Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 22

Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGKassakerfi & sjóðsvélar ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 20122 Nýherji fer með umboð fjölda þekktra vörumerkja og þar á meðal IBM. IBM er okkar stærsti birgi þegar kemur að sölu- kerfum og þá er einnig töluvert til af hugbúnaðarkerfum frá IBM í verslunargeiranum,“ segir Sigurjón Hjaltason, vörustjóri hjá Nýherja. Markaðshlutdeild IBM er yfir fjórðungur á heimsvísu í sölu af- greiðslukerfa eða sama og þrjú næstu fyrirtæki samanlagt. Sig- urjón segir viðskiptavini Nýherja þekkja gæði og endingu IBM. „Icelandair á Kef lavíkurf lug- velli endurnýjaði sölukerfi sitt til að mynda eftir tíu ára notkun og valdi áfram IBM. Þar var sett upp tveggja skjáa kerfi með aukaskjá sem keyrir auglýsingaefni við hlið- ina á strimlinum þegar viðskipta- vinurinn verslar. Þar geta komið fram ýmis tilboð eða tilkynningar, rétt á meðan hann kaupir sér sam- loku og drykk,“ segir Sigurjón. Meðal nýrra viðskiptavina Ný- herja er verslunin Lindex. Opnun verslunarinnar var eftirminnileg en hleypa þurfti viskiptavinum inn í hollum dag eftir dag. Álagið á kassakerfið var gífurlegt og segir Sigurjón það hafa verið prófraun á vél - og hugbúnaðarkerfið. „Í gegn- um einn afgreiðslukassa hjá Lindex fór meira magn en í stórri verslun í Ósló samanlagt. Kerfið virkaði hundrað prósent. Þetta er mjög gott dæmi um það hversu vel IBM-kerf- in standa sig,“ segir Sigurjón. Fjarvöktun á kerfum Þei verslunareigeindur sem reka fleiri en eina verslun, jafnvel um allt land, býður Nýherji upp á fjar- vöktun á sölukerfum. Hægt er að fylgjast með kerfum allan sólar- hringinn og jafnvel sjá bilanir fyrir. „Við getum séð hvort eitthvað er farið að hegða sér óeðlilega og hvort bilun er yfirvofandi. Þá er einnig hægt að setja kerfin í deepsleep á nóttunni en þá eyða þau einungis þremur vöttum af rafmagni. Þannig má bæði minnka rafmagnsnotkun viðskiptavinarins og lengja líftíma tækja,“ segir Sigurjón. Þróun í verslunarumhverfi Sigurjón segir talsverðar breytingar í vændum á öllu verslunarumhverfi þar sem þráðlausar lausnir í af- greiðslu skipi alltaf stærri og stærri sess. Verslunarkerfin séu meðal annars að færast yfir í snjallsíma. „Þá er hægt að setja snjallsíma í sér- stakt hulstur frá Ingenico og forrita hann sem afgreiðslukerfi,“ útskýr- ir Sigurjón. „Hægt er að skanna inn strikamerki, taka við greiðslu og senda kvittun með tölvupósti eða prenta hana út á staðnum.. Nýherji er umboðsaðili Ingenico og mun bjóða þessi hulstur mjög fljótlega hér á landi.“ Haldið utan um viðskiptavini Með breyttu verslunarumhverfi segir Sigurjón verslunareigendur fá fleiri snertifleti á viðskiptavini sína. Samskipti fara fram gegn- um vefmiðla og þá spili tryggða- og gjafakort einnig stórt hlutverk. Reikna megi með að þessi þróun verði einnig hér á landi á næstu árum. „Í heildina séð eru að verða töluverðar breytingar á versl- un. Í Bandaríkjunum er til dæmis aukning í gjafakortasölu og einn- ig er verið að sameina öll gjafa- kortin inn í snjallsíma. Þegar við- skiptavinurinn gengur inn í verslun „veit“ verslunin að viðskiptavinur- in er kominn og sendir á hann til- boð í símann. Ofan á þetta bætist að nú eru komnar fram rafrænar „buddur“, Google wallet og Paypal purse. Þá er einnig hægt að greiða fyrir vöru með snjallsímanum. Ný- herji er með öflug vörumerki til að styðja okkar viðskiptavini í að vera fremstir í þjónustu. Þá eigum við frábært samstarf við íslensku hug- búnaðarhúsin sem eru að hanna allt það nýjasta sem er að gerast.“ Fjarvöktun lengir líftímann Nýherji býður fjarvöktun á sölukerfum. Þannig er hægt að fylgjast með öllum kerfum allan sólarhringinn og jafnvel sjá bilanir fyrir. Slík lausn felur í sér lægri rafmagnsnotkun viðskiptavinarins og lengir líftíma búnaðar. Sigurjón Hjaltason vörustjóri segir Nýherja fylgjast vel með breytingum á verslunarum- hverfi. MYND/GVA Nýherji hf. Borgartún 37 sími 569 7700 netverslun.is HUGSAÐU INN FYRIR KASSANN IBM er brautryðjandi í framleiðslu kassakerfa. Þau byggja á rúmlega 40 ára reynslu, hugviti og gæðum. Íslenskir notendur treysta eiginleikum þeirra, enda eru þau áreiðanleg og þekkt fyrir lága bilanatíðni. Nýherji býður fjarvöktun á kassakerfum. Slík lausn felur í sér lægri rafmagnsnotkun og getur lengt líftíma búnaðar. IBM Anyplace Kiosk 33E Snertiskjár á vegg eða borð. Hentar einnig sem kassakerfi. Örgjörvi: 2.0 GHZ Intel Celeron® Vinnsluminni: 1GB. Harður diskur: 80GB. ÞRÓTTMIKILL STARFSKRAFTUR DUGLEGUR AFGREIÐSLUÞJARKUR IBM 4852-E66 IBM kassakerfi og 15” snertiskjár (innrauð tækni) með kortalesara og viðskiptamannaskjá. Nemur fingur, penna, kort, ofl. Örgjörvi: 2.2 GHZ Intel Celeron® Vinnsluminni: 1GB. Harður diskur: 160GB.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.