raun lítið til að gera mikið.
Eina sem þarf er vilji. Þú átt til skaphita,
kraft, af hverju nýtirðu það ekki, stígur
fram á svið heimsins og gerir Ísland að
forystulandi í baráttunni gegn vannær-
ingunni, hinum þögla barnamorðingja?
Ég efast ekki um góðan vilja þinn, samúð
þína, en hvaða gagn er að góðum vilja,
góðum orðum og yfirlýsingum, ef þeim
fylgja engar athafnir?
Össur, þetta er kapphlaup við dauðann
– 10 börn létust meðan þú last þetta bréf.
Við hljótum því báðir að spyrja okkur:
Hv aða gagn er að stjórnmálamönnum
ef þeir reyna ekki af afli síns hjarta að
bjarga lífum barna?
Bréf til Össurar
Samfélags-
mál
Jón Kalman
Stefánsson
rithöfundur
H
inn 6. október 2008 ákvað Seðlabanki Íslands að lána
Kaupþingi 500 milljónir evra, um 80 milljarða króna.
Lánið var upphaflega til fjögurra daga og sem veð
voru tekin öll hlutabréf Kaupþings í danska bank-
anum FIH. Í bók Árna Mathiesen „Frá bankahruni til
byltingar“ segir að Seðlabankinn hafi „látið Kaupþing hafa allan
gjaldeyrisforðann sem þeir voru með hérna heima þannig að það
voru engir peningar eftir í Seðlabankanum“. Sigurður Einarsson,
þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, sagði í Kastljósinu sama
dag og lánið var veitt að hann „réttlæti það að við höfum fengið
þessa fyrirgreiðslu vegna þess að
þetta er mjög öruggt lán. Vegna
þess að við stöndum mjög vel og
Seðlabankinn er öruggur um að
fá þessa peninga til baka […] Ég
get sagt það kinnroðalaust“. Davíð
Oddsson, þáverandi formaður
bankastjórnar Seðlabankans,
sagði daginn eftir í sama þætti að
ef lánið fengist ekki greitt þá myndi „Seðlabankinn eignast mjög
góðan banka í Danmörku, FIH“. Kaupþing féll þremur dögum síðar.
Síðar hefur komið í ljós að FIH bankinn var ekki jafnmikill klettur
í hafinu og menn vildu meina. Bankinn þurfti að fá fyrirgreiðslu
upp á tæpa 1.100 milljarða króna frá danska ríkinu sumarið 2009.
Í september 2010 seldi Seðlabanki Íslands FIH, m.a. vegna þess að
hann taldi raunverulega hættu á að FIH yrði tekinn yfir af dönskum
stjórnvöldum. Við það hefði veð hans í bankanum orðið verðlaust.
FIH var, í orði, seldur fyrir 109 milljarða króna. Það virtist því ætla
að verða góður hagnaður af þessum viðskiptum. Á borði fékk Seðla-
bankinn hins vegar um 41 milljarð króna staðgreiddan og afganginn,
um 68 milljarða króna, lánaði Seðlabankinn nýjum eigendum fram
til loka ársins 2014. Seljendalánið ber enga vexti. Auk þess var sam-
þykkt að allar afskriftir vegna eigna sem voru á efnahagsreikningi
FIH þegar bankinn var seldur myndu dragast frá láninu. Að lokum
var ákvæði um að ef rúmlega helmingshlutur sem FIH á óbeint í
skartgripaframleiðandanum Pandoru myndi aukast að verðgildi
rynni það til Seðlabankans.
Síðan þessi kaupsamningur var gerður hefur FIH afskrifað um
48 milljarða króna, eða um 70% af seljendaláninu. Talið er líklegt
að afskriftunum sé ekki að fullu lokið. Í ljós kom að útlán bankans
voru fjarri því að vera jafntrygg og af var látið. Það á sérstaklega
við um lán til félaga í fasteignarekstri eða byggingariðnaði. Berl-
ingske Tidende sagði í fyrra að FIH hefði verið peningabaukur fyrir
áhættufjárfesta í þessum geirum, sem gengu undir nafninu Millj-
arðamæringaklúbburinn, á meðan bankinn var í eigu Kaupþings.
Flestallir meðlimir klúbbsins eru gjaldþrota í dag. Seðlabankinn
reiknaði ætlaðan söluhagnað vegna hlutabréfa FIH í Pandoru inn í
tilkynnt kaupverð þegar hann seldi bankann. Í því reikningsdæmi
var áætlað virði bréfanna við sölu um 26 milljarðar króna. Það er
nú um sjö milljarðar króna.
Í dag er því tugmilljarða króna tapstaða á aðkomu Seðlabank-
ans að FIH. Það eina sem gæti lagað þá tapstöðu eitthvað er að
bréf í skartgripaframleiðanda hækki gífurlega fram til loka árs
2014. Seðlabankinn á í raun afleiðu sem sveiflast til og frá eftir því
hvernig Pandoru gengur að selja skartgripi. Það má vel velta fyrir
sér hvort það sé ásættanlegt veðmál fyrir Seðlabanka að taka þátt í.
Seðlabankinn tapar á Kaupþingsláninu:
Skartgripaafleiða
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@frettabladid.is
SKOÐUN
Stóra manntalsmálið
Nýverið var hér fjallað um fyrirspurn
Vigdísar Hauksdóttur á þingi varðandi
manntal sem Hagstofan vinnur að.
Svar við fyrirspurninni var birt á mánu-
dag og kemur í ljós að manntalið er
eitt af grunnverkefnum Hagstofunnar
sem hefur tekið slík töl í 100 ár. Þá
er manntalið einnig skylduverkefni
samkvæmt EES-samningnum
og veitti ESB Hagstofunni
rúmlega 100 milljóna styrk
vegna þess í fyrra. Mann-
talið tengist hins vegar
ekki umsókn Íslands
að ESB eins og Vigdís
spurði um í fyrir-
spurn sinni.
Freklegt inngrip ESB!
Vigdís gerði svarið að umtalsefni á
þingi í gær. Hún benti á að ESB væri
að styrkja Hagstofuna til þess að telja
Íslendinga og íbúðir hér á landi. Þá
lýsti hún því yfir alvarleg í bragði að
þetta væri inngrip í innanríkismál
landsins sem væri hið alvarlegasta
mál. Vandséð er að styrkur til hagtölu-
og mannfjöldarannsókna, sem svo til
öll lönd ráðast í, sé stórmál.
Reynslubolti hrósar Höll-
inni
Áður hefur í þessum dálki verið
fjallað um áhuga Björns Bjarna-
sonar, fyrrum ráðherra, á
kvikmyndum og sjónvarps-
efni. Björn skrifar reglulega um slíkt á
vefsíðu sinni og nú síðast um dönsku
sjónvarpsþættina Höllina, Borgen, sem
RÚV sýnir. Í færslu á sunnudag segir
Björn að þátturinn sýni að stjórnmál
séu alls staðar á sama veg og virðist
sjá í þeim líkindi við reynslu sína úr
íslenskum stjórnmálum. Þá bendir
hann á nokkur fróðleg dæmi um
hörkuna í dönskum stjórnmálum.
Orð Björns verða að teljast
höfundum þáttanna til hróss
enda reynslumikill úr póli-
tíkinni. Það er þó mögulega
varasamt að draga almennar
ályktanir út frá þeim enda
byggðir á handriti.
magnusl@frettabladid.is
Alla virka daga kl. 18.00
Mythbusters eru frábærir
þættir þar sem snillingarnir
Jamie Hyneman og Adam
Savage framkvæma ótrúlegar
tilraunir.
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ