Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2012, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 27.04.2012, Qupperneq 19
Margrét V. Helgadóttir, verk-efnastjóri í tölvudeild Marels, var nýlega kjörin formaður stjórnar SAMFOK (Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík). Hún hefur í mörg ár eldað kjúklingarétt sem er afar vinsæll á heimili hennar. Uppskriftina má rekja til matreiðslu- klúbbsins Nýir eftirlætisréttir, sem var vinsæll klúbbur þegar Margrét flutti að heiman og fór að búa. Hún segir réttinn hafa verið einn af spariréttum fjölskyld- unnar í mörg ár. „Við bjuggum lengi í Danmörku og vorum gjarnan með kjúk- ling í matinn sem sparimat. Þar varð þessi réttur oft fyrir valinu um helgar og þegar góða gesti bar að garði.“ Elsta dóttir Margrétar dvaldi sem skiptinemi á Kosta Ríka fyrir tveimur árum. Þar lifði hún á hrísgrjónum og banönum í heilt ár að sögn Margrétar. Þegar fór að styttast í heimkomu hennar var hún spurð hvaða mat hana langaði mest að borða fyrsta kvöldið sitt á Íslandi. „Ég bjóst að sjálfsögðu við ósk um ís- lenskan fisk eða lambakjöt og kartöflur. En í staðinn sagðist hún að sjálfsögðu vilja fá kjúklingaréttinn góða. Hungraða skiptinemann var víst farið að dreyma hann úti undir lokin. Og að sjálfsögðu var kjúklingarétturinn á borðum fyrir ungfrúna fyrsta kvöldið á Íslandi.“ Formaður stjórnar SAMFOK er kosinn til tveggja ára í senn en Mar- grét sat áður í stjórn samtakanna. Hún segir markmið sitt vera fyrst og fremst að halda áfram því góða starfi sem sinnt hefur verið undanfarin ár hjá samtökunum. „Af stærri málum má hins vegar nefna sameiningar hjá grunnskólum borgarinnar. Það fer mikil vinna í að fylgjast með þeim málum enda afar mikilvægt málefni. Þar skiptir miklu máli standa vörð um hagsmuni barnanna.“ Annað mál sem er Margréti afar hugleikið er gera ís- lenska skólaforeldra meðvitaðri um hlutverk sitt. Þar horfir hún fyrst og fremst til Danmerkur en danskir skóla- foreldrar eru að hennar mati frábærir. „Eftir sex ára dvöl í Danmörku lærir maður að vera meðvitaðri um hlutverk sitt og skyldur sem foreldri í samstarfi á milli heimilis og skóla. Mér fannst aðdáunarvert að upplifa hvernig for- eldrar litu á það að taka þátt í skóla- samstarfinu sem sjálfsagðan hluta af foreldrahlutverkinu. Við erum að tala um 100% mætingu á alla fundi og við- burði á vegum skólans.“ Hún segir þó heilmikið hafa áunnist í þessum málum hérlendis undanfarin ár þótt Íslendingar geti lært mikið af öðrum nágrannaþjóðum. GAMALDAGS MATUR Í NÝJUM BÚNINGI SPARIMATUR Hefðbundið hráefni er uppistaðan í einföldum og ljúffengum kjúklingarétti sem er uppáhald fjölskyldunnar. VINSÆLL RÉTTUR Margrét V. Helgadóttir er nýkjörinn formaður SAMFOK. MYND/VILHELM GUNNARSSON ■ FRAMHALD Á SÍÐU 2 HOLLAR TREFJAR Trefjar eru nauðsynlegar fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Þær er hægt að fá úr fjölmörgum fæðutegundum. Trefjar eru í grænmeti, rótarávöxtum og flestum aldinum, hnetum og baunum. Ýmis fræ hafa í sér trefjar en svo er einnig um hýðishrísgrjón og aðrar heilkornsmatvörur. Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk, ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu kr. NÝ TT Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.