Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2012, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 27.04.2012, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 27. apríl 2012 17 Eigandi Múrbúðarinnar, Baldur Björnsson, skrifaði grein í Fréttablaðið 24. apríl síðastliðinn þar sem hann hefur flest sem lýtur að endurreisn Húsasmiðjunnar á hornum sér. Húsasmiðjan lenti, eins og fjölmörg önnur fyrirtæki, í fjárhagserfiðleikum í kjöl- far efnahagshrunsins í lok árs 2008. Afleiðingar þess urðu meðal annars þær að þáver- andi eigendur misstu eignar- hald sitt á fyrirtækinu, töpuðu sínum fjármunum og hurfu frá rekstrinum. Í framhaldi réðust nýir eigendur í fjárhagslega endurskipulagningu félagsins til að tryggja störf, greiðslur til birgja og ekki síst til að við- halda samkeppni á markaðnum. Við yfirtöku Vestia ehf., eignar- haldsfélags Landsbankans, á Húsasmiðjunni í lok árs 2009 var að öllu leyti farið eftir þeim ströngu skilyrðum sem þess- ari yfirtöku voru sett af yfir- völdum. Eitt helsta markmið fjárhags- legrar endurskipulagningar þeirra fyrirtækja sem til þess eru metin hæf, er að tryggja neytendum áframhaldandi sam- keppni á þeim markaði sem fyr- irtækin starfa á. Sérstaklega er lögð á það áhersla að fyrirtæki sem tekin eru yfir af bönkum eigi ekki að hætta að keppa eða fara sér hægar í samkeppni. Slíkt myndi valda viðskipta- vinum og almenningi tjóni á þeim mörkuðum sem viðkom- andi fyrirtæki starfar á. Fyrir- tækin eru því ekki rekin í þrot, bútuð upp eða eignir seldar á brunaútsölu heldur er rekstur þeirra endurreistur. Ekkert er gert til að þjóna sérhagsmunum eigenda einstakra samkeppnis- aðila sem vilja hafa samkeppni sem minnsta. Auðvitað hefði það verið hagstæðara fyrir eig- anda Múrbúðarinnar ef Húsa- smiðjan hefði horfið af mark- aðnum, en það væri verra fyrir neytendur. Það er því lýðskrum hjá eiganda Múrbúðarinnar að klæða sérhagsmuni sína í bún- ing almannahagsmuna. Samhliða fjárhagslegri end- urskipulagningu hefur Húsa- smiðjan þurft að hagræða með margvíslegum hætti í sínum rekstri og meðal annars neyðst til að fækka starfólki um 50% frá 2008. Húsasmiðjan hefur notið eðlilegrar rekstrarfjár- mögnunar hjá sínum viðskipta- banka eins og önnur fyrirtæki og engir fjármunir runnu inn í félagið þegar eignarhald þess breyttist með aðkomu Fram- takssjóðs Íslands. Að halda öðru fram er einfaldlega rangt. Í lok árs 2011 var Húsasmiðjan síðan seld til danska fyrirtækisins Bygma A/S fyrir 3,3 milljarða króna og var sú sala til marks um þann árangur sem starfsfólk Húsasmiðjunnar hafði þegar náð í endurreisn félagsins. Stjórnendur Húsasmiðjunnar vita mætavel út á hvað skoðun samkeppnisyfirvalda á félaginu gengur enda hafa þeir unnið með yfirvöldum við að upplýsa um starfsemi félagsins auk þess sem verkferlum starfsmanna við verðkannanir í verslunum hefur verið breytt og starfs- menn menntaðir sérstaklega til að mæta öllum kröfum sam- keppnislaga. Húsasmiðjan hefur nú fengið nýtt upphaf með nýjum eig- endum og kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt framúrskarandi þjónustu og breitt vöruúrval. Húsasmiðj- an er vinnustaður tæplega 400 starfsmanna sem nú hafa kom- ist heilir í höfn eftir langt erfið- leikatímabil. Allt vel hugsandi fólk samgleðst með þessum 400 starfsmönnum og fjölskyldum þeirra við þessi tímamót. Það virðist vera ein helsta aðferð eiganda Múrbúðarinnar að vekja athygli á sjálfum sér og fyrirtæki sínu með því að viðhafa málflutning sem ein- kennist af dylgjum og rang- færslum í garð samkeppnisaðila sinna. Þar velur hann greinilega aðferð sem þjónar lund hans best. Auðvitað hefði það verið hagstæðara fyrir eiganda Múrbúðarinnar ef Húsasmiðjan hefði horfið af markaðnum, en það væri verra fyrir neytend- ur. Það er því lýðskrum hjá eiganda Múrbúðarinnar … Athugasemd frá forstjóra Húsasmiðjunnar Viðskipti Sigurður Arnar Sigurðsson forstjóri Húsasmiðjunnar AF NETINU Pontan og völdin Talsvert er rætt um þinghaldið um þessar mundir. Það er skiljanlegt. Í hönd fer hefðbundið glundroðaástand. Eftir að hafa setið á þingi í smá tíma virðist mér þetta blasa við um þing- haldið almennt: Á Alþingi ríkir viðvarandi valdabarátta. Margir telja hana sjálfsagða enda sé þetta jú Alþingi. Flokkar eigi að berjast um völd. Ég er ósammála þessari nálgun á stjórnmál. Mörg vitum við að valda- barátta, sé hún endalaus, setur flest í bál og brand. Fjölskyldur springa ef valdabarátta innan þeirra er viðvarandi, vinir hætta að talast við, JR hatar Bobby, fyrirtæki ganga illa og félagasam- tök verða óstarfhæf. Sama gildir um Alþingi. Viðvarandi valdabar- átta, með tilheyrandi klækjum, skemmir og eitrar. http://blog.eyjan.is Guðmundur Steingrímsson NÚ GETUR ÞÚ NOTAÐ ÞÍNA ÁVÍSUN Á LESTUR Á EYMUNDSSON.IS STÆRSTU BÓKAVERSLUN LANDSINS NÝJUSTU BÆKURNAR OG FERSKAR FRÉTTIR Á WWW.FACEBOOK.COM/EYMUNDSSON YFIR 100.000 TITLAR Á EINUM STAÐ Nýttu þína ávísun! Ávísunin gildir við kaup á öllum slenskum:í

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.